Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.2017, Page 42

Læknablaðið - 01.12.2017, Page 42
562 LÆKNAblaðið 2017/103 Kódein er náttúrulegur ópíóíð sem er náskyldur morfíni en hefur sáralitla eigin verkun. Verkjastillandi verkun kódeins byggist á því að hjá flestu fólki á Vestur- löndum breytir lifrin um 10% af gefnum skammti í morfín. Hóstastillandi verkun kódeins byggist einnig á myndun morf- íns en kódein virðist þar að auki hafa vissa beina hóstastillandi verkun. Umbrot kódeins í morfín verða fyrir tilstilli lifrar- ensímsins CYP 2D6 en þetta ensím er með erfðabreytileika sem er þannig að 7-10% einstaklinga hvíta kynstofnsins hafa litla virkni en 1-2% yfirtjá ensímið. Þetta þýð- ir að næstum tíundi hver einstaklingur fær litla sem enga verkjastillandi verkun eftir inntöku kódeins og 1-2% eru í auk- inni hættu að fá aukaverkanir eða fíkn í lyfið. Nokkur algeng lyf hamla CYP 2D6 og milliverka þannig að verkjastillandi verkun kódeins minnkar eða hverfur. Kódein er einnig talsvert notað til að stilla langvarandi þurran hósta en ekki má nota það ef slímkenndur uppgangur er til stað- ar. Á grundvelli ofangreindra staðreynda má sjá að verkun kódeins er einstaklings- bundin, allt frá því að verkun sé nánast engin í það að vera hættuleg við venjulega skammta. Nokkur lyf sem innihalda kódein eru á markaði á Íslandi. Kodein Meda töflur innihalda einungis kódein, Parkódín og Parkódín forte eru töflur og Pinex Comp Forte endaþarmsstílar sem öll innihalda kódein og parasetamól. Þar að auki er á markaði forskriftarlyfið SEM-mixtúra sem inniheldur 2,5 mg/ml af kódeini og 10 ml (ein barnaskeið) innihalda þannig næstum jafn mikið kódein og tafla af Parkódín forte. Þessi mixtúra inniheldur því veru- legt magn af kódeini og henni fylgja engar upplýsingar um skammta, varúð, auka- verkanir né annað sem skiptir máli. Aukaverkanir kódeins eru margvís- legar og fyrir utan ávana- og fíkn eru þær algengustu sljóleiki, þreyta, ógleði og hægðatregða. Allir ópíóíðar valda hægða- tregðu en vísbendingar eru um að kódein hafi meiri slíka verkun en önnur lyf af þessum flokki. Þegar þol hefur myndast og skammtar eru stækkaðir getur hægða- tregðan orðið verulegt vandamál. Hættu- legasta aukaverkun ópíóíða er öndunar- slæving sem er sérlega hættuleg við stóra skammta og ef sjúklingur er einnig að taka önnur slævandi lyf eins og svefnlyf eða kvíðastillandi lyf eða hann neytir áfengis. Nokkur dauðsföll hér á landi má á hverju ári rekja til fjöllyfjanotkunar af slíku tagi. Í klínískum leiðbeiningum er lögð áhersla á að langtímanotkun ópíóíða við verkjum sem ekki eru af krabbameinstoga skapar oftast meiri vandamál en hún leysir. Vegna óvissu um öryggi kódeins ættu konur á meðgöngu eða með barn á brjósti að forð- ast lyfið og í Evrópu er almennt ekki mælt með lyfinu fyrir börn. Eins og kemur fram í nýjustu Nomesco skýrslu er Ísland með mestu notkun ópíóíða af Norðurlöndunum.4 Munur milli landanna felst í meiri notkun kódein-lyfja í blöndum (aðallega Parkódín forte) hér á landi en notkun annarra ópíóíða er svipuð. Rúmlega 50% aukning hefur átt sér stað í ávísunum þessara lyfja hér á landi frá árinu 2005, sjá töflu I. Í Svíþjóð og Noregi sem koma næst á eftir Íslandi í notkun kódein-lyfja í blöndum hefur notkun þessara lyfja dregist saman undanfarin ár. Sá aldurshópur sem notar mest af lyfjun- um hér á landi eru þeir sem eru eldri en Kódein Magnús Jóhannsson læknir magnus@landlaeknir.is, Jón Pétur Einarsson lyfjafræðingur, Anna Björg Aradóttir sviðsstjóri, Ólafur B. Einarsson sérfræðingur F R Á E M B Æ T T I L A N D L Æ K N I S 2 1 . P I S T I L L Tafla II. Ávísanir (DDD/1000 íbúa á dag) kódein lyfja í blöndum eftir landshlutum og breyting frá 2012 til 2016.1,3 Landshluti Austurland Höfuðborgar- svæði Norðurland eystra Norðurland vestra Suðurland Suðurnes Vestfirðir Vesturland 2012 14,1 12,9 19,7 18,7 13,3 15,1 15,7 14,8 2016 18,6 14,7 22,7 21,0 15,4 17,7 14,2 18,5 Breyting % 31,5 14,5 15,0 12,4 15,1 17,4 -9,9 24,7 Tafla I. Breytingar í ávísunum kódeinlyfja í blöndum til karla og kvenna á Íslandi frá 2005 til 2016.1,3 Fjöldi sem fær ávísað á hverja 1000 íbúa Fjöldi ávísaðra dagsskammta á hverja 1000 íbúa á dag Ár karlar konur karlar konur 2005 98,4 128,1 8,3 12,6 2010 125,6 174,2 10,9 17,1 2016 147,6 198,7 13,2 19,4 Breyting % 49,99 55,07 58,33 54,14

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.