Morgunblaðið - 14.08.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Stjórnvöld Kína vísuðu í gær á bug
ásökunum um að einni milljón
manns af Uighur-þjóðerni væri
haldið í fangabúðum í norðvestur-
hluta landsins. Ein mannréttinda-
nefnda Sameinuðu þjóðanna sakaði
Kínverja síðastliðinn föstudag um
að halda allt að einni milljón manns
í svokölluðum endurmenntunar-
búðum í Xinjiang-héraði án dóms
og laga.
Ekkert kínverskt Sýrland
„Borgarar Xinjiang-héraðs, þar
á meðal Uighur-fólk, njóta frelsis
og réttinda til jafns við aðra,“ sagði
Ma Youqing, umsjónarmaður hins
sameinaða verkaráðuneytis kín-
verska kommúnistaflokksins. Kín-
verjar viðurkenndu að þeir hefðu
hrundið af stað sérstakri herför
gegn hryðjuverkastarfsemi en
sögðu að ekki hefði verið einblínt á
neinn ákveðinn þjóðar- eða trúar-
hóp í landinu í handtökunum. Í kín-
verska ríkismiðlinum Global Times
var drepið á það í gær að hörkuleg
framganga stjórnvalda í Xinjiang
hefði komið í veg fyrir að héraðið
breyttist í „kínverskt Sýrland“ eða
„kínverska Líbíu“. „Viðsnúningur-
inn í öryggismálum Xinjiang hefur
komið í veg fyrir miklar hörm-
ungar og bjargað ótal mannslíf-
um,“ sagði í forystugrein blaðsins.
Ma kom fyrir mannréttinda-
nefndina og svaraði spurningum
hennar í gær ásamt um 50 kín-
verskum embættismönnum.
Fangelsi í fjöllunum
„Það eru engar endurmenntun-
arbúðir í Xinjiang,“ sagði Hu Li-
anhe, annar embættismaður úr
sameinaða verkaráðuneytinu. „Við
hjálpum þeim sem hafa verið
dæmdir fyrir minniháttar glæpi og
kennum þeim mælskulist í mennta-
og þjálfunarbúðum samkvæmt
réttum lögum. Óréttlættar hand-
tökur viðgangast ekki, né pynting-
ar.“
Kínversk stjórnvöld segja þessa
kennslu fyrst og fremst vera ætl-
aða til að draga úr fátækt. Í júní
sagði kasösk kona dómstól í Ka-
sakstan að hún hefði verið neydd
til að kenna kínverska sögu í einum
þessara búða og kallaði þær „fang-
elsi í fjöllunum“.
AFP
Kína Lögreglumenn fylgjast með Uighur-Kínverjum á leið heim úr mosku í Kashgar í Xinjiang-héraði
„Engar endurmennt-
unarbúðir í Xinjiang“
Kínverjar segjast ekki halda milljón manns í fangabúðum
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Ríkisstjórnir Norður- og Suður-Kór-
eu féllust í gær á að halda leiðtoga-
fund sín á milli í Pjongjang, höfuð-
borg Norður-Kóreu, í september.
Frá þessu er greint á fréttasíðu
AFP. Ef Moon Jae-in, forseti Suður-
Kóreu, heimsækir Pjongjang verður
það í fyrsta sinn í meira en tíu ár sem
slíkur leiðtogafundur fer þar fram.
Von um batnandi samskipti
Samskipti Norður- og Suður-Kór-
eu hafa farið batnandi frá ársbyrjun,
þegar keppendur ríkjanna komu
saman undir einum fána við vetraról-
ympíuleikana í Pjongtsjang í Suður-
Kóreu. Moon hitti Kim Jong-un, leið-
toga Norður-Kóreu, við landamærin
í apríl og aftur í maí. Kim fundaði
síðan með Donald Trump Banda-
ríkjaforseta í Singapúr í júní og féllst
á að stefna að kjarnorkuafvopnun
Kóreuskagans.
Síðan þá hefur hins vegar hægst
nokkuð á friðarviðræðum Banda-
ríkjamanna og Norður-Kóreumanna
og hafa Norður-Kóreumenn meðal
annars sakað Bandaríkjamenn um
að ganga fram eins og „bófar“ í við-
ræðuferlinu. Moon forseta gæti
reynst erfitt að bæta samskipti ríkis
síns við nágrannana í norðri ef
Bandaríkin fylgja ekki með og því er
hugsanlegt að hann hyggist gerast
milliliður þeirra Kim og Trumps.
„Þeir eru að reyna að senda skila-
boð til útlanda um að viðræður norð-
urs og suðurs séu komnar á skrið og
muni halda áfram hvað sem viðræð-
um Norður-Kóreu og Bandaríkjanna
líður,“ sagði Go Myong-hyun, fræði-
maður hjá Asian Institute for Policy
Studies, um leiðtogafundinn.
Nýr fundur
Kim og Moon
Leiðtogar Kóreuríkjanna tveggja
munu hittast aftur í september
Sjávarútvegsráðherra Noregs, Per
Sandberg, sagði af sér í gær vegna
brots á siðareglum ráðherra. Frá
þessu var greint á norska ríkismiðl-
inum NRK. Erna Solberg, forsætis-
ráðherra Noregs, segir Sandberg
sjálfan hafa beðið um lausn úr starfi
og telur hann hafa tekið rétta ákvörð-
un.
Ástæðan fyrir afsögn Sandbergs
var frí sem hann fór í ásamt íransk-
ættaðri kærustu sinni, Bahareh Let-
nes, til Íran, án þess að láta forsætis-
ráðuneytið vita með tilsettum
fyrirvara. Auk þess braut hann ör-
yggisreglur með því að nota vinnu-
síma ráðherra, sem inniheldur ýmsar
trúnaðarupplýsingar, á ferðalaginu.
„Þetta er sorglegt, ég er mjög
hrygg yfir því að besti stjórnmála-
maður Noregs í dag þurfi að segja af
sér út af svona nornaveiðum,“ sagði
Letnes við NRK.
Harald Tom Nesvik hefur verið
skipaður í embætti Sandbergs.
AFP
Ráðherrar Per Sandberg og Erna
Solberg forsætisráðherra.
Ráðherra sagði af sér
eftir brot á siðareglum
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Ali Khamenei, æðstiklerkur Írans,
tjáði sig um bága efnahagsstöðu
lands síns í gær og um æ versnandi
samskipti Írana við Bandaríkin. Að
sögn Khamenei er nýjum efnahags-
þvingunum Bandaríkjamanna ekki
helst að kenna um efnahagsvanda
landsins, heldur fyrst og fremst
spillingu og vanköntum í innanríkis-
stjórnmálum þess.
Khamenei útilokaði jafnframt að
haldið yrði til nýrra samninga-
viðræðna við Bandaríkin, sem hófu
nýlega efnahagsþvinganir gegn Ír-
an eftir að hafa dregið til baka
stuðning sinn við samning sem
gerður var við Írana um kjarn-
orkuáætlun þeirra árið 2015.
Khamenei sagði að Íran gæti
spornað við áhrifum refsiaðgerð-
anna með „betri efnahagsumsjón og
skilvirkara skipulagi“. Ábyrgðin til
að bæta úr stöðunni lægi hjá ríkis-
stjórn Hassans Rouhani forseta.
Æðstiklerkurinn vísaði því á bug
að stríð við Bandaríkin væri yf-
irvofandi. „Leyfið mér að segja fá-
ein orð: Það verður ekkert stríð, né
munum við semja við Bandaríkin.“
AFP
Íran Ali Khamenei, æðstiklerkur og þjóðhöfðingi Írans frá árinu 1989, segir
vanda Írans koma innan frá en ekki vegna erlendra viðskiptaþvingana.
„Það verður ekkert
stríð við Bandaríkin“
Ali Khamenei neitar að semja
Vilt þú létta á líkamanum eftir grillveislurnar?
Weleda Birkisafinn hjálpar!
Weleda birkisafinn er bragðgóður drykkur sem örvar vatnslosun og styður við náttúrulega út-
hreinsun líkamans, birkisafinn léttir á líkamanum, losar bjúg og byggir hann upp. Það er mikilvægt
fyrir líkamalega vellíðan. Í samhljómi við mann og náttúru. Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is
Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land.
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/WeledaIceland