Morgunblaðið - 14.08.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
Glæsilegt úrval
af trúlofunar- og
giftingarhringa-
pörum
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
Verð á pari: 239.181 kr.
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Lögreglukona var flutt með sjúkra-
bíl á slysadeild Landspítalans eftir
að maður í annarlegu ástandi veittist
að henni og öðrum lögreglumanni á
gatnamótum Grensásvegar og
Miklubrautar rétt fyrir hádegi í
gær. Var konan flutt blóðug í andliti
á slysadeild, en ekki liggur fyrir
hversu alvarleg meiðslin eru. Ekki
fengust frekari upplýsingar um líðan
konunnar í gærkvöldi.
Maðurinn var handtekinn
Fjöldi vitna var að atvikinu og
reyndi eitt þeirra að koma lögreglu
til aðstoðar vegna meiðslanna.
Nokkrir lögreglubílar voru sendir á
vettvang þegar til átaka kom milli
mannsins og lögreglu. Tókst lög-
reglu að snúa manninn á endanum
Ljósmynd/Aðsend
Grensásvegur Vegfarandi og lögreglumaður hlúa að lögreglukonunni sem
særðist á vettvangi eftir að maður í annarlegu ástandi veittist að henni.
Lögreglukona flutt
meidd á slysadeild
Handtekinn Lögreglumenn voru fljótir að yfirbuga manninn.
niður og var hann í kjölfarið fluttur í
fangageymslur á lögreglustöð.
Tilkynning frá lögreglu
Lögreglan sendi frá sér tilkynn-
ingu í tengslum við málið skömmu
eftir hádegi í gær þar sem kemur
fram að skömmu fyrir hádegi í gær
hefði lögreglan fengið tilkynningu
um mann í annarlegu ástandi á
Grensásvegi. „Er lögregla kom á
vettvang brást maðurinn ókvæða við
afskiptum lögreglu og veittist að
þeim. Í átökunum féllu lögreglu-
mennirnir og maðurinn í götuna með
þeim afleiðingum að annar lögreglu-
mannanna skall harkalega með höf-
uðið í götuna og vankaðist við það.
Hann var í framhaldi fluttur með
sjúkrabifreið á Slysadeild til að-
hlynningar og er þar ennþá til skoð-
unar,“ sagði enn fremur í tilkynn-
ingu frá lögreglu.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skuldir ríkissjóðs hafa lækkað um
88 milljarða síðustu 12 mánuði. Þær
voru 946 milljarðar í ágúst í fyrra-
sumar en eru nú
858 milljarðar.
Samkvæmt
upplýsingum frá
Seðlabankanum
eru tvær megin-
skýringar á þess-
ari lækkun.
Annars vegar
hafi staða
ríkisskulda-
bréfsins RIKH
18 1009 lækkað
úr 139 milljörðum að nafnvirði í
ágúst 2017 í 17 milljarða í ágúst
2018, eða um 122 milljarða. Um sé
að ræða skuldabréfaflokk sem gef-
inn var út 2008 til að endurfjár-
magna bankana eftir efnahagshrun-
ið 2008. Seðlabanki Íslands f.h.
ríkissjóðs hafi undanfarna 12 mán-
uði keypt þennan flokk til baka.
Hann hafi aðallega verið í eigu bank-
anna. Þannig hafi bankar og spari-
sjóðir átt slík skuldabréf fyrir rúm-
an 121 milljarð í ágúst 2017 en eigi
nú slík bréf fyrir rúma 14 milljarða.
Úr 83 í 52 milljarða
Hins vegar hafi ríkissjóður keypt
til baka, með uppboðsfyrirkomulagi,
óverðtryggð bréf í ríkisbréfaflokkn-
um RIKB 19 sem er á gjalddaga 22.
febrúar 2019. Stærð flokksins var 83
milljarðar í ágúst 2017 en er nú 52
milljarðar.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir aðspurður
að jákvæðu áhrifin af þessu fyrir
ríkissjóð séu ekki að fullu komin
fram.
„Þetta hefur verulega mikla þýð-
ingu fyrir vaxtabyrði ríkissjóðs.
Reyndar höfðum við ákveðnar
vaxtatekjur af Arion-bréfinu, sem
hverfa þá við uppgreiðsluna. En
mestu skiptir að okkur er að takast
að lækka skuldastöðu ríkissjóðs um
mörg hundruð milljarða þessi árin.
Á sama tíma er hagkerfið í örum
vexti. Þannig að skuldahlutföll okk-
ar hafa hrunið á undanförnum árum.
Vegna þessa hefur okkur tekist að fá
betri lánakjör á mörkuðum en dæmi
eru um. Við höfum náð að nýta lágt
vaxtaumhverfi til að tryggja góð
kjör á grundvelli betra lánshæfis-
mats. Allar okkar áætlanir fram í
tímann eru mun trúverðugri með
þessa skuldastöðu,“ segir Bjarni.
Salan á Arion vegur þungt
Hann segir svigrúm ríkissjóðs til
að greiða niður þessar skuldir skýr-
ast að mestu leyti af sölu á hlut rík-
isins í Arion banka og inngreiðslu á
skuldabréf ríkisins vegna Arion
banka. Ríkissjóður hefur greitt
hundruð milljarða í vexti frá hruni.
Heildarskuldir ríkissjóðs í milljónum króna
Í ágúst 2008 til 2018 á verðlagi hvers árs
Skuldir samtals (milljarðar króna) Hlutfall skulda af vergri landsframleiðslu
1.500
1,200
900
600
300
0
5
4
3
2
1
0
100%
80%
60%
40%
20%
0%
2013 2014 2015 2016 2017 2018 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Heimild: Seðlabankinn. Útreikningar: Morgunblaðið.
*Skv. Hagstofu Íslands.
2013 2014 2015 2016 2017 2018
Óverðtryggðar skuldir 626.875 814.451 828.022 758.759 595.601 493.804
Verðtryggðar skuldir 423.202 258.809 255.970 233.930 246.796 249.102
Erlendar skuldir 400.685 394.220 373.066 219.378 103.642 114.626
Samtals 1.450.762 1.467.481 1.457.058 1.212.067 946.039 857.533
Íbúafjöldi 1. janúar umrætt ár* 321.857 325.671 329.100 332.529 338.349 348.450
Skuldir á hvern landsmann 4,51 4,51 4,43 3,64 2,80 2,46
Hlutfall skulda af vergri landsframleiðslu 84,9% 77,9% 66,2% 50,8% 36,3% 31,5%
Hlutfall hreinna skulda af vergri landsfr. 51,5% 47,2% 40,2% 34,1% 30,2% 24,1%
84,9%
51,5%
31,5%
24,1%
858
1.451
Hlutfall hreinna skulda
Hlutfall heildarskulda
Skuldir á hvern lands-
mann í milljónum
Ríkisskuldir lækka hratt
Ríkið kaupir til baka bréf tengd endurfjármögnun banka
Fjármálaráðherra segir jákvæð áhrif ekki öll komin fram
Bjarni
Benediktsson
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir að vinnu við
gerð nýs fjárlagafrumvarps fyrir
næsta fjárlagaár miði ágætlega.
Þegar fimm ára fjárhagsáætlun
ríkisstjórnarinnar var kynnt í vor
kom fram að gert væri ráð fyrir því
að tekjuskattur einstaklinga lækk-
aði í neðra skattþrepi um eitt pró-
sentustig í áföngum á áætlunartím-
anum.
Fjármálaráðherra segir að þau
áform séu óbreytt.
„Við getum ekki mikið gert í
skattalækkunum núna. Við ætlum
að lækka tryggingagjaldið og eins
og kunnugt er, er talað um eins pró-
sentustigs lækkun á neðra þrepi
tekjuskatts á einstaklinga, í áföng-
um á kjörtímabilinu,“ sagði Bjarni í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Það er gengið út frá því í
stjórnarsáttmála og í fimm ára fjár-
málaáætluninni að tekjuskattur ein-
staklinga geti lækkað á kjörtíma-
bilinu.
En jafnframt lækkun tekjuskatts
höfum við viljað skoða samspil bóta-
kerfanna við tekjuskattskerfið,“
sagði Bjarni.
Greiningarvinna stendur yfir
Fjármálaráðherra segir að grein-
ingarvinna sérfræðinga ríkis-
stjórnarinnar á samspili bótakerf-
anna við tekjuskattskerfið standi nú
yfir. „Þeirri vinnu verður ekki lokið
fyrr en eftir að fjárlagafrumvarpið
verður lagt fram í haust,“ sagði
Bjarni enn fremur.
Samspil bóta-
kerfa og skatta
Unnið er að greiningu í ráðuneytinu
Morgunblaðið/Þorkell
Fjárlög 2019 Þau eru nú vinnslu í
fjármálaráðuneytinu.