Morgunblaðið - 14.08.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
Draghálsi 18-26 – 110 Reykjavík – Sími 577 6500 – takk@takk.is www.takk.is
fyrir skóla og fyrirtæki
margar gerðir og stærðir
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Náttúra og umhverfi áþeim leiðum umhverfisLangjökul sem við fór-um um er stórbrotin og
það skapar keppninni sérstöðu og
gerir hana eftirsóknarverða,“ segir
Björk Kristjánsdóttir fram-
kvæmdastjóri Made in Mountains.
Fyrirtækið stóð fyrir WOW Glacier
360° fjallahjólakeppninni sem hald-
in var um helgina. Alls tóku 52 þátt,
það er í 26 tvegga manna liðum.
Auðnir, hraun og skógar
Keppendur í WOW Glacier
360° voru ræstir við Geysi í Bisk-
upstungum á föstudagsmorgun.
Fyrsta daginn fóru þeir fyrst um
veginn í gegnum skógræktarsvæðið
í Haukadal, þaðan svonefndan
Línuveg til vesturs og svo norður
Kaldadal niður í Húsafell í Borg-
arfirði. Næsta dag um Arnarvatns-
heiði og Stórasand norður fyrir
Langjökul á Hveravelli og svo
þriðja og síðasta daginn í Þjófadali,
Hvítárnes og þaðan svo suður Kjal-
veg í mark skammt fyrir ofan Gull-
foss. Alls er þessi leið 290 kílómetr-
ar.
Leggirnir sem hjólafólkið tók
voru 85-110 kílómetrar á dag, en
maraþon kallast það þegar vega-
lengdin sem fjallahjólafólk tekur er
60 kílómetrar eða meira. Að því
leyti hefur Langjökulshringurinn
upp á flest það að bjóða sem fjalla-
hjólafólk sækist eftir; það er að far-
ið er um auðnir, hraun, skóga, ná-
grenni jökla og yfir ár.
Landsvæði og
lengdir pössuðu
Keppt er í karla- og kvenna-
flokki og blönduðum flokki. Þá er
keppt í master-flokki fyrir kepp-
endur sem eru 40 ára og eldri og
grand master-flokki fyrir kepp-
endur 50 ára og eldri. Tæplega
tveir þriðju hlutar keppenda voru
frá útlöndum, m.a. frá Ástralíu, Fil-
ippseyjum, Bandaríkjunum og ýms-
um Evrópulöndum. Fyrstir í mark
voru Eyjólfur Guðgeirsson og Birk-
ir Snær Ingvason sem fóru leiðina á
12:09:41.
Keppnin WOW Glacier 360°
var nú haldin í þriðja sinn.
„Það eru nokkur ár síðan hug-
mynd að þessari keppni kom fyrst
fram. Fólk hafði velt fyrir sér
hvaða landsvæði passaði við þær
vegalengdir sem við höfðum í huga.
Félagi okkar lagði saman tvo og tvo
og sá út hvaða leiðir hentuðu, en
þetta þurfti líka að miðast við gisti-
staði og hvar væri hægt að fá góða
þjónustu. Útkoman varð í raun full-
komin leið fyrir svona keppni,“ til-
tekur Björk sem sjálf er þaulvön
fjallahjólakona er farið hefur víða.
Hefur meðal annars farið ýmsa
búta af Langjökulshringnum, en
aldrei allan. En koma tímar og ráð;
WOW Glacier 360° hefur fest sig í
sessi.
Fjallahringurinn er fullkominn
Hjólafólk af ýmsu þjóðerni fór umhverfis Langjökul í
WOW Glacier 360°. Stórbrotin náttúra og vinsæl
keppni sem var haldin í þriðja sinn nú um helgina.
Ljósmynd/Aðsend
Vaðið Inni á reginfjöllum þurfu keppendur að vaða óbrúaðar árnar og bera hjólin yfir. Sigrast þannig á ýmsum öðr-
um hindrunun sem auðvitað var til að auka á upplifunina sem ferðalag um öræfi Íslands svo sannarlega er.
Upphaf Keppendur taka á rás. Leiðin umhverfis Langjökul er alls 290 kílómetra löng. Prjónað Spyrnan var tekin þegar komið var yfir eina ána á annars skemmtilegri keppnisleið.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Keppnisstjóri Björk Kristjánsdóttir
er þaulvön í hjólasportinu.