Morgunblaðið - 14.08.2018, Page 14
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fyrirtækið AFA JCDecaux hefur
kært verksamning umhverfis- og
skipulagssviðs Reykjavíkurborgar
við félagið Dengsa ehf. Umræddur
verksamningur varðar rekstur
strætóskýla.
Kæran var
send til kæru-
nefndar útboðs-
mála. Kærandi
gerir nokkrar
kröfur í málinu. Í
fyrsta lagi að
kærunefnd út-
boðsmála lýsi
samning við
Dengsa ehf.
óvirkan. Í öðru
lagi að kærunefndin úrskurði að
kærða, þ.e. borginni, beri að bjóða
út verkefnið að nýju. Í þriðja lagi
að kærunefnd útboðsmála láti í ljós
álit sitt á skaðabótaskyldu kærða
gagnvart kæranda. Í fjórða lagi að
kærunefndin ákveði kæranda kæru-
málskostnað úr hendi kærða, kær-
anda að skaðlausu.
Samningurinn rann út
Forsaga málsins er sú að borgin
bauð út rekstur biðskýla fyrir
strætisvagna í opnu útboði í febrúar
sl. Samningur við þáverandi rekstr-
araðila, AFA JCDecaux, rann út 1.
júlí í sumar. Sá samningur var
gerður árið 1998 til 20 ára.
Að þessu sinni var boðinn út
rekstur allt að 400 biðskýla fyrir
strætisvagna og allt að 50 auglýs-
ingastanda. Útboðið var opnað
fimmtudaginn 8. mars. Fjögur
fyrirtæki sýndu áhuga en engin til-
boð bárust. Umhverfis- og skipu-
lagsráð borgarinnar lagði í kjölfarið
fram erindi um heimild til að standa
að samningskaupum. Innkauparáð
borgarinnar samþykkti það 20.
apríl. Hinn 7. júní samþykkti inn-
kauparáð síðan erindi umhverfis- og
skipulagssviðs borgarinnar um
heimild til að semja við fyrirtækið
Dengsa ehf. í kjölfar samninga-
viðræðna. Var vísað til samþykktar
innkauparáðs 20. apríl 2018.
Samningar náðust í júlí
Fram kemur í kæru AFA JCDe-
caux að hinn 9. júlí náðust samn-
ingar milli borgarinnar og Dengsa
ehf. um allt að 400 biðskýli og 50
auglýsingastanda. Lögmanni AFA
JCDecaux barst daginn eftir afrit
af samningnum. Lögmaðurinn sendi
svo bréf, dagsett 12. júlí, til borg-
arinnar og óskaði svara eigi síðar
en kl. 16.00 hinn 17. júlí við nokkr-
um spurningum, með hliðsjón af
knöppum kærufresti (20 dagar).
Þegar kæra AFA JCDecaux var
send hinn 30. júlí hafði lögmaður
ekki fengið svör við spurningunum.
Taldi lögmaðurinn nauðsynlegt að
leggja fram kæruna í tæka tíð, enda
væri fyrirsjáanlegt að svör kærða
myndu ekki liggja fyrir áður en
kærufresturinn rynni út.
Kröfðust upplýsinga
Spurningarnar voru í níu liðum
auk spurninga í undirliðum.
Meðal annars var spurt hvernig
Dengsi uppfyllti skilyrði um þær
kröfur til bjóðanda að „stjórnendur
fyrirtækisins hafi víðtæka reynslu
af uppsetningu, rekstri og viðhaldi
götugagna eins og biðskýla og aug-
lýsingastanda“. Þá var spurt hvaða
sambærileg verkefni Dengsi ehf.
hefði unnið síðastliðinn 10 ár fyrir
Reykjavíkurborg eða annan aðila.
„Það ber að hafa það í huga hér að
með sambærilegu verki er átt við
verkefni svipaðs eðlis og að samn-
ingstími hafi verið a.m.k. 3 ár, skv.
útboðsgögnum,“ segir í kærunni.
Þá var meðal annars óskað upp-
lýsinga um hvernig Dengsi uppfylli
fjárhagslegt hæfi. Um það atriði
segir orðrétt í kærunni: „Í 1. mgr.
71. gr. laga nr. 120/2016 um opinber
innkaup segir að fjárhagsstaða
fyrirtækis skuli vera það trygg að
það geti staðið við skuldbindingar
sínar gagnvart kaupanda. Hér er
ekki verið að setja valkvætt eða frá-
víkjanlegt skilyrði. Skv. gögnum úr
fyrirtækjaskrá hefur Dengsi ehf.
ekki skilað inn ársreikningi fyrir
reikningsárið 2017. Í ljósi þess ósk-
aði kærandi eftir gögnum frá kærða
um fjárhagslegt hæfi Dengsa ehf.
en kærði sinnti ekki upplýsinga-
skyldu sinni,“ segir þar m.a.
Ófullnægjandi stjórnsýsla
Ómar R. Valdimarsson, lögmaður
hjá lögmannsstofunni Norðdahl &
Valdimarsson, fer með málið fyrir
hönd AFA JCDecaux.
Hann segir umbeðin gögn frá
borginni hafa borist félaginu síðast-
liðinn fimmtudag. Það sé mat hans
og umbjóðanda að gögnin séu rýr í
roðinu, svo ekki sé meira sagt.
„Meðal annars var tekið fram í
útboðsgögnum að bjóðandi skyldi á
síðustu 10 árum hafa unnið að full-
nægjandi hætti við eitt sambærilegt
verkefni. Síðan var sagt að með
sambærilegu verki sé átt við verk
svipaðs eðlis og að samningstíminn
hafi að minnsta kosti verið þrjú ár.
Samkvæmt þeim gögnum sem mér
bárust frá borginni leggur þetta
fyrirtæki fram upplýsingar um
snúningsstand sem það setti upp
fyrir íþróttafélagið Hamar. Það get-
ur með engu móti talist sambæri-
legt í skilningi útboðsgagna sem
lágu til grundvallar við samnings-
gerðina. Snúningsstandur annars
vegar og hins vegar 400 strætóskýli
sem sum eru tengd við ljósleiðara
og geta gefið farþegum til kynna
hvar strætóinn er hverju sinni. Það
er ekki sami hluturinn. Það sér það
hver maður.“
Gáfu afslátt af kröfunum
Ómar segir aðspurður það vera
skoðun sína og umbjóðanda síns að
gögnin beri með sér að gefinn hafi
verið afsláttur af hluta þeirra
krafna sem gerðar voru í útboðinu.
Stjórnsýsla borgarinnar sé að-
finnsluverð. „Við sendum 12. júlí
kröfu um að fá afrit af allskonar
gögnum til þess að geta tekið af-
stöðu til þess hvort samið hefði ver-
ið á jafnréttisgrundvelli. Við feng-
um það svar stuttu seinna að vegna
sumarleyfa starfsmanna og anna
væri ekki hægt að fullyrða að hægt
væri að virða tímamörkin sem við
gáfum. Við gáfum þeim vikufrest til
að svara. Hefðu þessi gögn legið
fyrir við samningsgerðina hefði
ekki þurft að afla þeirra sér-
staklega. Það hefði verið hægt að
skanna þetta og senda. Aftur á móti
ber svo við að við fáum engin svör
innan þeirra tímamarka sem við
gáfum og það er ekki fyrr en 9.
ágúst sem það loksins kemur svar.
Þetta er fráleit stjórnsýsla,“ segir
Ómar.
Kæra samningagerð borgarinnar
Ómar R.
Valdimarsson
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Breytingar Nýtt fyrirtæki hefur tekið við rekstri strætóskýla í borginni.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
VÖNDUÐ JEPPADEKK
Á FRÁBÆRU VERÐI
STÆRÐ 315/70R17
49.600,- kr.
STÆRÐ 285/70R17
46.900,- kr.
ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900
WWW.ARCTICTRUCKS.IS
ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR!
Ómar segir grunsemdir forsvarsmanna AFA JCDecaux um ágalla
samningsins hafa reynst réttar. Ágallarnir hafi komið í ljós þegar
síðbúið svar barst frá borginni 9. ágúst, eftir að kæran var lögð fram.
„Þetta hafði þá þýðingu að þegar við sendum kæruna vorum við
svolítið að geta í eyðurnar en það kom svo sem ekki að sök. Við
sjáum það af gögnunum sem við höfum nú fengið afhent að þær eyð-
ur sem við gátum í voru réttilega tómar. Það stóð ekki steinn yfir
steini í gögnunum sem afhent voru eða lágu fyrir við samningsgerð-
ina. Málið snýst fyrst og síðast um þetta: Ef það hefði legið fyrir að
hver sem er hefði getað fengið afslátt af þeim kröfum sem gerðar
voru í upphaflegu útboði hefðu væntanlega fleiri aðilar haft hug á að
taka þátt í því. En niðurstaðan var sú að það tók enginn þátt í útboð-
inu. Við gerum kröfu um að samningurinn verði lýstur óvirkur. Þá þarf
annaðhvort að fara í nýja samningsgerð eða bjóða verkið út að nýju,“
segir Ómar.
Aðrir hefðu sýnt meiri áhuga
URÐU AÐ GETA Í EYÐURNAR
Fram kemur í svari borgarlögmanns
við fyrirspurn lögmanns AFA
JCDecaux að borgin telji Dengsa
ehf. uppfylla reynslukröfur. Fyrir-
tækið hafi enda „bæði framvísað
upplýsingum um reynslu og vottorði
viðskiptavinar eins og gerð var krafa
um í útboðsgögnum“.
Var m.a. vísað til vottorðs frá
Knattspyrnufélaginu Víkingi um að
Dengsi hefði sett upp flettiskilta-
stand við Reykjanesbraut/
Bústaðaveg árið 1999. „Dengsi ehf.
hefur þjónustað flettiskiltastandinn
alla tíð síðan af mikilli fagmennsku
og á þann máta að sómi hefur verið
að,“ sagði í bréfi frá Víkingi.
Jafnframt var vísað til bréfs frá
Dengsa þar sem gerð var grein fyrir
starfseminni. Dengsi, og forveri fé-
lagsins, Þríkantur, hefðu sett upp
stór og smærri flettiskilti á húsgafla
og frístandandi, sérsmíðaða standa.
Skilyrðin væru uppfyllt
Þá sagði í svari borgarlögmanns
að Dengsi ehf. starfrækti
verkstæðisþjónustu og lageraðstöðu
í Dugguvogi 1a. Fyrirtækið starfaði
jafnframt samkvæmt skilgreindu
gæðastjórnunarkerfi og ynni sam-
kvæmt skilgreindri öryggis- og
heilbrigðisáætlun. Var spurt um
þessi atriði. Varðandi fyrirspurn um
fjárhagslegt hæfi var vísað til árs-
reiknings Dengsa árið 2017. Eigið fé
var þá samtals 13,2 milljónir króna.
Spurningu um hvort bjóðandi
væri í skilum með opinber gjöld og
lífeyrissjóðsiðgjöld var á sama hátt
svarað með vísan til gagna.
Varðandi spurningu um undir-
verktaka og iðnmeistara sem Dengsi
ehf. hyggst ráða til verksins segir í
svari borgarlögmanns að ekki hafi
verið gerð krafa um að tilgreindir
væru undirverktakar eða iðnmeist-
arar þegar bjóðandi hygðist ekki
ráða undirverktaka til verksins.
Vísað til gagna um
reynslu Dengsa
Borgarlögmaður svarar lögmanni
Morgunblaðið/Ómar
Ráðhúsið Deilt er um biðskýlin.
Fyrirtækið AFA JCDecaux kærir samning um rekstur biðskýla fyrir strætisvagna í borginni
Lögmaður félagsins segir stjórnsýslu borgarinnar fráleita Bjóða beri út verkefnið að nýju