Morgunblaðið - 14.08.2018, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 14.08.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018 *M ið að vi ð u p p g ef n ar tö lu r fr am le ið an d a u m el d sn ey ti sn o tk u n íb lö n d u ð u m ak st ri BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 E N N E M M / S ÍA / N M 8 7 0 4 9 www.renault.is Þú tankar sjaldnar á Renault sendibíl RENAULT KANGOO, DÍSIL 1,5 L. VÉL, 90 HESTÖFL Verð:2.250.000 kr. án vsk. 2.790.000 kr.m. vsk. Eyðsla 4,3 l/100 km* RENAULT TRAFIC, DÍSIL 1,6 L. VÉL, 115 HESTÖFL Verð frá:3.024.000 kr. án vsk. 3.750.000 kr.m. vsk. Eyðsla frá 6,5 l/100 km* RENAULTMASTER, DÍSIL 2,3 L. VÉL, 125 HESTÖFL Verð frá:3.750.000 kr. án vsk. 4.650.000 kr.m. vsk. Eyðsla 7,8 l/100 km* Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Aldrei hefur verið jafn mikil sala á Hinsegin daga pakkaferð hjá hin- segin ferðaskrifstofunni Pink Ice- land og fyrir Hinsegin daga sem stóðu yfir frá þriðjudegi til sunnu- dags í síðustu viku. „Þessi pakki leyfir fólki að upplifa það besta af bæði íslensku náttúr- unni og hátíðinni sjálfri,“ segir Birna Hrönn Björnsdóttir, einn af eig- endum Pink Iceland. Fyrirtækið hefur selt sífellt fleiri ferðir ár frá ári, samkvæmt Birnu, en það einblínir á að hanna ferðir fyrir hinsegin fólk. Ferðaskrifstofan er frábrugðin öðrum ferðaskrif- stofum á Íslandi. Engir fordómar „Við búum til öruggan stað fyrir fólk sem er að ferðast. Fólk sem kemur til okkar er oft fólk sem kem- ur úr aðstæðum þar sem það getur ekki verið það sjálft. Hjá okkur þarf ekki að hræðast fordóma sem hin- segin fólk verður oft fyrir á ferða- lögum,“ segir Birna. Hún tekur dæmi um slíka for- dóma úr eigin lífi. „Til dæmis fer bara annaðhvort ég eða konan mín í móttökuna þegar við tékkum okkur inn á hótel því við nennum ekki að útskýra að við viljum í alvöru tvöfalt rúm.“ Dragsýning á Þingvöllum Sumar ferðir á vegum fyrirtækis- ins eru einnig með öðru sniði en venjan er. „Gullni hringurinn hjá okkur var til dæmis mjög skemmti- legur um daginn. Þá fóru 90 manns í ferðina og við settum upp draggsýn- ingu og kampavínsveislu á Þing- völlum, sem var alveg ótrúlega gam- an,“ segir Birna. Hún bendir á að hinsegin fólk sé 10% af heimsbyggðinni. „Við hinseg- in fólk erum stærsta þjóð í heimi. Þegar fólk kemur í ferðir hjá okkur er það því oftar en ekki að hitta framlengda fjölskyldu sína.“ Spurð hvort fólk sem til þeirra leiti hafi sameiginlega reynslu af for- dómum segir Birna: „Þegar þú ert vanur því að stinga alltaf í stúf og vera öðruvísi er mjög góð tilfinning að fá að stíga inn í umhverfi þar sem þú þarft engan veginn að útskýra þig, afsaka þig eða hafa áhyggjur af því hvernig einhver er að horfa á eða dæma þig.“ Pink Iceland er eina hinsegin ferðaskrifstofan á Íslandi en eitt aðalviðfangsefni hennar er nú að skipuleggja brúðkaup. „Ég held að það sé óhætt að segja að við séum orðin umsvifamesti brúðkaupsskipuleggjandi á Íslandi. Við leggjum mikið upp úr því að allir fái góða upplifun. Við þjónustum alla, svo lengi sem þeir eru ekki haldnir fordómum,“ segir Birna, en það er skýrt tekið fram á skilti á hurð ferðaskrifstofunnar. „Þar stendur ekki koma inn ef þú ert rasisti, með fordóma fyrir hin- segin fólki eða haldinn kvenfyrirlitn- ingu.“ Aldrei jafn margar ferðir seldar  Mikill uppgangur hjá hinsegin ferðaskrifstofunni Pink Iceland Ljósmynd/Lovísa Sigurjónsdóttir Gleðigangan Hópur á vegum Pink Iceland gekk að sjálfsögðu í Gleðigöngunni síðastliðinn laugardag. Einkunnarorð hópsins voru „ferðumst frjálslega“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.