Læknablaðið - 01.12.2017, Page 43
LÆKNAblaðið 2017/103 563
55 ára en eins og sést á grafi2 hér að neðan
er eldra fólk að fá mun meiru ávísað hér á
landi en í Svíþjóð.
Niðurstaðan er sú að kódein er talsvert
meira notað hér á landi en í nágranna-
löndunum (skilgreindir dagskammtar =
DDD). Efast má um hversu gott lyf kódein
er og læknar ættu að hugsa sig vel um
áður en þeir ávísa því. Á Íslandi er mest
ávísað af kódein-lyfjum á Norðurlandi en
frá árinu 2012 hafa ávísanir aukist mest á
Austurlandi, sjá töflu II.
Heimildir
1. Lyfjagagnagrunnur Embættis landlæknis.
2. socialstyrelsen.se/statistik/statistikdatabas/lakemedel
3. Hagstofa Íslands, hagstofa.is
4. NOMESCO 2016
Fundir öldungadeildar
Næsti fundur Öldungadeildar verður haldinn miðvikudaginn 6. desember 2017. Þá mun Gísli Einarsson félagi okkar og læknir flytja okkur erindi sem
hann nefnir „Ef Guð lofar“.
Þessi fundur verður í húsi Atlanta að Hlíðasmára 3 í Kópavogi, fyrstu hæð (annar salur en síðast, stærri og með hljóðkerfi).
Miðvikudaginn 3. janúar 2018 mun Halldór Baldursson félagi okkar og læknir flytja erindi sem hann nefnir „Þegar fylgdarskipið fórst“.
Miðvikudaginn 7. febrúar 2018 mun Svavar Gestsson fyrrv. ráðherra flytja erindi um „Gullna söguhringinn“ vestur í Dölum.
Um fundi Öldungadeildar.
Allir læknar sem náð hafa sextugsaldri eru velkomnir í okkar hóp samkvæmt lögum Öldungadeildar Læknafélags Íslands. Vonumst við til að sjá sem
flesta á fundum okkar, bæði verðandi félaga og skráða félaga í deildinni. Fundirnir eru haldnir kl. 16.00 fyrsta miðvikudag hvers mánaðar. Hálftíma fyrir
fund er boðið upp á kaffi og vínarbrauð meðan félagar og gestir ræða saman og rifja upp gömlu góðu dagana.
Kristófer Þorleifsson
Formaður Öldungadeildar
kristofert@simnet.is