Morgunblaðið - 14.08.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
Sumir fjölmiðlar hafa mestanáhuga á frétt sem þeir telja
sér trú um að sé innan seilingar.
Skrítnar vorufréttirnar
um tilvonandi
fréttir af fjölda-
fundum „þjóð-
ernisofstæk-
ismanna“ í nágrenni Hvíta
hússins. Eftir mikinn uppslátt og
skrif þar sem forsetanum var
færður þessi félagsskapur til
eignar með kröfum um opinbera
fordæmingu hans (sem hann lét
undan) hófst fundurinn.
Slegið var á að nærri þrjátíufundarmenn hafi mætt.
Fjölmargar þekktar mótmæl-endasveitir vestra, sem köll-
uðu sig af þessu tilefni andfas-
ista, mættu til að andæfa
ofstækinu sem fer helst undir
fána „suðurríkjanna“ sem voru úr
sögunni 1865.
Andfasistarnir voru með tölu-verðan hávaða og margir
þeirra huldu andlit sitt af óupp-
lýstum ástæðum. Lögreglan telur
að þeir hafi verið um 100 sinnum
fleiri en voru í hópnum sem öll
hættan stóð af.
Páll Vilhjálmsson bendir á „að30 manna ,,fjöldafundur“
hægriöfgamanna er stórfrétt
vegna þess að fjölmiðlar bjuggu
til væntingar um að fasismi/
kynþáttahyggja sé vaxandi. Fjöl-
miðlaöfgar, að sjá fasisma og
kynþátthatur í hverju horni, er
tilbúningur frjálslyndra vinstri-
manna sem geta ekki á sér heil-
um tekið eftir Brexit og sigur
Trump.
Fjölmiðlafasisminn er öfga-
viðbrögð við pólitískri þróun sem
ekki er ráðandi öflum að skapi.“
Fjórar tær
héldu fund
STAKSTEINAR
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
styrkur - ending - gæði
Eldhúsinnréttingar
hÁgÆÐa dansKar
OpiÐ:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Lokað á laugardögum í sumar
úrVal innréttingaViÐ hönnum Og tEiKnum VönduÐ gÆÐaVaragOtt sKipulag
Veður víða um heim 13.8., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Bolungarvík 16 léttskýjað
Akureyri 14 léttskýjað
Nuuk 10 skýjað
Þórshöfn 12 rigning
Ósló 21 heiðskírt
Kaupmannahöfn 18 rigning
Stokkhólmur 19 heiðskírt
Helsinki 18 heiðskírt
Lúxemborg 19 skúrir
Brussel 18 skúrir
Dublin 18 skýjað
Glasgow 16 rigning
London 23 skúrir
París 23 skýjað
Amsterdam 19 skúrir
Hamborg 24 heiðskírt
Berlín 26 rigning
Vín 31 heiðskírt
Moskva 19 léttskýjað
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 34 léttskýjað
Barcelona 27 þrumuveður
Mallorca 30 léttskýjað
Róm 29 þrumuveður
Aþena 29 heiðskírt
Winnipeg 21 alskýjað
Montreal 25 skýjað
New York 22 rigning
Chicago 22 þoka
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:17 21:49
ÍSAFJÖRÐUR 5:07 22:08
SIGLUFJÖRÐUR 4:50 21:52
DJÚPIVOGUR 4:43 21:22
Þrír franskir
ferðamenn sem
gerðust sekir um
utanvegaakstur á
vegi F910 á svo-
kallaðri austur-
leið inni á Möðru-
dalsöræfum á
laugardag
greiddu hver um
sig 100 þúsund
krónur í sekt í
gærmorgun á lögreglustöðinni á Eg-
ilsstöðum. Alls voru ferðamennirnir
sex talsins í þremur jepplingum á
leið á hálendið en óku tiltekna leið til
að komast í Kverkfjöll og á Öskju.
Ferðamennirnir komust ekki yfir
vað á Þríhyrningsá og brugðu því á
það ráð að fara út fyrir veginn og yf-
ir ána á öðrum stað.
Að sögn varðstjóra lögreglunnar á
Austurlandi voru tveir mannanna
ánægðir með málalokin en sá þriðji
var ekki eins sáttur. Hann var
óánægður vegna þess að hann vissi
ekki að það mætti ekki keyra utan-
vegar á Íslandi, fyrr en hann var bú-
inn að því. Var honum bent á að
kynna sér aðstæður áður en haldið
væri af stað í ókunnugu landi.
Greiddu
300 þúsund
kr. í sekt
Einn ferðamaður
ósáttur við málalok
Brot Sektir eru frá
50-500 þúsund kr.
ÁTVR hefur tekið í notkun nýjar
dósir undir íslenskt neftóbak. Sig-
rún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarfor-
stjóri ÁTVR, segir að hugsunin að
baki hinum nýju dósum sé að þær
megi innsigla. Enn er beðið eftir því
að hönnun á lokum dósanna ljúki, en
prófanir á plasti í þau hafa dregist
nokkuð. Þar til þeirri vinnu lýkur
verða gömul lok notuð.
„Við erum búin að taka dósirnar í
notkun. Það er minniháttar breyting
á þeim, nýr kantur. Síðan eigum við
enn eftir að klára þessi innsiglismál,
en þau hafa tekið aðeins lengri tíma
en við hefðum kosið. Við vinnum að
þessu eins hratt og við getum,“ segir
hún. Hinum nýju lokum mun svipa
mjög til þeirra eldri utan kants svo
innsigla megi dósina.
Fréttir birtust nýverið af því að
átt hefði verið við innihald tóbaks-
dósa ÁTVR áður en þær rötuðu í
hendur kaupenda. Sigrún Ósk segir
að það sé æskilegast að hægt sé að
innsigla vöruna. „[Tóbaks]hornin
eru þegar komin með innsigli og nú
á aðeins eftir að klára dósirnar.“
Útlit merkimiða á tóbaksdósinni
er einnig breytt og enn hefur verið
aukið við varnaðarorð á henni.
„Við breyttum líka aðeins útlitinu
og bættum við aðvörunarorðum um
að tóbakið væri ekki ætlað fyrir
munn. Þetta eru minniháttar breyt-
ingar á útliti,“ segir hún. jbe@mbl.is
Nýjar neftóbaksdósir teknar í notkun
Gömul lok á dósunum fyrst um sinn Varnaðarorðum á merkingum fjölgað
Ljósmynd/Birkir Grétarsson
Dós Neftóbaksdós með gömlu loki.