Læknablaðið - 01.12.2017, Page 51
taugaveiki (Salmonella typhi). Þórgunna
gæti hafa mengað vatnsból og aðrir tekið
sóttina. Andlát hennar hefði því verið af
völdum sýklasóttar sem hafi einkennst af
„andvörpum“ og sótthita. Þeir sem koma
í kjölfarið (samtals 12 látast af sótt) hafa
einkenni sóttar, innantöku og ofskynjana
gætu hafa fengið taugaveiki.
Vegna þess hve fólk var áður fyrr
lúsugt almennt séð er möguleiki á að
lýsnar hafi borið með sér smitefni á borð
við Rickettsia prowazekii sem veldur lúsa-
flekkusótt (typhus). Lýsnar geta hafa leynst
í ársal og hægindum Þórgunnar, borist
á aðra meðlimi heimilisins og þessu hafi
ekki linnt fyrr en með brennslu framan-
greindra klæða.
Félagið bauð uppá kaffiveitingar og er
óhætt að fullyrða að þessi fundur verði
mönnum eftirminnilegur.
Fyrsta árshátíð
Læknafélags Íslands verður
haldin í Hörpu, laugardaginn
20. janúar.
Takið daginn frá!
Eitt af fyrstu Íslandskortunum er frá árinu
1752, ekki svo ýkja löngu eftir að Fróðár-
undrin grasseruðu þannig séð. Fróðá er
norðanmegin á Snæfellsnesi eins og merkt er
á kortinu með rauðum punkti, rétt austan við
bæjarmörkin á Ólafsvík, þar sem vegurinn
liggur yfir Fróðárheiði og veðrið getur á einu
augabragði orðið svo brjálað að það er göldr-
um líkast.
LÆKNAblaðið 2017/103 571
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R