Morgunblaðið - 14.08.2018, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Angela Mer-kel ermerkur
stjórnmálamaður
þótt hún hafi lent í
nokkrum mótbyr í
Þýskalandi og með-
al leiðtoga ýmissa
ESB-ríkja að undanförnu. Hún
hefur ekki aðeins veitt Þýska-
landi forystu nokkuð á annan
áratug heldur um leið verið tal-
in sá leiðtogi ESB sem iðulega
á síðasta orðið, kjósi hún það.
Merkel hefur þó auðvitað ekki
náð þeirri stöðu sem Helmut
Kohl hafði í þeim efnum. En á
móti kemur að hinn hlutinn á
öxli ESB-samstarfsins, Frakk-
land, hefur lotið stjórn fjögurra
ólíkra forseta þau þrettán ár
sem hún hefur gegnt sínu emb-
ætti. Jacques Chirac var á loka-
árum sínum á forsetastóli í upp-
hafi ferils hennar. Svo tók
Nicolas Sarkozy við og hann
féll fyrir Francois Hollande,
sem tapaði undra fljótt trausti
landa sinna. Þá kom ný og
óvænt stjarna, Emmanuel Mac-
ron, til sögunnar og flaug inn í
forsetahöllina með fjaðraþyt og
söng og með hreinan meirihluta
á þingi úr röðum glænýs flokks.
Mjög hefur dregið úr fylgi
hans upp á síðkastið og mörg
mál, og sum ekki stór, dregið úr
trúverðugleika. Í sumar var
það helst ungur lífvörður for-
setans sem gerðist harðhentur
við mótmælendur. En það sem
lakara var að forsetinn taldi sig
óvænt knúinn til að lýsa því yfir
að lífvörðurinn væri alls ekki
ástmaður forsetans, þótt hann
hefði flutt inn í Élysée-höllina.
Og nú snýst vandinn um nýja
sundlaug í opinberum sum-
arbústað forsetans. Uppgefinn
kostnaður við það mannvirki er
svo hóflegur (4-5 milljónir í
krónum talið) að merkilegt er
að það skuli hafa orðið að máli.
En fjöldi franskra forseta og
erfiðleikar þeirra hafa aukið
enn yfirburðastöðu kanslarans
sem leiðtoga ESB. Ekki er sú
leiðtogastaða endilega eftir-
sóknarverð eins og upplitið er á
ESB um þessar mundir. Lengi
hrikti í undirstöðum evrunnar
og Grikkland kemur illa lemstr-
að út úr meðferðinni sem það
land fékk. En málinu lauk ekki
þar. Ný vandamál herja á sam-
eiginlegu myntina af því að
grundvöllur hennar var ekki
réttilega lagður og það verður
ekki bætt eftir á.
Flóttamannamálin og
ógrunduð viðbrögð kanslara
Þýskalands við þeim er þó erf-
iðasti bletturinn á ferli kansl-
arans og ekki auðvelt að ná
burtu. Það mál hefur ýtt undir
sundrungu í sambandinu og
aukið vantraust á
pólitískri leiðsögn
þess. Bretar eru á
leið út úr ESB, þótt
Theresa May for-
sætisráðherra
haldi einkar óhönd-
uglega á því máli.
Ekkert eitt atriði réð því að
breska þjóðin kaus að yfirgefa
ESB. En tvö mikilvæg atriði
má skrifa beint á reikning An-
gelu Merkel. Það fyrra var
flóttamannaöngþveitið sem hún
kynti elda undir og það síðara
snerist um viðbrögð ESB undir
forystu hennar við svokölluðum
samningaviðræðum Camerons
forsætisráðherra um breytt
skilyrði fyrir Breta.
Cameron hafði lýst því yfir
að fengi hann ekki viðunandi
niðurstöðu í þeirri samn-
ingagerð myndi hann styðja út-
göngu úr ESB. Því tali trúði
Merkel ekki (og Cameron ekki
heldur). Hann kom niður-
lægður úr viðræðunum en lét
samt eins og Stóra-Bretland
væri í allt annarri og betri
stöðu en áður. Í baráttunni um
Brexit forðuðust stuðnings-
menn veru í ESB að láta „ár-
angur“ viðræðnanna vera of-
arlega í umræðunni. Forysta
ESB og reyndar forysta bresku
ríkisstjórnarinnar var sann-
færð um það og studdist við
kannanir, að útgöngumenn
væru undir í Bretlandi. Því
væri óþarft að gera nokkuð fyr-
ir Cameron og allt sem gert
yrði myndi einungis skaða um-
gjörð samstarfsins. Nú þykjast
flestir sjá að þar sem mismun-
urinn á milli fylkinga var ekki
mjög mikill þá hefði lítið þurft
til að hjálpa breskum ESB-
sinnum yfir hjallann.
Merkel kanslari hefur verið
með yfirlýsingar um að
Dyflinnarreglugerðin, sem
tryggir að þau lönd ESB sem
„flóttamenn“ koma fyrst til
verði að taka við öllum þeim
sem fá ekki annars staðar hæli,
standist ekki lengur og henni
þurfi að breyta. En Dyflinnar-
reglugerðin er ekki vanda-
málið, heldur Schengen-
samkomulagið, sem forsend-
urnar eru fyrir löngu brostnar
undan. Með ónýt ytri landa-
mæri fær það ekki staðist.
Ef ábyrgðin sem felst í Dyfl-
innarreglugerð er felld burt
hverfur það litla aðhald sem
ríki ytri landamæranna hafa þó
haft. Og þá er ESB-revían end-
anlega úr sögunni. Allir þekkja
nú orðið forleikinn að þeirri
revíu, en gangi þetta nýja útspil
eftir breytir Merkel rétt einu
sinni revíu sem hún kemur að
uppsetningu á í sorgarleik af
súrustu gerð.
Staða Merkel kansl-
ara hefur veikst en
það glittir ekki í
annan leiðtoga í
Þýskalandi}
Merkel að stíga annað
feilspor í ESB-dansinum?
S
íðustu mánuðir hafa ekki verið góðir
fyrir stjórnsýslu Reykjavíkurborgar
eins og dæmin sýna. Nýlega féll
dómur þar sem Reykjavíkurborg
var dæmd til að greiða starfsmanni
skaðabætur vegna framkomu skrifstofustjóra
skrifstofu borgarstjóra og borgarritara í garð
hans. Í júlí komst kærunefnd jafnréttismála að
þeirri niðurstöðu að borgin hefði brotið jafnrétt-
islög við ráðningu borgarlögmanns í fyrra.
Vinnueftirlitið gerði athugasemd við ákvörðun
mannréttinda- og lýðræðisráðs borgarinnar um
að öll salerni skuli verða ókyngreind og umboðs-
maður borgarbúa segir í nýlegu áliti að undir-
búningur ákvörðunar menningar- og ferðamála-
ráðs um útleigu á Iðnó hafi ekki verið í samræmi
við sjónarmið um vandaða stjórnsýsluhætti.
Alvarlegast er þó nýlegt álit umboðsmanns
Alþingis þar sem fram kemur að meðferð (sem
túlka má sem vanrækslu) Reykjavíkurborgar á utangarðs-
fólki og heimilislausum í borginni er brot á stjórn-
sýslulögum, almennum lögum, stjórnarskrá og fjölþjóð-
legum mannréttindaskuldbindingum.
Nú er sjálfsagt að skrifa margar greinar og halda langar
ræður um óvandaða stjórnsýslu Reykjavíkurborgar en þeg-
ar fjöldi borgarfulltrúa telur á þriðja tug er rétt að láta þeim
það eftir. Það verður þó að segjast eins og er að þögn þeirra
sem iðulega hafa hvað hæst um óvandaða stjórnsýslu ann-
arra er nokkuð æpandi. Fulltrúar Samfylkingarinnar og
Pírata þegja þunnu hljóði vegna málanna í borginni en þau
hafa ekki sparað stóru orðin þegar þau vilja að aðrir axli
ábyrgð. Það hefur ekki verið brugðist við þess-
um málum á opinberum vettvangi með nokkr-
um hætti.
Allt leiðir þetta hugann að öðrum málum inn-
an stjórnkerfis borgarinnar. Í kjölfar kosninga
vorið 2014 þurftu vinstriflokkarnir í borginni að
auka við meirihluta sinn til að halda völdum. Þá
var brugðið á það ráð að búa til nýtt ráð, stjórn-
kerfis- og lýðræðisráð, til þess eins að fá Pírata
að borðinu. Eini borgarfulltrúi Pírata varð for-
maður ráðsins. Engin merki eru um að þetta
nýja ráð hafi nokkuð gert til þess að bæta
stjórnsýsluna í Reykjavík. Það er heldur ekki
að sjá að stofnun ráðsins, með því umstangi og
fjárútlátum sem fylgja, hafi bætt líf borgarbúa
á nokkurn hátt. Það eina sem það gerði var að
tryggja völd þeirra sem vildu áfram stjórna
borginni.
Eftir kosningarnar nú í vor þurfti aftur að
bæta við gamla meirihlutann svo hann héldi. Viðreisn fékk
boð í veisluna og aftur var hróflað við ráðum og nefndum til
að láta þetta smella saman. Hvort stjórnsýslan batnar á enn
eftir að koma í ljós. Mér þykir þó líklegra að stjórnkerfið
haldi áfram að stækka en þjónusta við borgarbúa fari áfram
versnandi. Það virðist engu máli skipta hversu oft og hversu
mikið hrært er í stjórnkerfi borgarinnar, íbúarnir tapa allt-
af.
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Borgarbúar tapa í stækkandi stjórnkerfi
Höfundur er formaður utanríkismálanefndar
og ritari Sjálfstæðisflokksins.
aslaugs@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Samtök atvinnulífsins leggj-ast gegn því gríðarlega um-fangsmikla myndavélaeft-irliti sem ætlað er að koma
upp til að fylgjast með meintum og
ætluðum brotum á lögum sem gilda
um veiðar, vinnslu, flutning og með-
ferð afla.“ Þannig segir meðal ann-
ars í umsögn SA um drög að frum-
varpi til laga um myndavélaeftirlit í
sjávarútvegi.
Drögin hafa verið til umsagnar
og auk SA hefur Hafnasamband Ís-
lands sent frá sér álit, en skila átti
umsögn fyrir 10. ágúst. Samtök
fyrirtækja í sjávarútvegi fengu hins
vegar frest til að skila umsögn.
Fjallað var um frumvarpsdrögin í
Morgunblaðinu 10. júlí undir fyr-
irsögninni: „Alsjáandi augu fylgist
með sjávarútvegi“.
Floti fjarstýrðra loftfara
SA bendir á að í kynningu á
Samráðsgáttinni segi að megin-
markmið frumvarpsins sé „að skapa
traust til sjávarútvegsins með notk-
un á nýjustu tækni við eftirlit með
vigtun, brottkasti og framhjáafla“
með nýjustu tækni.
Í umsögn SA, sem undirrituð er
af Halldóri Benjamín Þorbergssyni
framkvæmdastjóra, segir: „Í frum-
varpsdrögunum er lagt til að mynda-
vélar fylgist með einstaklingum og
vinnu þeirra um borð í öllum fiski-
skipum, öllum höfnum, flutninga-
tækjum, fiskvinnslum auk þess sem
ætlunin er að Fiskistofa reki flota af
fjarstýrðum loftförum til að tryggja
að eftirlitið verði alsjáandi um alla
hegðan þeirra sem störfum þessum
sinna.
Enginn vafi er á að nái þessi
áform fram að ganga munu þau
verða fyrirmynd annarra eftirlits-
stjórnvalda og innan fárra ára gætu
Íslendingar búið við eftirlitsþjóð-
félag af áður óþekktri gerð sem
hingað til hefur einungis verið til í
skáldsögum og kvikmyndum. Dæm-
in sanna að verði auknar eftirlits-
heimildir veittar einni stofnun linna
aðrar ekki látum fyrr en þær búa við
sömu heimildir.
Nú hafa nánast allar stofnanir
heimildir til að leggja á dagsektir og
stjórnvaldssektir. Auðvelt er að sjá
fyrir sé að myndavélaeftirlit Mat-
vælastofnunar með meðferð og
vinnslu annarra matvæla en sjávar-
fangs, myndavélaeftirlit Samgöngu-
stofu í öllum ökutækjum, loftförum
og skipum til að tryggja að farið sé
að lögum og myndavélaeftirlit
Vinnueftirlits ríkisins á öllum vinnu-
stöðum til að tryggja að aðstæður
séu jafnan í samræmi við lög og
reglur.“
Ógeðfelld framtíðarmynd
SA segir rökstuðning í frum-
varpsdrögum atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytis um nauðsyn
myndavélavélaeftirlits heldur fá-
tæklegan. Því verði vart trúað að
ráðuneytið telji hann fullnægjandi til
að leggja í að safna milljónum
klukkustunda af myndbandsefni og
að ætla eftirlitsmönnum Fiskistofu
að fara í gegnum það. Þá sé ekki mat
á ávinningi sem ætlunin sé að ná og
hvernig hann vegi upp á móti þeim
milljarða króna kostnaði sem um-
rædd kerfi og þjónusta og eftirfylgni
við þau sem og úrvinnsla upplýsing-
anna muni hafa í för með sér.
„Það er ekki óvenjulegt að
fréttaflutningur af meintum mis-
brestum í ólíkri starfsemi komi upp
og það er nauðsynlegt að eftirlits-
stjórnvöld beiti úrræðum sem sam-
rýmast reglum um meðalhóf og eru í
samræmi við tilefnið í stað að gera
alla starfsemi í viðkomandi atvinnu-
grein tortryggilega og ganga út frá
að starfsfólkið stundi lögbrot við
venjubundin störf sín.
Sú framtíðarmynd sem dregin
er upp í frumvarpsdrögunum er
ógeðfelld, og ástæða er til að efast
um að árangur verði í samræmi við
erfiðið,“ segir í umsögn Samtaka at-
vinnulífsins.
Of langt gengið
Í umsögn stjórnar Hafnasam-
bandsins, sem Gísli Gíslason, for-
maður, skrifar undir, kemur fram
það álit að of langt sé gengið í að
setja auknar skyldur og kröfur á
hafnir. Eðlilegra sé að unnið verði í
samræmi við drög að samstarfs-
yfirlýsingu íslenskra hafna og Fiski-
stofu, sem nú liggi fyrir í lokadrög-
um. Fyrirhugaðar lagabreytingar
verði lagaðar að ákvæðum yfirlýs-
ingarinnar.
„Eftirlitsþjóðfélag af
áður óþekktri gerð“
Samtök atvinnulífsins skora á atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að
draga tillögur um myndavélaeftirlit til baka. Frekar verði beitt aðferðum
sem betur samræmast vestrænni þjóðfélagsgerð þar sem langflestir fari
að lögum og reglum og hagi sér sem ábyrgir einstaklingar í stað þess að
koma upp kerfi sem byggist á því að allir séu tortryggðir og gangi út frá
því að lögbrot séu eðlilegur þáttur í starfi vinnandi fólks.
Drögin verði dregin til baka
SAMTÖK ATVINNULÍFSINS
Morgunblaðið/Björn Jóhann Björnsson
Á Sauðárkróki Drangey og Málmey, ísfisktogarar FISK Seafood.