Læknablaðið - 01.12.2017, Page 39
LÆKNAblaðið 2017/103 559
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
„Nei, ég held að ég sé búinn að vera
hér of lengi til að raunhæft sé að búast
við því. Það er ýmislegt sem hefur áhrif
á það. Tækifærin til rannsókna eru miklu
meiri hér en á Íslandi en þó hefur Íslensk
erfðagreining (ÍE) breytt gríðarlega miklu
fyrir rannsóknaumhverfið á Íslandi, og
rannsóknir sem ég hafði unnið í samstarfi
við ÍE hjálpuðu mér mikið að komast
hingað út á sínum tíma. Rannsóknir ÍE í
erfðafræði eru með því besta sem gerist
í heiminum. Það væri einn þáttur sem
gæti gert það freistandi en annars er fátt
annað sem gæti orðið til þess. Ég vann á
Landspítalanum í nærri 5 ár (1999-2003)
áður en ég fór út og ég var einnig for-
maður FUL (Félag ungra lækna sem nú er
Félag almennra lækna) á þessum tíma. Á
Landspítalanum var mjög hæft starfsfólk
og ég hafði frábæran yfirmann og mentor,
Helga Valdimarsson prófessor sem var
yfirlæknir ónæmisfræðideildarinnar og
hann var minn helsti bakhjarl og studdi
mig og hvatti til að halda áfram. Ég hefði
ekki komist að hér úti án hans stuðn-
ings. En þrátt fyrir frábært starfsfólk þá
er Landspítalinn vondur vinnustaður.
Allt sem var lofað var svikið og lítill sem
enginn stuðningur við eitt né neitt. Þetta
situr svo í mér eftir öll þessi ár að ég hef
nákvæmlega engan áhuga á að koma
nokkurn tíma aftur til starfa á þeirri stofn-
un.
Hér er mikil samkeppni en það er allt
gert til að hjálpa manni til að standa sem
best að vígi. Þessi stofnun sem ég er á er
ein af þeim bestu í Bandaríkjunum og það
er allt til sem maður þarf á að halda. Hér
er mjög vel haldið utan um starfsfólkið og
allt gert til að létta manni störfin. Þessu
kynntist maður aldrei heima. Ég held að
fæstir sem fara heim geri það vegna starfs-
umhverfisins heima heldur er það fjöl-
skylda og heimaslóðir sem toga í. Fólk hef-
ur í dag reyndar miklu meiri möguleika til
að starfa á alþjóðlegum grundvelli og er
ekki jafn bundið við land eins og áður var.
En smæðin á Íslandi er staðreynd sem ekki
verður komist framhjá.“
„Hér er mikil samkeppni en það er allt gert til að hjálpa manni til að standa sem best að vígi. Hér er mjög vel haldið utan um starfsfólkið og allt gert til að
létta manni störfin. Þessu kynntist maður aldrei heima,“segir Jóhann Elí Guðjónsson sérfræðingur í húðsjúkdómum og ónæmisfræðum.