Morgunblaðið - 14.08.2018, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
*M
ið
að
vi
ð
u
p
p
g
ef
n
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
d
a
u
m
el
d
sn
ey
ti
sn
o
tk
u
n
íb
lö
n
d
u
ð
u
m
ak
st
ri
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
7
0
4
9
www.renault.is
Þú tankar sjaldnar
á Renault sendibíl
RENAULT KANGOO, DÍSIL
1,5 L. VÉL, 90 HESTÖFL
Verð:2.250.000 kr. án vsk.
2.790.000 kr.m. vsk.
Eyðsla 4,3 l/100 km*
RENAULT TRAFIC, DÍSIL
1,6 L. VÉL, 115 HESTÖFL
Verð frá:3.024.000 kr. án vsk.
3.750.000 kr.m. vsk.
Eyðsla frá 6,5 l/100 km*
RENAULTMASTER, DÍSIL
2,3 L. VÉL, 125 HESTÖFL
Verð frá:3.750.000 kr. án vsk.
4.650.000 kr.m. vsk.
Eyðsla 7,8 l/100 km*
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Aldrei hefur verið jafn mikil sala á
Hinsegin daga pakkaferð hjá hin-
segin ferðaskrifstofunni Pink Ice-
land og fyrir Hinsegin daga sem
stóðu yfir frá þriðjudegi til sunnu-
dags í síðustu viku.
„Þessi pakki leyfir fólki að upplifa
það besta af bæði íslensku náttúr-
unni og hátíðinni sjálfri,“ segir Birna
Hrönn Björnsdóttir, einn af eig-
endum Pink Iceland.
Fyrirtækið hefur selt sífellt fleiri
ferðir ár frá ári, samkvæmt Birnu,
en það einblínir á að hanna ferðir
fyrir hinsegin fólk. Ferðaskrifstofan
er frábrugðin öðrum ferðaskrif-
stofum á Íslandi.
Engir fordómar
„Við búum til öruggan stað fyrir
fólk sem er að ferðast. Fólk sem
kemur til okkar er oft fólk sem kem-
ur úr aðstæðum þar sem það getur
ekki verið það sjálft. Hjá okkur þarf
ekki að hræðast fordóma sem hin-
segin fólk verður oft fyrir á ferða-
lögum,“ segir Birna.
Hún tekur dæmi um slíka for-
dóma úr eigin lífi. „Til dæmis fer
bara annaðhvort ég eða konan mín í
móttökuna þegar við tékkum okkur
inn á hótel því við nennum ekki að
útskýra að við viljum í alvöru tvöfalt
rúm.“
Dragsýning á Þingvöllum
Sumar ferðir á vegum fyrirtækis-
ins eru einnig með öðru sniði en
venjan er. „Gullni hringurinn hjá
okkur var til dæmis mjög skemmti-
legur um daginn. Þá fóru 90 manns í
ferðina og við settum upp draggsýn-
ingu og kampavínsveislu á Þing-
völlum, sem var alveg ótrúlega gam-
an,“ segir Birna.
Hún bendir á að hinsegin fólk sé
10% af heimsbyggðinni. „Við hinseg-
in fólk erum stærsta þjóð í heimi.
Þegar fólk kemur í ferðir hjá okkur
er það því oftar en ekki að hitta
framlengda fjölskyldu sína.“
Spurð hvort fólk sem til þeirra
leiti hafi sameiginlega reynslu af for-
dómum segir Birna: „Þegar þú ert
vanur því að stinga alltaf í stúf og
vera öðruvísi er mjög góð tilfinning
að fá að stíga inn í umhverfi þar sem
þú þarft engan veginn að útskýra
þig, afsaka þig eða hafa áhyggjur af
því hvernig einhver er að horfa á eða
dæma þig.“
Pink Iceland er eina hinsegin
ferðaskrifstofan á Íslandi en eitt
aðalviðfangsefni hennar er nú að
skipuleggja brúðkaup.
„Ég held að það sé óhætt að segja
að við séum orðin umsvifamesti
brúðkaupsskipuleggjandi á Íslandi.
Við leggjum mikið upp úr því að allir
fái góða upplifun. Við þjónustum
alla, svo lengi sem þeir eru ekki
haldnir fordómum,“ segir Birna, en
það er skýrt tekið fram á skilti á
hurð ferðaskrifstofunnar.
„Þar stendur ekki koma inn ef þú
ert rasisti, með fordóma fyrir hin-
segin fólki eða haldinn kvenfyrirlitn-
ingu.“
Aldrei jafn margar ferðir seldar
Mikill uppgangur
hjá hinsegin
ferðaskrifstofunni
Pink Iceland
Ljósmynd/Lovísa Sigurjónsdóttir
Gleðigangan Hópur á vegum Pink Iceland gekk að sjálfsögðu í Gleðigöngunni síðastliðinn laugardag. Einkunnarorð hópsins voru „ferðumst frjálslega“.