Morgunblaðið - 14.08.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Sigurður Nordal
sn@mbl.is
Elon Musk, stofnandi og forstjóri raf-
bílaframleiðandans Tesla, greindi frá
því í bloggi í gær að hann ætti meðal
annars í viðræðum við sádí-arabískan
sjóð í opinberri eigu um kaup á fyr-
irtækinu með það fyrir augum að
taka það af hlutabréfamarkaði.
Þessar upplýsingar fylgja í kjölfar
þess að Musk greindi frá því í tísti á
Twitter fyrir tæpri viku að búið væri
að „tryggja“ fjármögnun svo hægt
yrði að taka félagið af markaði. Þau
orð urðu þess valdandi að bandaríska
verðbréfaeftirlitið hóf rannsókn á því
hvort tíst Musk hefði gefið réttar og
fullgildar upplýsingar í samræmi við
verðbréfalög. Þá hafa fjárfestar sem
áttu viðskipti með hlutabréfa í Tesla í
framhaldi af tístinu hótað lögsóknum.
„Enginn vafi“ á fjármögnun
Í gær birti Elon Musk liðlega 1.100
orða yfirlýsingu þar sem hann segir
að í kjölfar fundar hinn 31. júlí síðast-
liðinn leiki „enginn vafi“ á því í hans
huga að Sádar muni fjármagna slík
viðskipti. Reyndar segir Musk að frá
því snemma á síðasta ári hafi sádí-
arabíski sjóðurinn margítrekað kom-
ið að máli við sig í þeim erindagjörð-
um að afskrá Tesla. Hafi sjóðurinn
þegar keypt tæplega 5% í félaginu.
Innan við klukkustund áður en Musk
birti tístið umdeilda í síðustu viku
hafði Financial Times einmitt greint
frá því að Opinberi fjárfestingarsjóð-
urinn í Sádí-Arabíu (PIF) hefði jafnt
og þétt verið að byggja upp 3% til 5%
stöðu í Tesla.
Að sögn Musk má rekja áhuga
Sáda á fyrirtækinu til vilja þeirra til
þess að dreifa eignum sínum í annað
en olíutengdan iðnað.
Tesla verður ekki skuldsett
Musk segir í yfirlýsingu sinni að
um verði að ræða eiginfjárfjármögn-
un svo að engin hætta sé á því að
fyrirtækinu verði steypt í skuldir,
eins og margir fjárfestar óttuðust í
fyrstu. „Viðræður mínar við sádí-
arabíska sjóðinn munu halda áfram
og ég mun einnig ræða við ýmsa
aðra fjárfesta. Það hefur alltaf stað-
ið til af minni hálfu að halda hlut-
hafahópi Tesla áfram breiðum,“ seg-
ir Musk.
Í yfirlýsingunni heldur Musk því
fram að fréttir þess efnis að yfir 70
milljarða dollara, jafngildi 7.650
milljarða króna, þurfi til þess að af-
skrá fyrirtækið skjóti langt yfir
markið, enda geri hann ráð fyrir því
að fjöldi hluthafa muni eiga áfram
bréf sín þótt félagið verði afskráð.
„Eins og sakir standa geri ég ráð
fyrir að tveir þriðju þess hlutafjár
sem er í eigu núverandi hluthafa
muni ekki skipta um hendur, verði
félagið tekið af markaði.“
Afskráning ekki bara til bóta
Þrátt fyrir að Tesla framleiði ein-
ungis rösklega 100 þúsund farar-
tæki á ári er markaðsvirði þess
hærra en flestra annarra bílafram-
leiðanda. Byggist það verðmat á
væntingum um byltingarkennd
áhrif þess á bílaiðnaðinn. Með því að
afskrá fyrirtækið má létta af því
kröfum markaðarins um sölutölur
og arðsemismarkmið í hverjum árs-
fjórðungi, en Tesla hefur átt í tölu-
verðum erfiðleikum með að ná tak-
marki sínu í framleiðslu á Model 3
bílum.
Fram kemur í máli markaðssér-
fræðinga sem AFP fréttastofan
ræddi við í gær að það gæti hins
vegar komið félaginu og Musk í koll
að skrá Tesla af markaði. Um leið
og það vissulega dragi úr þrýstingi
frá markaðnum, muni aðgangur fé-
lagsins að fjármagni minnka veru-
lega. Þá hefur sú fjölmiðlaathygli
sem fylgt hefur skráningu félagsins
á markaði reynst ómetanleg auglýs-
ing og það gæti orðið Tesla dýrt að
tapa þeirri athygli.
Sádar hafa áhuga á Tesla
Rafbílar Musk segir Sádi-Araba hafa sýnt Tesla mikinn áhuga um langt skeið.
Musk segir viðræður í gangi við fjárfestingarsjóð Sádí-Arabíu um kaup á raf-
bílaframleiðandanum Markmiðið að taka fyrirtækið af hlutabréfamarkaði
AFP
virkjagerð 14.100 í júní síðast-
liðnum og hafði þeim fjölgað um 7%
frá júní í fyrra, eða um 900 manns.
Á sama tíma fækkaði launþegum
um 400 í sjávarútvegi, niður í 8.800
manns eða um 4%.
Í opinberri sjórnsýslu og fræðslu-
starfsemi voru 47.700 launþegar í
júní og hafði þeim fjölgað um 1.500
á milli ára. Þá fjölgaði launþegum í
heilbrigðis- og umönnunarþjónustu
um 6%, í um 17.800 manns. Í þeim
atvinnugreinum sem Hagstofan
skilgreinir sem einkennandi fyrir
ferðaþjónustu var hins vegar engin
breyting í júní síðastliðnum miðað
við júnímánuð í fyrra, en þar starfa
um 30.700 launþegar.
Launþegum fjölgaði um 4,1% á tólf
mánaða tímabili frá júlí í fyrra til
júní í ár, miðað við tólf mánuði þar
á undan. Að meðaltali greiddu
launagreiðendur um 192.000 ein-
staklingum laun á þessu tólf mán-
aða tímabili sem er 7.500 fleiri en
árið á undan. Þetta kemur fram í
nýjum tölum á vef Hagstofu Ís-
lands.
Þegar bornar eru saman tölur
fyrir júnímánuð í ár og í fyrra, þá
fjölgaði launþegum hlutfallslega
mest í byggingarstarfsemi og
mannvirkjagerð á milli ára, sam-
kvæmt atvinnugreinaflokkun Hag-
stofunnar. Samtals voru launþegar
í byggingarstarfsemi og mann-
Launþegum fjölgar um 4% milli ára
Engin fjölgun í störfum tengdum ferðaþjónustu í júní miðað við júní í fyrra
Morgunblaðið/Ómar
Byggt Launþegum í byggingarstarfsemi fjölgaði um 7% í júní milli ára.
Stjórnarformaður kaupir
● Úlfar Steindórsson, stjórnar-
formaður Icelandair Group, hefur
keypt hlutabréf í félaginu fyrir um 100
milljónir króna samkvæmt flöggun í
Kauphöllinni í gær. Alls keypti hann
12,24 milljónir hluta á 8,17 krónur hlut-
inn í gegnum félagið JÚ ehf. Úlfar átti
ekki hlutabréf í Icelandair Group fyrir
viðskiptin. Hlutabréf í félaginu hækkuðu
um 3,13% í Kauphöllinni í gær og var
dagslokaverð 8,24 krónur fyrir hlutinn.
14. ágúst 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 108.76 109.28 109.02
Sterlingspund 138.73 139.41 139.07
Kanadadalur 82.65 83.13 82.89
Dönsk króna 16.614 16.712 16.663
Norsk króna 12.985 13.061 13.023
Sænsk króna 11.89 11.96 11.925
Svissn. franki 109.35 109.97 109.66
Japanskt jen 0.9849 0.9907 0.9878
SDR 150.91 151.81 151.36
Evra 123.85 124.55 124.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.3879
Hrávöruverð
Gull 1211.65 ($/únsa)
Ál 2038.5 ($/tonn) LME
Hráolía 71.97 ($/fatið) Brent
● Hlutafé WOW air
var aukið um meira
en tvo milljarða
króna á öðrum árs-
fjórðungi. Lagði
Skúli Mogensen,
stofnandi og for-
stjóri flugfélagsins,
fram eignarhlut
sinn í Cargo
Express ehf. inn í
WOW air auk þess sem hann breytti
kröfum sínum á hendur félaginu í eigið
fé. Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsinga-
fulltrúi WOW air, staðfestir þetta við
Morgunblaðið en frétt þessa efnis birt-
ist fyrst á vefnum Túristi.is. Samkvæmt
gögnum til fyrirtækjaskrár var nafnverð
hlutafjár aukið um liðlega helming.
„Með tilkomu fleiri breiðþota í flota fé-
lagsins er vægi fraktflutninga stöðugt
að aukast og því töldum við eðlilegt að
eignarhluturinn væri beint undir Wow
air og jafnframt var markmiðið að
styrkja stoðir félagsins,“ segir Svanhvít
í samtali við Morgunblaðið en eiginfjár-
hlutfall WOW air var 10,9% í ársbyrjun.
peturhreins@mbl.is
Hlutafé WOW air aukið
um tvo milljarða króna
Skúli Mogensen
STUTT