Morgunblaðið - 14.08.2018, Blaðsíða 19
Morgunblaðið/Ómar
Steinn „Það er fátt uppbyggilegt við þetta „listaverk“,“ segir höfundur.
Í mínum huga er
Austurvöllur einstakur
staður í höfuðborginni
okkar. Þar koma
fulltrúar þjóðarinnar
saman á fæðingardegi
Jóns Sigurðssonar ár
hvert og minnast þess
að lýðveldið Ísland var
stofnað 17. júní 1944.
Til þess að leggja
áherslu á þá virðingu
sem borin er fyrir stofnun lýðveld-
isins og þeim sem tryggðu sjálf-
stæði þjóðarinnar leggur forseti Ís-
lands blómsveig að styttu
frelsishetjunnar framan við Alþing-
ishúsið á hverjum þjóðhátíðardegi.
Styttan af Jóni Sigurðssyni setur
vissulega mikinn svip á svæðið og
minnir okkur á hlutverk Alþingis og
skyldur þess í þjóðarþágu.
Þann tíma sem ég sat á Alþingi
átti ég oft erindi um mið- og vest-
urhluta höfuðborgarinnar og þekki
því svæðið allvel. Þegar ég dvel í
borginni geng ég oft um miðbæinn
og hafnarsvæðið. Ég hef fylgst með
því hvernig skipulagi borgarinnar
hefur verið breytt og hversu lítið
tillit er tekið til húsa sem fyrir eru
þegar ný hús eru byggð í stað
þeirra sem eru rifin. Um þverbak
keyrir um þessar mundir og er þar
af mörgu að taka. Vegna niðurrifs
húsa og hótelbyggingar er Kirkju-
strætið í uppnámi. Við Kirkjustræti
standa Alþingishúsið og Dómkirkj-
an ásamt fallegri húsaröð sem var
endurbyggð á vegum Alþingis í
anda uppbyggilegrar húsafriðunar
og er gegnt Fógetagarðinum. Í
Fógetagarðinum er
styttan af Skúla Magn-
ússyni og minnir okk-
ur á stöðu hans og þau
stórvirki sem hann
stóð fyrir sem landfóg-
eti. Í húsaröðinni
gegnt Fógetagarðinum
er m.a. húsið Skjald-
breið sem átti að rífa á
sínum tíma en var
ákveðið að end-
urbyggja og er eitt af
húsum Alþingis. Þar
er einnig íbúðarhús
Theódóru Thoroddsen skáldkonu og
Skúla Thoroddsen sýslumanns og
forseta sameinaðs þings um tíma.
Það hús var reist árið 1908 en flutt
úr Vonarstræti þar sem það stóð
við hlið Oddfellowhússins og var
endurgert í Kirkjustræti á vegum
Alþingis í góðri sátt við þáverandi
borgaryfirvöld. Með því að endur-
gera húsið á þessu svæði og við hlið
eldri húsa er virt framtak þeirra
merku hjóna sem reistu húsið.
Mér var satt að segja brugðið að
ganga um Kirkjustrætið í gær og
sjá virðingarleysið sem núverandi
eigendur „Landsímahússins“ og
borgaryfirvöld, sem fara með
borgarskipulagið, sýna Fógetagarð-
inum og hinum forna grafreit sem
hefur verið raskað sem og skipulagi
á Alþingisreitnum. Hótelrekstur á
þessum stað mun setja svæðið í
mikið uppnám vegna þeirrar um-
ferðar sem fylgir slíkum rekstri í
næsta nágrenni við Alþingi. Til þess
að kóróna virðingarleysið og
skemmdarverkin í miðborginni
stendur þar enn forljótur grjót-
hnullungur sem var velt inn á svæð-
ið í kjölfar óeirða. Grjótið er stað-
sett framan við Alþingishúsið á
stéttinni milli styttunnar af Jóni
Sigurðssyni og styttunnar af Ingi-
björgu H. Bjarnason sem var fyrsta
konan sem kjörin var til setu á Al-
þingi og er sérstaklega minnst með
glæsilegri styttu við inngang Al-
þingishússins. Allt bendir til þess
að steinninn hafi verið settur þarna
af borgarstjórn höfuðborgarinnar
til háðungar Alþingi Íslendinga. Á
þann stein er m.a. letrað eftir for-
skrift „listamanns“ frá Spáni sem
lagði til þennan klofna stein:
„Svarta keilan minnisvarði um
borgaralega óhlýðni“. Það er fátt
uppbyggilegt við þetta „listaverk“
og er borginni til skammar. Borgar-
yfirvöld ættu að fagna 100 ára af-
mæli fullveldis þjóðarinnar með því
að láta bera grjótið í burtu.
Ég skora á borgarstjóra höfuð-
borgar okkar Íslendinga að stöðva
skemmdarverkin við Kirkjustræti
og láta fjarlægja „svörtu keiluna“
og koma henni fyrir á viðeigandi
stað. Stjórnendur höfuðborgarinnar
geta ekki komið fram með þeim
hætti sem gert er með fullkomnu
virðingarleysi við þjóðþingið og um-
hverfi þess í miðju borgarinnar.
Eftir Sturlu
Böðvarsson
» Til þess að kóróna
virðingarleysið og
skemmdarverkin í mið-
borginni stendur þar
enn forljótur grjóthnull-
ungur sem var velt inn á
svæðið í kjölfar óeirða.
Sturla Böðvarsson
Höfundur er fyrrverandi
forseti Alþingis.
Óviðeigandi framkvæmd í höfuðborginni okkar
Austurvöllur Byggingaframkvæmdir á Landsímareitnum standa nú yfir.
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
Utan stígs Ferðafólk virðir fyrir sér sérstætt landslagið á Arnarstapa frá útsýnispalli. Lagður hefur verið stígur að pallinum til að verja gróðurinn en sumir freistast til að fara út fyrir hann.
Eggert