Morgunblaðið - 14.08.2018, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 4. Á G Ú S T 2 0 1 8
Stofnað 1913 189. tölublað 106. árgangur
DÆGURTÓNLIST
KLASSÍSKRA
TÓNSKÁLDA
STÓRBROTIN
OG FULLKOMIN
KEPPNISLEIÐ
RAFTÓNLIST
INNBLÁSIN AF
NÁ́TTÚRUNNI
FJALLAHJÓLAKEPPNI 12 ÖNNUR PLATA MUTED 33SIGURJÓNSSAFN 30
Bókanlegt frá kl. 10:00
til miðnættis í dag 14. ágúst
Hvert á land sem erÆvintýralegt tilboðí september
Verð 5.990 kr.
Ómar R. Valdimarsson, lögmaður
AFA JCDecaux, segir upplýsingar
um samning Reykjavíkurborgar við
félagið Dengsa sýna fram á ágalla.
Önnur félög hefðu brugðist öðru-
vísi við útboði um rekstur hundraða
strætóskýla í borginni ef þessar
upplýsingar hefðu þá legið fyrir.
„Það stóð ekki steinn yfir steini í
gögnunum sem afhent voru eða
lágu fyrir við samningsgerðina.
Málið snýst fyrst og síðast um þetta:
Ef það hefði legið fyrir að hver sem
er hefði getað fengið afslátt af þeim
kröfum sem gerðar voru í upp-
haflegu útboði hefðu væntanlega
fleiri aðilar haft hug á að taka þátt í
því,“ segir Ómar. AFA JCDecaux
hefur sent kæru til kærunefndar
útboðsmála vegna samningsins.
Krafist er ógildingar hans. »14
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Við Lækjartorg Borgin samdi við nýjan
aðila um rekstur skýlanna til ársins 2033.
Kæra borgina vegna
samningagerðar
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skuldir ríkissjóðs hafa lækkað um
rúma 88 milljarða á síðustu 12 mán-
uðum. Skuldirnar hafa því lækkað um
rúmar 240 milljónir á dag, eða um 10
milljónir á klukkustund.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir muna veru-
lega um þessar niðurgreiðslur.
„Þetta skýrist að langstærstu leyti
af sölu á hlut ríkisins í Arion banka og
inngreiðslu á skuldabréf ríkisins
vegna Arion banka. Þessum fjármun-
um höfum við ráðstafað til upp-
greiðslu á skuldum, auk þess að
ganga lítillega á inneign ríkisins hjá
Seðlabankanum. Við gátum gengið
aðeins á lausafjárstöðuna. Þannig að
við erum að nýta, eins og lagt var upp
með, upphaflegu fjárfestinguna í Ar-
ion banka, söluna á hlutabréfum í Ar-
ion banka og síðan stöðugleikafram-
lagið til uppgreiðslu á skuldum. Það
munar verulega um þetta.“
Kaupa bréfin til baka
Seðlabanki Íslands f.h. ríkissjóðs
hefur undanfarna 12 mánuði keypt til
baka skuldabréfaflokk sem gefinn var
út 2008 til að endurfjármagna bank-
ana eftir hrunið. Hann hefur lækkað
um 122 milljarða á ári.
Lækka um 88 milljarða á einu ári
Ríkisskuldir lækka Fjármálaráðherra segir mikið muna um uppgreiðslurnar
Úr 52% í 24%
» Hlutfall hreinna skulda ríkis-
sjóðs af landsframleiðslu er nú
24% en var 52% árið 2013.
» Ríkissjóður skuldaði 1.451
milljarð í ágúst 2013 en nú eru
skuldirnar alls 858 milljarðar.
» Þær hafa því lækkað um
tæpa 600 milljarða á nafn-
virði.
» Skuldir á hvern landsmann
hafa lækkað mikið.
Morgunblaðið/Ómar
Seðlabankinn Hagur ríkissjóðs
hefur batnað mikið síðustu ár. MRíkisskuldir lækka hratt »10
Hafist var handa við að steypa nýtt brúargólf í
Ölfusárbrú í nótt. Brúargólfið var orðið mjög
slitið og voru hjólför þar orðin 40-50 mm djúp.
Dagleg umferð um Ölfusárbrú yfir sumartímann
er sirka 17.000 bílar á sólarhring. Steypan í nýja
brúargólfið er nokkra sólarhringa að harðna og
áætlað er að hægt verði að hleypa umferð aftur á
brúna þann 20. ágúst. Með hagstæðu veðri gæti
viðgerðin þó tekið skemmri tíma en áætlað er.
Morgunblaðið/Eggert
Ölfusárbrú lokað vegna nauðsynlegra viðgerða á gólfi
„Við viljum
vera á tánum til
þess að koma í
veg fyrir að
sníkjudýr berist
til landsins með
innfluttum dýr-
um og geti haft
áhrif á heilbrigði
dýra á Íslandi,“
segir Matthías Eydal, einn af
þremur greinarhöfundum, um nið-
urstöður þjónusturannsóknar sem
framkvæmd var á Keldum og birt
var í vefvísindaritinu Icelandic
Agricultural Sciences. Greinina
rita auk Matthíasar Karl Skírn-
isson og Guðný Rut Pálsdóttir.
„Við skoðum í rútínu saursýni úr
öllum hundum og köttum sem
fluttir eru til landsins. Auk ein-
angrunarvistar, lyfjagjafar og
heilbrigðisskoðunar á Íslandi
þurfa dýrin að uppfylla ströng skil-
yrði og standast skoðun áður en
þau eru flutt til landsins,“ segir
Matthías. ge@mbl.is »6
Vilja koma í veg fyrir
að sníkjudýr berist