Morgunblaðið - 14.08.2018, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Heimsleikar íslenska hestsins verða
haldnir í Herning á Jótlandi árið
2021. Tveir kepptu um að halda mót-
ið og tefldu báðir fram sýningar-
svæðinu í Herning. Stjórn FEIF, al-
þjóðasamtaka um íslenska hestinn,
ákvað að semja við nýjan aðila,
Hestar Event ApS, um mótshaldið.
Heimsleikar voru haldnir í Hern-
ing árið 2015 og stóðu þá hestasam-
bönd Norðurlandaríkjanna að þeim,
með danska sambandinu. Fjórir ein-
staklingar standa að Hestar Event
og er Rasmus Möller Jensen, þekkt-
ur kynbóta- og keppnisknapi í Dan-
mörku, í forsvari.
Í Herning er vinsælt sýningar-
svæði þar sem meðal annars eru
haldnar þekktar landbúnaðarsýn-
ingar. Gunnar Sturluson, formaður
FEIF, segir að góð aðstaða sé fyrir
gesti mótsins og mikil veitingaþjón-
usta. Til standi að setja upp nýjan
keppnisvöll nær aðkomunni inn á
svæðið. Á síðasta móti hafi vellirnir
verið lengra frá og hafi verið kvartað
undan því.
Byggja reiðhallir í Berlín
HM verður í Berlín, höfuðborg
Þýskalands, 4. til 11. ágúst á næsta
ári. Gunnar segir að undirbúningur
gangi vel. Það verður á Karlshorst-
hestaíþróttasvæðinu í Lichtenberg,
hinu sama og mótið var haldið á
2013. Nýr eigandi svæðisins er að
byggja hesthús og reiðhallir og á
nýja aðstaðan að vera tilbúin fyrir
mótið.
Það er ekki þýska íslandshesta-
sambandið sem heldur mótið eins og
síðast heldur einkafyrirtæki sem
Carsten Eckert, annar af tveimur
framkvæmdastjórum mótsins 2013,
er í forsvari fyrir.
Í hendur einkafyrirtækja
Gunnar segir að heimsleikarnir
séu almennt að færast frá félaga-
samtökum til einkaaðila. Spurður
um ástæður þess segir hann að mikil
fjárhagsleg áhætta fylgi því að halda
þessi mót og rétt sé að fela þau
einkafyrirtækjum sem standi og falli
með því að vel takist til.
Eitt heimsmeistaramót var haldið
í Hollandi, árið 2017, á milli mótanna
í Berlín og Herning. Spurður hvort
samningar um mótshaldið síðustu
árin þýddu að mótin yrðu haldin til
skiptist á þessum þremur stöðum
kvað Gunnar nei við. Engar ákvarð-
anir hefðu verið teknar um slíkt.
Samið væri um mótshaldið í hvert
skipti.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Heimsleikar Íslenskir áhorfendir fagna keppendum frá upprunalandi íslenska hestsins á mótinu í Berlín sumarið
2013. Búast má við að fjöldi Íslendinga sæki mótin í Berlín á næsta ári og í Herning eftir þrjú ár.
Heimsleikar hestsins í Herning 2021
Nýr keppnisvöllur settur upp nær miðju sýningarsvæðisins Góð aðstaða fyrir gesti og veitinga-
þjónusta Unnið að undirbúningi keppnissvæðisins í Berlín þar sem mótið á næsta ári verður haldið
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Sigurður Ósmann Jónsson, skipu-
lagsfulltrúi sveitarfélagsins Ölfuss,
segist fyrr í sumar hafa óskað eftir
fundi með Skipulagsstofnun vegna
nýs deiliskipulags á Hveradalasvæð-
inu.
Fram kom í frétt hér í Morgun-
blaðinu sl. laugardag, þar sem rætt
var við Ásdísi Hlökk Theodórsdótt-
ur, forstjóra Skipulagsstofnunar, að
nú eftir sumarfrí hjá stofnuninni yrði
afgreiðsla á nýju deiliskipulagi á
Hveradalasvæðinu sett í forgang og
stefnt að því að ljúka afgreiðslu
málsins á allra næstu vikum.
„Þar sem sumarleyfum er nú lokið
hjá Skipulagsstofnun ætla ég að
ítreka þessa fundarbeiðni mína við
Skipulagsstofnun og vonandi kemst
því einhver hreyfing á málið fljót-
lega,“ sagði Sigurður í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um Morgunblaðsins um þetta mál
snýst það um að Hveradalir ehf., þar
sem Þórir Garðarsson, stjórnarfor-
maður Grey Line, er í forsvari, hefur
sótt um það til sveitarfélagsins Ölf-
uss að fá að gera baðlón og reisa hót-
el í Stóradal, inn af skíðaskálanum í
Hveradölum. Sveitarfélagið Ölfus
samþykkti þessi áform í fyrra en síð-
an þá hefur málið verið til umfjöll-
unar hjá Skipulagsstofnun.
Ásdís Hlökk staðfesti í samtali við
Morgunblaðið að óæskilegur dráttur
hefði orðið á afgreiðslu stofnunar-
innar á þessari tillögu en nú stæði
það vonandi til bóta.
Ölfus óskar á ný eftir fundi
með Skipulagsstofnun
Skipulagsfulltrúi
vonar að hreyfing
komist á málið
Morgunblaðið/Eggert
Hveradalir Brátt skýrist hvort leyfðar verða framkvæmdir í Hveradölum.
Aðalfundur Klakka ehf.
21. ágúst 2018
Aðalfundur Klakka ehf. verður haldinn þriðjudaginn 21. ágúst 2018 að
Smáratorgi 3 (16. hæð), 201 Kópavogur og hefst fundurinn kl. 10:00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2017.
2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2017 ásamt skýrslu endurskoðenda
lagður fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og ráðstöfun hagnaðar ársins.
4. Breyting á samþykktum félagsins:
a. Grein 2 breytt til samræmis við núverandi heimilisfang
félagsins að Smáratorgi 3, 201 Kópavogi.
b. Grein 15 breytt til samræmis við 60. gr. laga um
einkahlutafélög nr. 138/1994.
5. Kosning stjórnar.
6. Kosning endurskoðunarfélags.
7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
8. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu Klakka ehf.
9. Önnur mál.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í
hendur stjórnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Óskað er eftir að framboð til stjórnar félagsins berist skriflega til stjórnar
að lágmarki fimm dögum fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent á fundardegi.
Fundurinn mun fara fram á ensku.
Kópavogur, 14. ágúst 2018.
Stjórn Klakka ehf.
Klakki ehf.
Smáratorg 3
201 Kópavogur
Sími 550 8600
www.klakki.is