Morgunblaðið - 14.08.2018, Page 4
Lundi Tóti í fótboltatreyju sem hann fékk
þegar Ísland keppti á Evrópumeistaramótinu.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Hinn víðfrægi Tóti lundi hefur kvatt þennan
heim fyrir fullt og allt. Tóti bjó á Sæheimum,
fiska- og náttúrugripasafni Vestmannaeyja,
frá því að hann var pysja, en hann var sjö ára
þegar hann féll frá. Tóti átti aðdáendur um
allan heim og eru þess augljós merki á ferða-
síðunni Trip Advisor. Þar dásamar ferðafólk
hann og gjarnan er hann sagður hápunktur
heimsóknarinnar á safnið.
„Ef þú ferð til Vestmannaeyja skaltu ekki
missa af því að hitta Tóta og vini hans,“ skrif-
ar Steve Baltimore til að mynda á ferðasíð-
una. „Þú munt elska Tóta lunda,“ skrifar
Nicole K.
„Það besta við Sædýrasafnið var að hitta
Tóta og að sjá fótboltatreyjurnar hans,“ skrif-
ar Remington R, en Tóti átti nokkrar fótbol-
tatreyjur sem hann klæddist á tyllidögum.
Í Sæheima er komið með veikburða pysjur
sem dvelja þar uns þær að ná sér á strik. Ef
það gengur mjög hægt er ekki hægt að sleppa
þeim aftur út í náttúruna.
Tóti er áberandi á Fésbókarsíðu Sæheima,
þar sem hann tekur upp á ýmsu. Til að mynda
gaf hann leikmönnum handknattleiksliðs ÍBV
góð ráð áður en félagið spilaði við FH fyrr í
sumar.
Í færslu á Fésbókarsíðu Sæheima er mikilli
sorg lýst yfir vegna fráfalls Tóta.
„Hans verður sárt saknað bæði af starfs-
fólkinu og lundavinum hans á safninu. Tóti
var hvers manns hugljúfi og átti aðdáendur
um allan heim sem munu sömuleiðis sakna
þessa ljúfa lunda. Tóti var lítill lundi, með
stórt hjarta sem gladdi marga.“
„Lítill lundi með stórt hjarta“
Lundinn heimsfrægi Tóti fallinn frá Hafði dvalið á Sæheimum frá því að hann var pysja
Hápunktur heimsóknar ferðafólks á Sæheima var gjarnan að hitta Tóta Mikil sorg á Sæheimum
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
Í samtali við Morgunblaðið fyrir þremur
árum skýrði Margrét Lilja Magnúsdóttir,
safnstjóri Sæheima, blaðamanni frá því að
Tóti væri nefndur eftir knattspyrnumann-
inum Þórarni Inga Valdimarssyni sem er
kallaður Tóti. „Daginn sem unginn kom á
safnið var fótboltaleikur á Hásteinsvelli
og skoraði Tóti eina mark leiksins og
tryggði Eyjamönnum sigur.“
Nefndur eftir
fótboltamanni
LEIKUR VARÐ TIL NAFNGIFTAR
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ríkisstjórnin samþykkti á ríkis-
stjórnarfundi á föstudag að hefja
mætti viðræður við eigendur Jóns-
tóttar, vestan Gljúfrasteins og Kald-
árkvíslar, með það að markmiði að
þar verði í framtíðinni byggt upp
Laxnesssetur. Lögðu forsætis-, fjár-
mála- og efnahags og mennta- og
menningarmálaráðherra fram sam-
eiginlegt minnisblað um málið.
Starfshópur sem skipaður var í
árslok 2016 og fylgdi eftir ályktun
Alþingis um byggingu Laxness-
seturs frá 2. júní 2016, taldi heppi-
legast að byggja setrið á grunni
Jónstóttar, þ.e.a.s. í áföngum með
endurbótum og endurbyggingu á því
húsnæði, í samræmi við þarfir
Laxnessseturs.
Fjórtán ár eru frá því að Gljúfra-
steinn, heimili nóbelskáldsins Hall-
dórs Laxness, var opnaður sem safn.
Ríkið keypti Gljúfrastein árið 2002
þegar öld var liðin frá fæðingu Hall-
dórs.
Skrifstofan í hitaveituklefa
Í svari mennta- og menningar-
málaráðuneytisins við fyrirspurn
Morgunblaðsins segir að smæð húss-
ins á Gljúfrasteini hafi frá upphafi
takmarkað möguleika á safnastarfi.
Þar segir að húsið sé safngripur í
sjálfu sér og hefur öll starfsemi farið
fram í því að frátöldum sýningum
sem unnar hafa verið í samstarfi við
aðra.
Til bráðabirgða var gripið til þess
ráðs að nýta bílskúr fyrir móttöku,
miðasölu og safnbúð. Þá var ljóst frá
upphafi að aðstaða starfsfólks væri
ekki viðunandi, en skrifstofurými
var útbúið í hitaveituklefa hússins.
Laxnesssetur
í farvatninu
Ríkisstjórnin samþykkti að hefja
mætti viðræður við eigendur Jónstóttar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gljúfrasteinn Blómlegt menningarlíf er á Gljúfrasteini allt árið um kring. Þar hélt hljómsveitin Pollapönk stofu-
tónleika um helgina og um mánaðamót var opnuð Auðarsýning, um Auði Laxness, eiginkonu Halldórs Laxness.
Að mörgu er að hyggja í höfuðborg. Ýmis tæki
og tól létta starfsmönnum lífið þegar kemur að
því að þrífa fjölmargar gangstéttir í henni
Reykjavík.
Ungur starfsmaður setur öryggið greinilega á
oddinn og notar eyrnaskjól og augnhlífar til þess
að koma í veg fyrir skaða sem orsakast gæti
vegna notkunar á hreinsitækinu.
Fallega grænt grasið ber merki þess að það
hafi fengið næga vökvun í sumar.
Það er um að gera að nota tækifærið á meðan
þurrt er til þess að hreinsa til í borginni.
Hreinsun í Reykjavíkurborg
Morgunblaðið/Hari
Gangstéttir þrifnar með sérstökum vélum
Aldrei hafa fleiri
verið á Fiskideg-
inum mikla á Dal-
vík en um síðustu
helgi sé tekið mið
af talningu á öku-
tækjum, segir í
frétt á vef Vega-
gerðarinnar.
Um helgina
fóru um 27.500
bílar um talning-
arstaði Vegagerðarinnar og er þann-
ig reiknað með að um 36 þúsund
manns hafi heimsótt Dalvík um liðna
helgi, að því er kemur fram í frétt
Vegagerðarinnar. Það eru um þrjú
þúsund fleiri en í fyrra, eða 6,5%
aukning, og 11 þúsund fleiri en árið
2008 en það ár hóf Vegagerðin fyrst
að mæla fjölda þeirra bíla sem aka til
og frá Dalvík um fiskidagshelgina.
Umferðin er mæld frá föstudegi til
sunnudags, segir á vef Vegagerðar-
innar.
Vel viðraði á Dalvík um helgina og
margir tóku þátt í glæsilegri hátíð-
ardagskrá og heimamenn sem og
gestir gæddu sér á fiskisúpum Dal-
víkinga. Hátíðin náði hápunkti á
laugardag með stórtónleikum og
glæsilegri flugeldasýningu.
axel@mbl.is
Metfjöldi á
Fiskideg-
inum í ár
Yfir 27 þús. bílar
Gestir Þúsundir
mættu á Dalvík