Læknablaðið - 01.12.2017, Qupperneq 33
LÆKNAblaðið 2017/103 553
Á aðalfundi Læknafélags Íslands var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt:
„Aðalfundur Læknafélags Íslands, haldinn í Kópavogi 19. og
20. október 2017, samþykkir að stjórn Fjölskyldu- og styrktarsjóðs
lækna (FOSL) sé reglulega heimilt að greiða sjóðsfélögum heilsu-
eflingarstyrk úr sjóðum FOSL ef peningalegar eignir sjóðsins eru
hærri en sem nemur þrisvar sinnum árlegum rekstrargjöldum
sjóðsins. Hver útgreiðsla má þó aldrei vera samtals hærri en svo að
eftir verði í sjóðnum peningaleg eign sem nemur tvisvar sinnum
árlegum rekstrargjöldum sjóðsins.
Heilsueflingarstyrkur FOSL til hvers sjóðsfélaga skal hverju
sinni taka mið af innborgunum af launum hans í sjóðinn árið á
undan greiðslu styrksins. Heilsueflingarstyrkur FOSL skal aldrei
nema lægri fjárhæð en 5.000 kr. Lægri greiðslur falla því niður.
Sjóðfélagar standa sjálfir straum af skattgreiðslum af heilsuefl-
ingarstyrknum.“
Fjölskyldu- og styrktarsjóður lækna (FOSL) hefur verið til í
um 20 ár. Hann var settur á laggirnar til að bæta upp skerðingu
á fæðingarorlofi sem hafði þá nýlega verið lögfest. Um er að ræða
framlag frá opinberum launagreiðanda sem nemur 0,41% af laun-
um hvers starfsmanns og er það lagt til sjóðsins þegar laun eru
greidd út en kemur ekki fram á launaseðlinum (þar sem þetta er
framlag launagreiðanda en ekki dregið af launþega). En nákvæm-
lega hvað þessir peningar eiga að fara í er ekki nánar skilgreint.
Reyndar er það algerlega á forræði stjórnar FOSL að ákveða hvern-
ig þessum fjármunum skuli ráðstafað. Þetta hefur gert það að verk-
um að það er mjög misjafnt milli stéttarfélaga hvernig sambærileg-
ir sjóðir eru nýttir. Sum félög greiða út líkamsræktarstyrki. Önnur
félög greiða gleraugnakostnað og svo framvegis. Við sem sitjum í
stjórn FOSL höfum oft fengið spurningar um þetta. Hvernig standi
á því að ekki séu veittir hinir eða þessir styrkir sem félagsmönn-
um í öðrum stéttarfélögum standi til boða. Við sem sitjum í stjórn
FOSL höfum viljað skilgreina hlutverk sjóðsins nokkuð þröngt og
lítum á sjóðinn sem félagslegan jöfnunarsjóð. Við lítum svo á að
hlutverk FOSL sé aðallega að styðja við bakið á barnafólki innan
stéttarinnar (sem var eina hlutverk sjóðsins í upphafi), að styðja við
bakið á læknum sem lenda í veikindum og verða fyrir tekjumissi
sökum þess (með veikindastyrkjum) og að styðja við bakið á fjöl-
skyldum þeirra lækna sem falla óvænt frá (með útfararstyrk). Fyrir
þá sem vilja kynna sér nánar reglur FOSL um úthlutanir þá eru
þær aðgengilegar á vef Læknafélagsins, lis.is
Stjórn FOSL hefur ekki viljað taka upp greiðslur vegna líkams-
ræktarkorta, gleraugnakaupa eða þessháttar þar sem okkur finnst
við þá vera komin of langt frá upphaflegum tilgangi sjóðsins auk
þess sem því fylgir ýmislegt umstang sem erfitt er að réttlæta.
Einnig fylgir því ákveðin mismunun milli sjóðfélaga þar sem ým-
islegt í persónulegum högum fólks getur gert það að verkum að
viðkomandi getur ekki nýtt sér slíka sértæka styrki. Það var því
samþykkt á fundi hjá stjórn FOSL að leggja ofangreinda ályktun
fyrir aðalfund. Ályktunin var einnig rædd í stjórn Læknafélagsins
og hlaut góðar undirtektir þar. Því er vonandi hægt að segja að
þessi ráðstöfun hafi verið kynnt rækilega.
Nú verður sem sagt hægt að greiða félögum út úr FOSL ef
útgjöld eru minni en innkoman hverju sinni. Við köllum þetta
heilsueflingarstyrk og hvetjum sjóðfélaga til að nýta þessar fjár-
muni til heilsueflingar en skiptum okkur ekki af því hverskonar
heilsueflingu félagar kjósa að stunda. Enda ætti læknum að vera
treystandi til að ákveða slíkt sjálfir.
Reynir Arngrímsson formaður
Agnar H. Andrésson
Björn Gunnarsson gjaldkeri
Hjalti Már Þórisson
Jóhanna Ósk Jensdóttir
Magdalena Ásgeirsdóttir ritari
María Gottfreðsdóttir
Ólafur Ó. Guðmundsson
Stjórn LÍ
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Heilsueflingarstyrkur FOSL
Hjalti Már Þórisson
röntgenlæknir
hjaltimt@landspitali.is
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16
Opið mán - fös 8:30 - 17:00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
fastus.is
TERASON uSMART 3200T
ÓMSKOÐUNARTÆKI
Kristaltær og skýr mynd - litaskjár
11.5” AHVA LCD snertiskjár
Windows 7 stýrikerfi
Tengi: USB 3.0 og HDMI port
þráðlaust net og bluetooth
Býður upp á ótal möguleika við ómskoðun
m.a. power- og vefjadoppler
Stoðkerfisprógrömm forstillt fyrir
þau svæði sem á að skoða
Mjög nett, handhægt
og létt (32,1x22,4x32 cm)
Auðvelt að frysta ramma til að vinna með
128 GB sterkt drif sem þolir
vel flutning
Mjög góð sýn á nálar og
auðvelt að staðsetja
Aukahlutir s.s þráðlaust lyklaborð,
hlífðarhulstur, hjólaborð og prentari
3 mismunandi hausar fyrir stoðkerfisskoðun
- smart mark 15-4 MHz
- 12-5 MHz
- 5-2 MHz
Herdís Þórisdóttir
Söluráðgjafi – Heilbrigðissvið
Sjúkraþjálfari B.Sc.,MBA
Sími: 580 3912
GSM: 843 3912
Netfang: herdis@fastus.is