Morgunblaðið - 14.08.2018, Qupperneq 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
✝ HafliðiJósteinsson
fæddist á Húsavík
19. mars 1941.
Hann lést á
Sjúkrahúsinu á
Húsavík 2. ágúst
2018.
Foreldrar hans
voru hjónin Krist-
jana Þórey Sig-
mundsdóttir, hús-
móðir, f. 25. nóv-
ember 1913, d. 4. október
1996, og Jósteinn Finnbogason
sjómaður, f. 3. október 1909,
d. 17. nóvember 1995. Systkini
Hafliða: Guðný, f. 9. febrúar
1932, d. 27. nóvember 2014,
Hreiðar, f. 28. mars 1933, og
Hafdís, f. 16. júní 1942.
Þann 25. desember árið
1968 kvæntist Hafliði Lauf-
eyju Jónsdóttur frá Fagranes-
koti í Aðaldal, f. 14. sept-
ember 1949. Foreldrar hennar
voru Jón Þórarinsson bóndi, f.
28. janúar 1916, d. 22. ágúst
2008, og Unnur Baldursdóttir
bóndi, f. 1. maí 1924. Börn
Laufeyjar og Hafliða: Inga
Björk, f. 14. febrúar 1970,
sambýlismaður Seydi Demir
og eiga þau tvo syni, Julian
Tarik f. 2002 og Henrik Le-
vent f. 2004. Unnur Mjöll, f.
21. nóvember 1972, sambýlis-
maður Viðar Njáll
Hákonarson og
eiga þau einn son,
Hlynur Snær f.
1997. Hjálmar
Bogi, f. 18. janúar
1980, sambýlis-
kona Hanna
Skúladóttir. Rakel
Dögg, f. 25. júlí
1981, maki, Gunn-
ar Jónsson, þau
eiga tvö börn,
Benedikt f. 2011 og Andrea f.
2013.
Hafliði ólst upp í Kirkjubæ
á Húsavík. Skólaganga var
með hefðbundnum hætti þess
tíma. Hann fór ungur að koma
fram og söng í mörgum
hljómsveitum. Hann starfaði
lengst af sem verslunarmaður
og síðustu ár sem tómstunda-
fulltrúi á Hvammi, heimili
aldraðra á Húsavík.
Hann var mikill áhugamað-
ur um knattspyrnu og lék
lengi með Völsungi og var
knattspyrnuþjálfari einnig.
Hann var áberandi í bæjarlífi
Húsvíkinga alla tíð. Hann
greindist með krabbamein
sem hann tókst á við af æðru-
leysi til hinsta dags.
Hann verður jarðsunginn
frá Húsavíkurkirkju í dag, 14.
ágúst 2018, klukkan 14.
„Frá ystu strönd til innstu
dala þá förum við samstiga
héðan út og vinnum saman“.
Þessi orð sem Hafliði lét oft
falla á fundum, ekki síst ef
leggja þurfti áherslu á sam-
stöðu, lýsa vel hugarfari og við-
horfi þessa góða drengs. Hann
gat verið hávær og látið til sín
heyra, kjarnyrtur og lá ekki á
skoðunum sínum, ekki alltaf
sammála öllu sem sagt var en
lagði að lokum áherslu á það já-
kvæða og nauðsyn samstöðunn-
ar.
Hann gekk snemma til liðs
við Framsóknarflokkinn og
studdi hann með ráðum og dáð
alla tíð eftir það. Á þeim vett-
vangi áttum við mikið og gott
samstarf og heill og óskiptur
stuðningur hans í flokksstarf-
inu var mér mjög mikils virði
meðan ég stóð í þeirri glímu.
„Komdu sæll og blessaður“,
þétt handtak, glaðlegt bros,
jafnvel hávær hlátur, var gjarn-
an viðmótið er við hittumst á
fundum og það var ósjaldan.
Laugardagsfundirnir heima á
Húsavík, kjördæmisþingin,
miðstjórnarfundir og flokks-
þing hefðu öll orðið svipminni
hefði Hafliða ekki notið við með
sinn djarfa og einarða málflutn-
ing. Hann var mikill félags-
málamaður, sannur fé-
lagshyggju- og
samvinnumaður, og lá aldrei á
skoðunum sínum.
Leiðir okkar Hafliða Jó-
steinssonar lágu fyrst saman
þegar báðir unnu hjá Kaup-
félagi Þingeyinga en þar vann
hann um áratugaskeið og sinnti
störfum af kostgæfni og trú-
mennsku eins og öllu öðru sem
hann tók sér fyrir hendur. Lík-
lega naut hann sín þó best þau
ár sem hann var tómstunda-
fulltrúi hjá Dvalarheimilinu
Hvammi.
Það starf höfðaði svo sann-
arlega til félagsmálamannsins
Hafliða. En best munum við
flest eftir honum sem tónlistar-
manni.
Hafliði hóf snemma að
syngja með danshljómsveitum
og eftirminnilegir eru dansleik-
ir í Hlöðufelli og víðar þar sem
Hafliði og hljómsveitir sem
hann starfaði með héldu uppi
fjörinu. Hann var einnig um
langt árabil söngmaður í Karla-
kórnum Hreimi og þar betri en
enginn. Og þó aldur færðist yf-
ir, og síðar glíman við erfið
veikindi, þá hætti gleðigjafinn
ekki að syngja og skemmta
fólki. Tónlistardúettinn „Haf-
liða og Frímann“ þekkja jafnt
ungir sem aldnir og mikið hafa
þeir félagar skemmt Húsvík-
ingum og öðrum á undanförn-
um árum. Síðast mun Hafliði
hafa sungið fyrir vini sína á
Hvammi fyrir örfáum dögum í
tengslum við nýafstaðna Mæru-
daga.
Hafliði var sannkallaður
gleðigjafi, væntumþykja fyrir
öðrum einkenndi alla hans
framkomu allt til hinstu stund-
ar. Húsvíkingar og við öll sem
þekktum hann höfum misst
mikið enda var hann í raun
„samfélagsleg eign“ okkar
allra.
Þegar við Vigga hittum hann
síðast, á kjördag vegna sveit-
arstjórnarkosninga nú í vor,
vissi hann að hverju stefndi en
léttur í lund og ákveðinn í að
nýta hverja stund. Var á förum
til Tenerife með sínum nánustu
og mun hafa notið vel þeirrar
ferðar. Og nú hefur þessi lífs-
glaði og hressi vinur kvatt okk-
ur og lagt í sína hinstu för,
ræðurnar, fundirnir og sam-
verustundirnar verða ekki
fleiri.
Hann lagði mikið til síns
samfélags og skilur eftir ljúfar
og góðar minningar sem við
munum öll varðveita. Við send-
um Laufeyju, fjölskyldu og öll-
um vinum hans okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Guðmundur Bjarnason.
Kæri vinur, þá hefurðu sung-
ið fyrir okkur í síðasta sinn,
tæpri viku fyrir andlát þitt. Við
drúpum höfði er við hugsum til
þín nú á þessari stundu, minn-
ing þín er björt og tær enda
veittirðu okkur öllum sem um-
gengumst þig birtu og fullt af
jákvæðni og einmitt þess vegna
reisum við höfuðið.
Við öll sem Húsavík byggj-
um þökkum þér fyrir allt sem
þú hefur gert fyrir okkur og
okkar fallega bæ, þú sem varst
alltaf til í allt og sagðir aldrei
nei enda var orðið nei ekki til í
þínum orðaforða hvort heldur
var að skemmta börnum leik-
skólans, gamla fólkinu þínu á
Hvammi eða í Skógarbrekku.
En einmitt á Hvammi áttirðu
þín allra bestu ár eins og þú
margsagðir og við sem störf-
uðum þar með þér urðum vitni
að þeirri væntumþykju sem þú
sýndir skjólstæðingum þínum
þar og þau endurguldu til þín.
Enda hélstu áfram að koma í
Hvamm og þá oft með vini þín-
um Frímanni til að létta fólkinu
stundir með söng og glensi og
ykkur vinunum verður fullseint
þakkað það starf. Oft höfum við
farið saman yfir stöðu mála í
fótboltanum, bæði hjá okkar fé-
lagi Völsungi og svo okkar
mönnum í Leeds, manstu þegar
við fórum til Leeds, þú kysstir
grasið á Elland Road og sú
mynd sem ég tók af þér þar
gleymist seint.
Einnig var það tær snilld
þegar þú hittir gömlu átrún-
aðargoðin þín Peter Lorimer
og Eddy Gray og fórst yfir leiki
með þeim og lýstir gömlum
leikjum og fórst yfir atburði
sem þeir voru fyrir löngu búnir
að gleyma. Þeir skildu hvorki
upp né niður í þessu hjá þér
þar sem þú hafðir ekkert séð
þessa leiki heldur bara hlustað
á BBC í útvarpi. En nú ertu
búinn að pakka niður í gömlu
Leeds-töskuna í síðasta sinn
þar sem þú hefur geymt nú síð-
ustu árin tónlistardótið þitt.
Hún var afar góð til þess
arna eftir að knattspyrnuiðkun
þinni lauk. Þú gegnheili fram-
sóknarmaður, að vart eru til
eins massífir hér á landi, sagðir
mér eitt sinn er við vorum að
kýta um pólitík að ég myndi sjá
ljósið síðar og þá þegar ég
fengi meira vit, og þegar ég
upplýsti þig um að ég væri ein-
dreginn stuðningsmaður
Hjálmars sonar þíns til sveit-
arstjórnar – að sjá það bros
sem yfir þig kom og þann hlát-
ur sem fylgdi var hrein unun,
það hreinlega ískraði í þér. Um
leið minntirðu mig á orðin þín,
það var eins og þetta væri
skrifað í skýin finnst mér núna
þegar ég rita þér þessi kveðju-
orð.
Allt sem þú hefur áorkað í
lífinu er hreint út sagt magnað
fyrir lítið bæjarfélag eins og
Húsavík, þú varst gullmoli,
endalaus sjálfboðavinna fyrir
samfélagið og fólkið sem í því
býr en einmitt þannig verða til
góð samfélög með mönnum eins
og þér.
Það þyrfti fleiri eins og þig,
kæri vinur, og það bara hlýtur
að hafa verið tekið vel á móti
þér hvar sem þú ert, sennilega
ertu búinn að taka nokkur góð
lög með föður mínum heitnum,
t.d. Danny Boy eða Angeliu,
hver veit.
Eitt veit ég og það er að
Húsavík hefur misst einn sinn
allra besta mann og það skarð
verður vandfyllt.
Ég kveð þig, kæri vinur
minn, með sorg í hjarta en
samt gleði og þakklæti fyrir að
hafa átt þig sem góðan vin í
fjöldamörg ár. Fjölskyldu þinni
allri sendi ég mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Pétur Helgi Pétursson.
Kveðja frá Völsungi
Fallinn er frá Hafliði Jó-
steinsson.
Hann var góður og dyggur
Völsungur sem sýndi það með
farsælli aðkomu að flestum
málefnum félagsins.
Hafliða þótti vænt um
heimabæ sinn og lét sig ýmis
mál er tengjast menningu og
listum varða.
Jafnan var hann sjálfboðaliði
á þeim akri. Slíkir menn eru
ómetanlegir hverju samfélagi.
Hafliði stundaði skipulagðar
æfingar í knattspyrnu með Völ-
sungi í áratugi eða frá því að
hann var 15 ára til 37 ára ald-
urs. Hafliði er í hópi leikja-
hæstu leikmanna sem spilað
hafa með Völsungi í knatt-
spyrnu. Hann var í sigurliði
fyrstu Íslandsmeistara Völ-
sungs í 3. deild frá árinu 1967
og spilaði alla tíð sem
miðvallarleikmaður.
Hann sat í stjórn knatt-
spyrnudeildar sem formaður til
margra ára og einnig þjálfaði
hann yngri flokka í nokkur ár.
Þá sat Hafliði í aðalstjórn fé-
lagsins til fjölda ára sem vara-
formaður.
Hafliði var ávallt reiðubúinn
að sinna ýmsum störfum innan
félagsins þegar til hans var
leitað. Hann lagði alla tíð mikla
áherslu á uppeldis- og mennt-
unargildi íþrótta og hve Völ-
sungur væri mikilvægur okkar
samfélagi. Honum verður seint
fullþakkað fyrir öll þau skipti
sem hann kom að þátttöku við
jólatrésskemmtanir Völsungs.
Hafliði var duglegur að
mæta á heimaleiki Völsungs og
stappa stálinu í sína menn.
Brekkan ómaði jafnan af hvatn-
ingarhrópum hans, svo ekki gat
farið framhjá neinum.
Hafliði var sæmdur gull-
merki Völsungs árið 2015 fyrir
störf sín í þágu félagsins. Þá
hefur hann hlotið gull- og silf-
urmerki KSÍ fyrir framlag sitt
til knattspyrnunnar.
Um leið og Völsungur þakk-
ar Hafliða fyrir óeigingjarnt og
farsælt framlag hans til
íþrótta- og félagsstarfs á Húsa-
vík vottum við eiginkonu, börn-
um, tengdabörnum og barna-
börnum okkar dýpstu samúð.
Guðrún Kristinsdóttir,
formaður Völsungs.
Falinn er frá einn af allra
eftirminnilegustu flokksmönn-
um okkar framsóknarmanna.
Staðfastur, réttsýnn, traustur
vinur og mikilvægur samherji.
En einnig hafði Hafliði einstakt
lag á að hafa gleðina hvar sem
hann var. Söngmaður var hann
góður og munnharpan ekki
fjarri.
Hafliði var góður ræðumaður
og lá ekki á liði sínu að taka
orrustur fyrir málstað okkar.
Var hann duglegur að minna
fundarmenn á að þótt hart
hefði verið tekist á innan okkar
raða ættum við að fara sam-
stiga út og vinna saman.
Það hefur okkur framsókn-
armönnum auðnast.
Hafliði barðist við illvígan
sjúkdóm og varð að lúta, en bar
höfuðið hátt til hins síðasta.
Horfinn er á braut góður
drengur, ég minnist Hafliða
með þakklæti.
Ég votta fjölskyldunni mína
dýpstu samúð.
Sigurður Ingi
Jóhannsson, formaður
Framsóknarflokksins.
Hafliði
JósteinssonÁstkær frænka okkar,
PÁLÍNA JÓNA ÁRNADÓTTIR,
fóstra,
sem lést á Dvalarheimilinu Grund
föstudaginn 3. ágúst, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju miðvikudaginn 15. ágúst
klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Umhyggju, félag langveikra barna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Árni Stefán Björnsson og Pálína Árnadóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR ÞÓRHALLSSON,
Laugarnesvegi 89,
lést á Hrafnistu Reykjavík að kvöldi
fimmtudagsins 2. ágúst.
Útför fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 16. ágúst klukkan 15.
Sigríður Benediktsdóttir
Helga Sigurðardóttir Viðar Aðalsteinsson
Þórey Viðarsdóttir
Helga Sóley Viðarsdóttir Kristján Már Gunnarsson
Rósa Sigurðardóttir
Torfi S. Gíslason Arna Lind Kristinsdóttir
Gísli Berg Torfason
Elsku pabbi minn, sonur okkar, bróðir og
barnabarn,
EINAR KRISTJÁN GUÐMUNDSSON
Tjarnarbóli 14,
Seltjarnarnesi,
lést fimmtudaginn 2. ágúst.
Útför hans fer fram frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn
16. ágúst klukkan 15.
Alía Margrét Einarsdóttir
Guðmundur Gunnarsson Thassanai Thaebthao
Ingifríður Ragna Skúladóttir Guðmundur Guðbjartsson
Guðmundur Dór Guðmunds. Hrafnkell Skúli Guðmundsson
Alexía Ýr Magnúsdóttir
Patrik Birnir Guðmundsson
Aron Máni Guðmundsson
Margrét Dóra Guðmundsd. Moritz W. Sigurðsson
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐLAUG ÓLAFSDÓTTIR,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli
4. ágúst.
Útförin verður frá Digraneskirkju
föstudaginn 17. ágúst klukkan 13.00.
Ólafur Hákonarson Elísabet Jakobsdóttir
Hrefna Hákonardóttir
Hákon Hákonarson Þorbjörg Böðvarsdóttir
Halldóra Sigurþórsdóttir Sigurbjörn Guðmundsson
Sigurður Sigurþórsson Olga Pétursdóttir
Guðný Sigurþórsdóttir Erlingur Þórsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÓLÖF GUÐBJÖRG PÁLSDÓTTIR,
Tungumel 15, Reyðarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Uppsölum
miðvikudaginn 8. ágúst.
Útförin fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju föstudaginn 17. ágúst
klukkan 14.
Viðar Júlí Ingólfsson Anna Sigríður Karlsdóttir
Ingi Jóhann Ingólfsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg sambýliskona, móðir,
tengdamóðir, systir, amma og langamma,
MARGRÉT BJÖRNEY
GUÐVINSDÓTTIR,
Hólavegi 22,
Sauðárkróki,
lést á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki föstudaginn 10. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 24. ágúst
klukkan 14.
Haukur Björnsson
Óskar Guðvin Björnsson Erla Kjartansdóttir
Guðni Ragnar Björnsson Anna Marie Stefánsdóttir
Lovísa Birna Björnsdóttir Vigfús Vigfússon
Björn Jóhann Björnsson Edda Traustadóttir
Stella Guðvinsdóttir
ömmubörn og langömmubörn