Morgunblaðið - 14.08.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar
komu auga á stóra sprungu í Fagra-
skógarfjalli um helgina, en þar var
Gæslan með æfingar í grennd við
framhlaupið í Hítardal. Vefur Veð-
urstofu Íslands greindi frá fregn-
unum í gær.
Sprungan sem hefur opnast inni á
fjallinu er skammt frá brotsári fram-
hlaupsins sem féll 7. júlí síðastliðinn.
Þá er sprungan á sömu slóðum og
hrunið sem varð úr toppi fram-
hlaupsins þann 13. júlí sl., nánar til-
tekið í innanverðu skriðusárinu, seg-
ir á vef Veðurstofunnar.
Spildan sem hefur losnað frá brún
fjallsins er á bilinu 50-150 þúsund
rúmmetrar. Ekki er talið að hrun af
þessari stærðargráðu geti borist
langt niður á láglendi. Mun efnið lík-
lega falla ofan á framhlaupsurðina
sem myndaðist í júlí, að því er kemur
fram í frétt Veðurstofunnar. Þá
bendir Veðurstofan á að algengt sé
að hreyfingar eða hrun eigi sér stað í
sárum þar sem framhlaup eða stórar
skriður hafa orðið. Því er ástæða til
að ítreka að fólk ætti ekki að vera í
næsta nágrenni við skriðuna. ax-
el@mbl.is
Stór sprunga í
Fagraskógarfjalli
Rétt innan við skriðusárið í fjallinu
Ljósmynd/Jens Þór Sigurðarson
Hreyfing Ný sprunga hefur mynd-
ast í Fagraskógarfjalli í Hítardal.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það er ekki gott að segja hvað
veldur en þetta er í fyrsta skipti á
þeim 20 árum sem ég hef fylgst
með sem þessir hvalir synda inn
fyrir brúna í Kolgrafafirði,“ segir
Einar Þór Strand, formaður svæð-
isstjórnar Landsbjargar á Snæ-
fellsnesi, um grindhvalavöðu sem
heldur sig í firðinum.
Einar segir að þegar síldin sótti
Kolgrafafjörð heim árin 2013 og
2014 þá hafi háhyrningar, höfr-
ungar og hnísur dólað fyrir utan
brúna og ekki hafi farið á milli
mála að síldin var á flótta inn
fjörðinn undan hvölum og nóta-
skipunum.
Einar segir að hvalir hafi synt
mun oftar á land í Snæfellsbæ,
Ólafsfirði, Rifi og á Hellissandi.
Fyrir rúmu ári hafi yfir 100 hvalir
verið reknir frá landi við Bug,
austan við Ólafsvík.
Grindhvalirnir komnir aftur
Hvalirnir sem voru innlyksa í
Kolgrafafirði, sem er næsti fjörður
við Grundarfjörð á norðanverðu
Snæfellsnesi, voru reknir af björg-
unarsveitarmönnum úr firðinum á
sunnudagskvöld.
Adam var ekki lengi í Paradís
því grindhvalavaðan var mætt aft-
ur í Kolgrafafjörðinn í gærmorg-
un.
Mbl.is greindi frá því að einn
hvalur hefði synt of nærri landi og
fest sig í fjörunni en hann var los-
aður með aðstoð manna á bátum.
Hefur ekki gerst áður
Grindhvalir inn-
an brúar í Kolgrafa-
firði Aftur í gær
Morgunblaðið/Hallur Már
Björgun Grindhvalir sem heimsóttu Kolgrafafjörð voru reknir úr firðinum.
Þeir virtust ekki sáttir við brottreksturinn og komu aftur til baka.
Umhverfisstofnun stóð nýlega fyrir
úttekt á húðsnyrtivörum sem upp-
runnar eru frá löndum utan Evr-
ópska efnahagssvæðisins. Farið var
til 9 birgja sem
eru umsvifamiklir
í þeim innflutn-
ingi og voru alls
32 vörur skoð-
aðar. Úttektin
leiddi í ljós að 12
vörur eða 38%
reyndust ekki
uppfylla alfarið
skilyrði löggjafar
EES. Greint er
frá niðurstöð-
unum á vef stofnunarinnar. Athug-
unin hefur þannig leitt í ljós brota-
lamir gagnvart löggjöf EES um
snyrtivörur.
Engin bönnuð innihaldsefni
„Í þessu tilfelli voru engin bönnuð
innihaldsefni þannig það ætti ekki að
vera nein hætta út frá þeim. En þess-
ir aðilar utan EES sem varan er upp-
runnin hjá eru ekki að sjá til þess að
þau skilyrði sem þurfa að vera til
staðar samkvæmt reglugerð séu upp-
fyllt,“ sagði Einar Oddsson, sérfræð-
ingur á sviði sjálfbærni hjá Umhverf-
isstofnun, í samtali við mbl.is í gær.
Sameiginleg löggjöf landa innan
EES-svæðisins hefur það markmið
að tryggja að snyrtivörur sem boðnar
eru fram á markaði séu öruggar fyrir
heilbrigði manna við eðlileg notk-
unarskilyrði. Áður en snyrtivara er
markaðssett á EES skal tilnefna
ábyrgðaraðila innan þess. Sá aðili
hefur m.a. þá skyldu að skrá vöruna í
snyrtivöruvefgátt ESB, setja saman
vöruupplýsingaskjal og tryggja að
merkingar á vörunni uppfylli reglur.
Einar sagði að slíkt væri gert til þess
að ljóst væri hvar ábyrgð hvíldi ef
eitthvað kæmi upp á. Þá bendir hann
á að einhver tilfelli hafi komið upp
þar sem verið er að markaðssetja
vörur frá aðilum utan EES og þessi
skilyrði eru ekki uppfyllt.
Birgjum þeirra vara sem uppfylltu
ekki skilyrði er gefinn úrbótafrestur.
Ef ekki verður af úrbótum innan
frestsins getur UST gripið til þving-
unarúrræða. axel@mbl.is
38% upp-
fylla ekki
skilyrði
UST gerði úttekt
á húðsnyrtivörum
Snyrtivörur Birgj-
um gefinn frestur.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Tannlæknafélag Íslands og Sjúkra-
tryggingar Íslands (SÍ) munu eiga
sinn fyrsta samningafund kl. 17 í
dag, en stefnt er að nýjum samningi
um tannlækningar aldraðra og ör-
yrkja sem á að taka gildi 1. sept-
ember nk. Síðasti samningur um
tannlækningar aldraðra og öryrkja á
grundvelli laga um sjúkratryggingar
rann út árið 2004, skv. vef SÍ.
Upphaflega stóð til að samningur
um þjónustuna tæki gildi 1. júlí sl.,
en samningsgerðin hefur verið
vandasöm og tekið lengri tíma en
ætlað var.
Samhliða nýjum samningi um
tannlækningar aldraðra og öryrkja
áforma stjórnvöld að stórhækka ár-
legt framlag til málaflokksins og er
áætlað að árleg fjárveiting til
greiðsluþátttöku vegna þjónustunn-
ar hækki úr tæpum 700 m.kr. í 1.700
m.kr. eða um rúm 140%.
Elín Sigurgeirsdóttur, formaður
Tannlæknafélags Íslands, sagði í
samtali við Morgunblaðið að næðust
samningar við félagið yrðu allir fé-
lagsmenn, sem eru flestir tannlækn-
ar á Íslandi, aðilar að samningnum
þegar hann yrði undirritaður. Hún
vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
málið, þar sem það væri á viðkvæmu
stigi og framundan væru samninga-
fundir við SÍ, en að hún fagnaði því
að stjórnvöld vildu stíga skref í þá
átt að bæta kjör og tannheilsu aldr-
aðra og öryrkja með auknum fram-
lögum og nýjum samningi.
Fyrsti fundur af a.m.k. fjórum
Ómar Oddgeirsson, sérfræðingur
í samningum hjá SÍ, segir að fund-
urinn í dag sé sá fyrsti en til standi
að eiga annan fund á fimmtudaginn
nk. og aftur þriðjudag og fimmtudag
í næstu viku.
Sjúkratryggingar Íslands tóku
saman skýrslu um tannlækningar
aldraðra og öryrkja árin 2004–2017.
Í henni er m.a. að finna heildarkostn-
að þjónustunnar, verðlagningu,
verðþróun og þróun greiðsluþátt-
töku sjúkratrygginganna, en í
skýrslunni er staðfest að hlutfall
greiðsluþátttöku SÍ í tannlækna-
kostnaði þessara hópa hefur dregist
mjög saman á tímabilinu.
Fundað með tannlæknum
Stefnt er að nýjum greiðsluþátttökusamningi fyrir aldraða og öryrkja fyrir 1.
september Tannlæknafélag Íslands mun semja fyrir hönd sinna félagsmanna
Malbikað var í gær frá vegamótunum við Hellisheiðarvirkjun að Skíðaskál-
anum í Hveradölum. Umferð bifreiða var beint um Þrengslaveg meðan
stóð á malbikuninni sem reiknað var með að lyki um miðnætti í gærkvöldi.
Þrátt fyrir að malbikunarframkvæmdir geti valdið óþægindum og lengt
ferðatíma fagna ferðaþjónustuaðilar sem þurfa að nota þjóðvegi landsins
löngu tímabæru viðhaldi á þeim.
Morgunblaðið/Eggert
Malbikunarframkvæmdir á fullu á Hellisheiði