Morgunblaðið - 14.08.2018, Síða 11
Vinna gerðardóms, sem skipaður
var í kjaradeilu ljósmæðra, gengur
vel, að sögn Magnúsar Péturssonar,
formanns gerðardóms. Stefnt er að
því að gerðardómur ljúki störfum
fyrir 1. september næstkomandi,
líkt og lagt var upp með þegar hann
var skipaður í lok júlí.
„Þessi vinna gengur bara nokkuð
vel. Við höfum hitt deiluaðila ásamt
fleirum,“ segir Magnús í samtali við
mbl.is. Margir fundir hafa því átt sér
stað nú þegar og töluvert fleiri munu
eiga sér stað áður en vinnunni lýkur.
Auk Magnúsar skipa gerðardóm
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, for-
stöðumaður Félagsvísindastofnunar
Háskóla Íslands, og Bára Hildur Jó-
hannesdóttir, deildarstjóri mönn-
unar- og starfsumhverfisdeildar
Landspítala og ljósmóðir.
Fram kom í Morgunblaðinu í lok
júlí að ljósmæðradeilan hefði að mati
Bryndísar Hlöðversdóttur ríkis-
sáttasemjara verið einstaklega
ströng og snúin. Fagnaði hún því að
miðlunartillaga hennar um gerðar-
dóminn hefði hlotið hljómgrunn hjá
báðum deiluaðilum.
Niðurstaða gerðardóms er end-
anleg og ekki er hægt að áfrýja
henni.
Gerðardómur að störfum
Morgunblaðið/Eggert
Kjaradeila Ljósmæðradeilan var
ákaflega ströng og snúin.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
ljósum
erð 4.995
Stærðir 23-32
Pollastígvél
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
tígvél meðS
Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® vinnur gegn
stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra.
Með þér í liði
Alfreð Finnbogason
Landsliðsmaðu attspyrnu
„Tækifærið er núna.“
r í kn
Registered trademark
licensed by Bioiberica
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
1000.-
2000.-
3000.-
4000.-
5000.-
Síðustu dagar
útsölunnar
Algjört verðhrun
aðeins 5 verð:
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta breytir öllu. Þær þrjár vikur
sem ég hef verið að berjast í þessu
fóru fyrir lítið og það er gott. Við-
urkenningin á því að Norðmenn
beri sjálfir ábyrgðina sem kaup-
endur vörunnar er þó sætust,“ segir
Ingólfur Helgason, bóndi á Dýr-
finnustöðum í Skagafirði, sem unnið
hefur með fleirum að útflutningi
heys til Noregs. Norska mat-
vælastofnunin, Mattilsynet, hefur
nú komist að þeirri niðurstöðu að
heilbrigðisvottorð Matvælastofn-
unar á Íslandi þurfi ekki að fylgja
sendingum til Noregs, eins og áður
var krafist.
Lögfræðingar Mattilsynet kom-
ust að þeirri niðurstöðu að útflutn-
ingur á heyi frá Íslandi félli undir
ákvæði um frjálst flæði vöru innan
evrópska efnahagssvæðisins. Vegna
þess þyrfti ekki að gefa út
heilbrigðisvottorð á Íslandi og ekki
væru heldur takmarkanir á því
hvaða uppskipunarhafnir væru not-
aðar í Noregi.
Má ekki vera hættulegt heilsu
Þeir sem kaupa heyið til Noregs
og þeir sem útvega það hér hafa
staðið í stappi við eftirlitsstofnanir í
báðum löndum um innflutningsregl-
urnar, sem þeim fannst óþarflega
stífar. Þess var meðal annars krafist
að veittar yrðu nákvæmar upplýs-
ingar um það hvaðan hver og ein
rúlla kæmi þannig að hægt væri að
gæta þess að ekki færi hey úr skil-
greindum varnarhólfum vegna riðu
eða af bæjum þar sem garnaveiki
hefur greinst. „Ákvörðunin breytir
stöðu málsins verulega. Útflutn-
ingur á heyi til Noregs er því á
ábyrgð þess sem kaupir heyið frá
Íslandi og flytur það síðan til Nor-
egs,“ segir í tilkynningu sem
Matvælastofnun sendi frá sér í gær.
Mattilsynet hefur þó gefið út til-
mæli um að heyið megi ekki vera
hættulegt heilbrigði manna og dýra
eða stefna heilsu afurðagefandi
dýra í hættu þannig að afurðir
þeirra verði óhæfar til manneldis.
Þá má það ekki innihalda plöntu-
skaðvalda, óæskilegar plöntur eða
spírunarhæf fræ af slíkum plöntun.
Treystir sínum bændum
Ingólfur segir að fulltrúar kaup-
enda hafi farið um landið og vilji
kaupa hey frá góðum framleið-
endum, jafnvel þótt þeir séu innan
skilgreindra varnarhólfa vegna riðu.
„Við förum ekki á þá bæi eða svæði
þar sem nýjustu riðutilfellin eru.
Norðmenn miða við að riða hafi ekki
komið þar upp síðastliðin tíu ár.
Hann segir að ákvörðun Mat-
tilsynet og Mast létti mjög vinnuna
við útflutninginn. Varðandi það
hvernig gæði heysins verði tryggð
segir Ingólfur að hann þekki alla þá
bændur sem hann kaupir hey af og
treysti þeim til að láta frá sér góða
vöru.
Frjáls útflutn-
ingur á heyi
Norskir kaupendur beri ábyrgðina
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Heyskapur Mikil og góð hey eru á Norðurlandi, eftir gott sprettusumar,
en hætt er við að rúllurnar á Suðurlandi geymi ekki eins góð hey.
Samið hefur verið um útflutning
á 30 þúsund rúllum af Mið-
Norðurlandi til félagasamtaka
bænda í Noregi. Það á allt að
vera nýtt úrvalshey. Jafnframt
er sóst eftir eldra heyi úr hey-
fyrningum bænda frá fyrri ár-
um, en það er sérverkefni. Fleiri
heykaupmenn eru að vinna að
málum annars staðar á landinu.
Ingólfur segir stefnt að því að
fyrsta heyflutningaskipið komi
til Sauðárkróks 25. ágúst eða
fljótlega upp úr því. Framhaldið
ráðist af því hvernig gangi með
fyrsta farminn.
Fyrsta
skipið til
Sauðárkróks
HEYÚTFLUTNINGUR
Allt um sjávarútveg