Morgunblaðið - 14.08.2018, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
Ágætu þingmenn
Norðausturkjör-
dæmis.
Undanfarið hefur
heyrst í fjölmiðlum að
efla „brothættar“
byggðir og Bakka-
fjörður verið nefndur
sérstaklega. Þegar
undirrituð kom til
kennslu á Bakkafirði
1990 var til staðar:
Öflug smábátaútgerð, grunnskóli,
heilsugæsla, pósthús, verslun,
fiskavinnsla, fjárbúskapur og vel
stætt sveitarfélag (um 180 manns)
– nú eru 50 – 60 manns á Bakka-
firði, örfáir bátar og sveitin nánast
í eyði.
Með lögum um stjórn fiskveiða
nr. 3/1988 og nr. 38/1990 var af-
koma allflestra smábáta komin nið-
ur fyrir þau mörk sem þarf til
rekstrar. – Bátar sem höfðu neta-
kvóta urðu tæplega rekstrarhæfir
– en með leigu kvótans var hægt
að fá hagstæðari skilyrði. Trillu-
sjómönnum var heimilt að leigja
kvótann sér til hagsbóta, innleiddir
voru óheilbrigðir viðskiptahættir
með óveiddan fisk, því var síðan
fylgt eftir með frekari skerðingu
kvótans bæði á smábátum með
netaveiðar og hins vegar bátum
með handfæri og línu. Þá var inn-
leitt svokallað banndagakerfi,
ákveðnir dagar til veiða leyfðir, er
erfitt reyndist að framkvæma, veð-
ur eru válynd og gera sjómönnum
erfitt um vik að stunda veiðar af
dugnaði og útsjónarsemi á vissum
dögum.
Með ofangreindum aðgerðum
hrundi smábátaútgerðin og fisk-
vinnslan í Bakkafirði.
Stutt er í fengsæl mið í Bakka-
firði, skilyrði til smábátaútgerðar
eru einna best á landinu. Undir-
rituð telur að smábátaútgerð fyrst
og fremst verði undirstaða atvinnu
í Bakkafirði – þá eru góð skilyrði
til sauðfjárræktar.
Takist aftur að rétta við byggð-
ina í Bakkafirði þarf samvinnu og
skipulagningu fyrst og síðast, að
veiðiheimildir á staðn-
um verði nægilegar til
að skapa rekstar-
grundvöll og við-
unandi afkomu fyrir
fiskveiðar og e.t.v vill
meiri saltfiskverkun
en nú er.
Rekstur ferðaþjón-
ustu gæti verið sjó-
stangaveiði með ferða-
menn út á flóann er
myndi skapa þjónustu
við þá í landi.
Tvö byggðarlög,
Skagafjörður og Fáskrúðsfjörður,
báru gæfu til að eignast farsæla
leiðtoga er skildu gildi samvinnu
og samstöðu en samvinnustefnan
gæti ekki verið rekin sem góðgerð-
arstarfsemi fyrir byggðarlögin.
Með dugnaði, hörku og hagkvæmni
í rekstri tókst þeim að halda
byggð og mannsæmandi viðurværi;
í Skagafirði er blómlegur landbún-
aður og ferðaþjónustan fer þar
ágætlega saman.
Það er þungur róður að halda
byggð í landinu, kallar á samstöðu
allra heimamanna – og þingmanna.
Getur tæplega verið farsælt fyrir
Ísland sem þjóð ef allt fjármagn
safnast að mestu á suðvest-
urhornið. Að allt landið sé byggt
gerir ferðaþjónustu fjölbreyttari
fyrir ferðamenn; rennir að vissu
leyti hornsteini undir hana.
Undirstaða byggðar vítt og
breitt um landið er hagkvæmur
rekstur minni/meðal stórra sjávar-
útvegsfyrirtækja – og landbún-
aður.
Opið bréf til
þingmanna Norð-
austurkjördæmis
Eftir Sigríði
Laufeyju
Einarsdóttur
» „Undirstaða byggð-
ar vítt og breitt um
landið er hagkvæmur
rekstur minni/meðal
stórra sjávarútvegs-
fyrirtækja – og land-
búnaður“.
Sigríður Laufey
Einarsdóttir
Höfundur var meðeigandi í trilluút-
gerð með eiginmanni, Hjálmari
Hjálmarssyni, Bjargi, Bakkafirði og
er með BA í guðfræði/djákna.
Árið 1947, eða um það
bil strax eftir að heims-
styrjöldinni lauk, ákvað
Reykjavíkurborg og
sjálfsagt með aðkomu
ríkisins að byggja
bráðabirgðafátækra-
hverfi fyrir húsnæðis-
lausa og fátæka Reyk-
víkinga.
Fundu þeir svæði fyr-
ir þessa byggð sem lá
samsíða Samtúni, Nóatúni og Borg-
artúni og bar hverfi þetta nafnið
Höfðaborg, í höfuðið á Höfða sem stóð
sjávarmegin Borgartúns.
Átti hverfi þetta að standa í fimm ár
eða þangað til varanlegt húsnæði fyrir
þetta fólk væri tilbúið. En reyndin var
önnur því að mig minnir að fólk hafi
búið í þessum hreysum næstu 45 árin.
Voru þetta timburraðhúsalengjur,
um 4-6 íbúðir í lengju, 40 fermetrar
hver, lítil stofa, tvö lítil herbergi, lítið
eldhús og klósett. Gat fólk ekki baðað
sig þar inni og þvoði þvotta í sérstöku
þvottahúsi á svæðinu. Voru hús þessi
á einni hæð, mjög köld, illa einangruð
og hróflað upp í hasti, þar sem vindur
og kuldi áttu greiðan aðgang.
Þar sem ég bjó sem drengur í Mið-
túni eignaðist ég marga
vini í Höfðaborginni sá
vinskapur entist lengi.
Kom ég þess vegna oft
þangað en sem barn
gerði ég mér ekki grein
fyrir því hvað þetta voru
mikil hreysi, ekki fyrr
en löngu seinna. Börn
þjást ekki af saman-
burðarsyndrómi. Það
tilheyrir fullorðnum.
Vinir eru vinir, sama
hvar þeir búa.
Man ég eftir að-
stæðum heima hjá Óla vini mínum,
þar sváfu þau fjögur systkinin í fjór-
um kojum í 6 fermetra berbergi en
hjónin í enn minna herbergi við hlið-
ina á því.
Þarna hefur engum getað liðið vel
þó að megi ímynda sér að þegar fjöl-
skyldur fluttu þangað inn með sitt haf-
urtask, hafi mörgum verið létt að vera
laus úr hermannabröggum (amma
mín bjó í einum með fjögur börn) og
fúkkafullum kjallarakytrum eða öðru
óíbúðarhæfu húsnæði sem fólk hírðist
í fyrir okurleigu, og þótti þetta vera
mikil efnahagsleg bragarbót að sleppa
við leiguokrið og eilífan flæking.
En nú, 70 árum síðar, á að endur-
taka fyrirkomulagið, sem sagt setja á
stofn nýtt gettóhverfi fyrir heim-
ilislausa og fátæka Reykvíkinga.
Nú á að byggja hverfi í hasti á ódýr-
an hátt með litlum íbúðum sem þá
myndu aðallega gagnast ungu náms-
fólki og eða ungum fjölskyldum með
eitt til tvö smábörn. Allt gott um það
að segja en eiga þá hinar fjölmörgu og
fátæku barnafjölskyldur áfram að búa
við óöryggi og okurleigu og oft á tíð-
um í vondu húsnæði og á eilífum flæk-
ingi? Nýja gettóið er ekki hugsað sem
lausn fyrir þann hóp sem þuarf rúm-
gott alvöru húsnæði þar sem hann
getur búið í öryggi við sanngjarna
leigu.
Svo gettóhverfi er afleitt fyrir-
komulag, heldur ætti frekar að byggja
upp nýtt félagsíbúðakerfi með dreifðri
byggð, eitt eða tvö falleg fjölbýli sam-
an innan um aðra byggð hingað og
þangað á Stór-Reykjarvíkursvæðinu.
Fátækt fólk á ekki að búa á afmörk-
uðum svæðum til að sérmerkja það
frá öðru fólki.
Höfnum nýju gettói
Eftir Jóhann
L Helgason » Börn þjást ekki af
samanburðarsynd-
rómi. Það tilheyrir full-
orðnum.
Jóhann L Helgason
Höfundur er húsasmíðameistari.
Atvinnublað
alla laugardaga
mbl.is
JÓN BERGSSON EHF
HITAVEITUPOTTAR
Hitaveitupottar tilbúnir til notkunar - Plug & play
Þeir eru steyptir í heilu lagi og því alveg samskeytalausir
Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is
40
ÁRA
reynsla