Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2017, Síða 29

Læknablaðið - 01.12.2017, Síða 29
LÆKNAblaðið 2017/103 549 Y F I R L I T S G R E I N stemmur og rúnapár ásamt hagnýtum ráðum og grasalækningum við ýmsum kvillum. Eins og viðurnefnið „lærði“ gefur til kynna var Jón Guðmunds- son uppi á tímum þegar skilin voru enn óljós milli lærðra og leikra, ekki aðeins hér á landi heldur víðar í Evrópu.38 Hugmyndaheimur hans studdist að verulegu leyti við forngrískar kenningar um eðli náttúrunnar og mannslíkamans sem lítt höfðu þróast fram að hans tíð. Ritheimildir sýna enn fremur að vessakenningar Hippókrates- ar sem Galenos byggði inn í kenningakerfi sitt, meðal annars um heita og kalda sjúkdóma, náttúrufræði Pliníusar (d. 79) og grasafræði Díoskorídesar voru enn við lýði og mótuðu hugmyndir sjálfmenntaðra íslenskra fræðmanna seint á sautjándu öld.39 Þessi fræði blönduðust annars vegar saman við magískar hugmyndir um náttúrukrafta og kosmísk öfl, meðal annars áhrif himintungla á heiminn og lífið í honum – hins vegar heiðnar trúarleifar í bland við kristni, því ekki er ýkja mikill munur á því að spenna rúnir um liðu „og biðja dísir duga“ eins og segir í Sigurdrífumálum (vísa 9) eða að binda brot af Margrétarsögu28 um læri fæðandi konu, svo dæmi sé tekið. Niðurstaða Frá upphafi vega hafa töfrar og trú tengst lækningum og verið viðurkenndur liður í þeim lengst af. Skilin milli töfra og vísinda voru lengi óljós en samþykki yfirvalda og samfélags á læknisað- ferðunum sem beitt var valt á því hvort þekkingin – eða einstak- lingurinn sem beitti henni – laut boðunarvaldinu. Þannig réðst það ekki síst af trúarlegri afstöðu (hvort sannkristið hugarfar bjó að baki lækningunum) og samfélagsstöðu, hvort iðja manna tald- ist galdur eða fræði. Áhrif siðbreytingarinnar eftir 1550 á vísinda- og þekkingar- starf í landinu ber einnig að taka til greina. Fram að þeim tíma voru íslensku klaustrin, líkt og víðast erlendis, vísindastofnanir og þekkingarmiðstöðvar,40 ekki síst í læknisfræðilegum efnum. Eftir að klaustranna naut ekki lengur við má greina tímabund- inn afturkipp í læknisfræðilegu þekkingarstarfi á Íslandi, eins og framangreindar frumheimildir votta. Í þeim efnum virðist viðleitni siðbótarmanna41 til að efla þekkingu og kristindóm eftir siðaskipti hafa verið lítið mótvægi. Varðveittar galdrabækur sem og lýsingar glataðra rita sýna að þeim sem fengust við kukl og galdur á Íslandi var einkum umhug- að um líf og heilsu, sjálfra sín og annarra. Þó að galdrastafir hafi orðið æ fyrirferðarmeiri í lækningabókum og „fávíslegar lækn- ingareglur“ að sama skapi ríkari þáttur í galdrabókum eftir því sem leið á lærdómsöld, verður ekki framhjá því litið að bækurnar geymdu ævagömul læknisráð. Þau ráð voru upprunnin úr ritum sem fyrr á tíð og lengi fram eftir voru meðal fremstu fræða, byggð á hippókratískum kenningum sem ætla má að hafi verið kennd í Salernóskólanum á Ítalíu. Með tímanum – einkum eftir siðaskipti – hnignaði innihaldi þessara lækningarita sem virðast hafa geng- ið manna á milli í bjöguðum afskriftum og tekið á sig viðbætur úr ýmsum áttum uns svo var komið að örðugt var að greina á milli lækninga- og galdrarita. Sama þoka umlykur læknisiðjuna sjálfa, eins og sjá má af þeim samkenndar- og líkindafræðum sem um svipað leyti riðu húsum við Hafnarháskóla og voru í raun af sama toga og lækningaviðleitnin sem leiddi sakfellda galdramenn á bálköstinn. ENGLISH SUMMARY The conjunction between medical practice, religion and magic becomes rather visible when one peers into old scripts and ancient literature. Before the foundation and diffusion of universities of the continent, the european convents and cloisters were the centers of medical knowl- edge and -practice for centuries. Alongside the scholarly development of medical science, driven from the roots of the eldest scholarly medicial practice, the practice of folk-medicin flourished and thrived all over Europe, not least the herbal-medicine which is the original form and foundation for modern pharmacy. This article deals with the conjunction of religion, magic and medical practice in ancient Icelandic sources such as the Old-Norse literature, medical-scripts from the 12th – 15th century Iceland, and not least the Icelandic magical-scripts (galdrakver) of the 17th century. The last mentioned documents were used as evidence in several witch-trials that led convicted witches to suffer executions at the stake once the wave of European witch-persecutions had rushed ashore in 17th century Iceland. These sources indicate a decline of medical knowledge and science in the 16th and 17th century Iceland, the medical practice being rather undeveloped at the time – in Iceland as in other parts of Europe – there- fore a rather unclear margin between „the learned and the laymen“. While common people and folk-healers were convicted as witches to suffer at the stake for possession of magical scripts and healing-books, some scholars of the state of Danmark were practicing healing-methods that deserve to be compared to the activities of the former ones. That comparison raises an inevitable question of where to draw the line between the learned medical man and the magician of 17th century Iceland, that is between Magic and Science. Medical practice, magic and religion - conjunction and development before and after Reformation Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Independent researcher at The Árni Magnússon Institute for Icelandic Studies. Key words: Folk-medicine, medical-science, healing, magic, herbal-healing, Old-Norse literature, manuscripts. Correspondence: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, olinathorvardar@gmail.com

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.