Morgunblaðið - 14.08.2018, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018 25
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
NP Þjónusta
Býð fram liðveislu við bókanir, reikn-
ingsfærslur o.fl.
Hafið samband í síma 649-6134.
Ýmislegt
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílar
Til sölu, M-Benz, E-220. Diesel.
Fyrst skr. 07/13. Mjög fallegur bíll.
Ekinn aðeins 53 þ. km. 170 hö. Vel
útbúinn, m.a. stór eldsneytistankur,
bakkmyndavél.
Ásett 4.250 þús. Upplýs: 8963394.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Hjólhýsi
Til sölu hjólhýsi
A-liner Sofa Bed DL loftpúðar
Árg. 2008. Nýskoðað til 2020. Hús í
mjög góðu lagi. Tilbúið í berjaferðina.
Verðhugmynd kr. 1.590 þúsund.
Sími 893 7065.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Atvinnuauglýsingar
Bókari/Sölumaður
32 ára iðnfyrirtæki/heildsala óskar eftir
bókara, sem sér einnig um símvörslu.
Vinnutími 8:30-16:30, þrjá daga vikunnar,
10:00-18:00, tvo daga vikunnar (samkomu-
lagsatriði).
Upplýsingar um starfið:
elin@krumma.is (ekki í síma)
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar.
Hádegisverður frá kl. 11.30-12.30 og kaffisala alla virka daga frá kl.
14.30-15.30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi fram í miðjan ágúst.
Úti-botsíavöllur verður á torginu í sumar og við minnum á qigong á
Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga kl. 11. Verið hjartanlega
velkomin. Vitatorg, sími 411-9450.
Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að
panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu
er selt frá kl. 14-15.30. Félag eldri borgara í Garðabæ, 565-6627, skrif-
stofa opin miðvikudaga kl. 13.30-15.30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi
kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, gönguferð um hverfið kl. 13.30 og eftirmið-
dagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl. 9-16, brids kl.13, bókabíll kl.14.30,
Bónusbíll 14.55, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri.
Nánari í síma 411-2790.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness kl. 7.15. Kaffi-
spjall í króknum kl. 10.30. Pútt á golfvellinum kl. 13.30. Brids í Eyðis-
mýri kl. 13.30. Ath. miðvikudaginn 15. ágúst kl. 13.20 ætlum við á
Gæðastund í Listasafni Íslands í tilefni 100 ára fullveldisafmælis
Íslands. Leiðsögn, kaffi og bakkelsi á eftir. Skráning og upplýsingar í
síma 8939800. Skráningarblöð eru á Skólabraut og Eyðismýri.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur
kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl.
14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
✝ Ásgeir Longfæddist á
Brekkugötu 11 í
Hafnarfirði 16.
september 1927.
Hann lést á Hrafn-
istu í Hafnarfirði 3.
ágúst 2018.
Foreldrar Ás-
geirs voru Valdi-
mar Sigmundsson
Long, kaupmaður í
Hafnarfirði, f. 9.
janúar 1884, d. 21. ágúst 1964,
og Arnfríður Sigurrós Ein-
arsdóttir, kennari og húsfreyja
í Hafnarfirði, f. 1. nóvember
1886, d. 18. mars 1960.
Systkini Ásgeirs voru Einar
Foss Long, f. 1. apríl 1914, d. 5.
janúar 1983, og Ásdís Valdi-
marsdóttir Long, f. 11. febrúar
1921, d. 26.október 1927.
Eiginkona Ásgeirs var Guð-
björg Gunnarsdóttir, húsmóðir,
f. 18. júní 1927, d. 13. júlí 2004.
Börn þeirra eru: 1) Valdimar
Long, f. 10. desember 1958, 2)
Björg Long, f. 17. desember
1960. Eiginmaður hennar er
Karl Þorvaldsson, f. 24. sept-
ember 1960. Börn hennar af
fyrra hjónabandi eru: a) Ásdís
árið 1978 sem var starfrækt í
mörg ár í nágrenni heimilis
hans.
Ásgeir helgaði líf sitt kvik-
myndagerð og var frægasta
kvikmynd hans, Gilitrutt (1957)
meðal annars í hópi þeirra
fyrstu í íslenskri kvikmynda-
sögu. Aðrar kvikmyndir sem
Ásgeir hefur gert eru Tunglið,
tunglið taktu mig (1955), Ís-
lenskt skart (1968), Lax í Laxá
(1969), Virkjun (1972) og Saga
um lágmynd (1990). Auk fjölda
heimildamynda og auglýsinga
en hann dvaldi meðal annars á
Spáni við upptökur fyrir ferða-
skrifstofu.
Hann stofnaði framleiðslufyr-
irtækið Kvik sf. ásamt Páli
Steingrímssyni og Ernst Kettler
í upphafi árs 1973. Fyrsta kvik-
myndin sem fyrirtækið fram-
leiddi var Eldeyjan en hún
hlaut verðlaun á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Atlanta í
Bandaríkjunum. Hann var líka
einn af stofnendum Félags kvik-
myndagerðarmanna auk þess
sem hann flutti inn og sá um
uppsetningu á kirkjuklukkum í
um 60 ár. Hann hafði líka gríð-
arlegan ljósmyndaáhuga og eft-
ir hann liggja ótal ljósmyndir.
Útför Ásgeirs fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 14.
ágúst 2018, klukkan 13.
Björg Jóhann-
esdóttir, f. 8. júní
1980, barn Hrönn
Bergþórsdóttir
Smári, f. 5. apríl
2009. b) Ásgeir
Ingi Jóhannesson
Long, f. 25. sept-
ember 1984, maki
Rebeca Cedron, f.
10. júní 1983. Faðir
þeirra er Jóhannes
Davíðsson. c)
Rögnvaldur Ágúst Ragnarsson
Long, f. 12. júní 1995. Faðir
hans er Ragnar Rögnvaldsson.
Ásgeir ólst upp á Brekku-
götu 11 í Hafnarfirði en bjó
lengst af í Lyngási 2 í Garðabæ
með Guðbjörgu og börnum sín-
um.
Hann gékk í barnaskóla í
Hafnarfirði og stundaði síðar
nám í Iðnskólanum í Hafn-
arfirði og svo í Vélstjóraskól-
anum. Hann útskrifaðist sem
vélstjóri og rennismiður og
vann nokkur ár á sjó sem vél-
stjóri.
Hann stofnaði vélaverkstæð-
ið Litlu vinnustofuna árið á
1953. Hann stofnaði einnig
báta- og vélaverkstæðið Barco
Lítil auglýsing getur orðið til
þess að leiðir fólks liggi saman
í lífinu. Oftast verða kynnin
stutt en stundum verður til vin-
átta sem varir.
Þannig kynntumst við hjónin
þeim Ásgeiri og Guðbjörgu. Við
vorum ung og peningalítil,
nýbúin að stofna heimili, þegar
Örn sá auglýst eftir vélvirkja í
vélsmiðju Ásgeirs Long í Hafn-
arfirði.
Það kom sér vel að geta
fengið þar aukavinnu þegar
honum hentaði. Fljótt varð
mikill samgangur á milli heim-
ilanna, börnin á svipuðum aldri
og áttum við ótal góðar stundir
á hlýlegu heimili þeirra, fyrst á
Reykjavíkurveginum, seinna á
Reykjalundi og loks í Garða-
bænum.
Hjálpsemi var þeim Guð-
björgu eðlislæg. Þegar ég
þurfti að fara inn á sjúkrahús í
nokkra daga voru þau óðara
komin að sækja drengina okk-
ar.
Á þessum árum var bílakost-
ur okkar hjónanna heldur
óburðugur og þótti Ásgeiri
sjálfsagt að lána okkur vel út-
búna ferðabílinn sinn svo við
gætum farið í gott ferðalag
með strákana. Í annað skipti
vorum við komin upp á Kjal-
arnes á leið í útilegu þegar
garmurinn okkar bilaði. Ásgeir
mætti á staðinn, dró hann heim
og lánaði okkur bílinn sinn til
að við gætum haldið okkar
striki.
Á árunum sem þau bjuggu á
Reykjalundi vissu synir okkar
fátt skemmtilegra en að dvelja
hjá þeim í rólegu umhverfi
sveitarinnar og systkinin Valdi-
mar og Björg voru þeim góðir
leikfélagar.
Þegar við hjónin brugðum
okkur til útlanda gátum við far-
ið áhyggjulaus af bæ ef við
vissum af þeim í örygginu hjá
Guðbjörgu og Ásgeiri.
Þau höfðu yndi af ferðalög-
um og útilegum og frábært var
að ferðast með þeim innan-
lands. Einnig áttum við
ánægjulega daga saman í
Þýskalandsferðinni okkar.
Ásgeir var hugmyndaríkur
og skapandi einstaklingur, þús-
und þjala smiður, frumkvöðull í
kvikmyndagerð á Íslandi, frá-
bær ljósmyndari en umfram
allt drengur góður.
Á kveðjustund er okkur efst
í huga þakklæti fyrir ómetan-
lega vináttu þessara góðu hjóna
og barna þeirra í gegnum árin
um leið og við sendum Valdi-
mar, Björgu og öðrum ástvin-
um innilegar samúðarkveðjur.
Sigríður og Örn
Engilbertsson.
Ásgeir Long
✝ Dr. Helena Ka-deèková fædd-
ist í Prag 14. ágúst
1932. Hún lést 30.
júní 2018.
Eftir nám við
Karls-háskóla
starfaði hún við
Germönsku- og
norrænudeild hans
1958-2011. Þrisvar
nam hún við Há-
skóla Íslands, fyrst
1957, og lauk prófi í íslensku
fyrir erlenda stúdenta 1965.
Hún birti fjölda fræðigreina og
ritgerða, samdi barnabókina
Óli, þinn íslenski félagi og bæk-
urnar Ragnarök, norrænar goð-
sögur og sagnir; Saga nor-
rænna bókmennta, miðaldir og
Saga Íslands.
Eftir 1960 tóku að birtast
þýðingar hennar úr íslensku, sú
fyrsta voru Litbrigði jarð-
arinnar eftir Ólaf Jóhann Sig-
urðsson 1964, sú
síðasta Aðventa
Gunnars Gunn-
arssonar 2017.
Af norrænum
fornritum þýddi
hún Eddu og Yng-
linga sögu Snorra
Sturlusonar ásamt
frásögn Saxa fróða
af Hamleti Dana-
prinsi. Eddu- og
Ynglingaþýðingin
var 1989 verðlaunuð sem „Þýð-
ing ársins“ af Tékkneska bók-
menntasjóðnum.
Árið 1999 veitti Alþjóða-
samband þýðenda Helenu orðu
Karels Capek fyrir þýðingar.
Þá hlaut hún íslensku fálkaorð-
una fyrir kynningu íslenskrar
menningar erlendis. Norðmenn
veittu henni tvær orður Ólafs
helga.
Sálumessa verður í Prag í
dag.
„Stórelskulega Helena mín!“
voru ávarpsorð Þórbergs Þórðar-
sonar í bréfaskiptum við vinkonu
sína Helenu. Hún bar gæfu til að
kynnast mörgu úrvalsfólki ís-
lenskrar samtímamenningar, auk
Þórbergs má nefna hjónin Þor-
geir Þorgeirson og Vilborgu Dag-
bjartsdóttur. Þau kynni báru
góðan ávöxt.
Helena tók íslenskt mál,
menningu og þjóðlíf föstum tök-
um: fór með vélbáti í fiskiróður
undir Jökli vorið 1958, saltaði síld
á Siglufirði, vann í frystihúsi í
Reykjavík, við heyskap í Eyja-
firði og á Hala í Suðursveit og
ávann sér hrifningu og aðdáun
fyrir þekkingu sína og skilning á
flestu er að Íslandi lýtur.
Daginn sem Dubèek tók við
völdum í heimalandi hennar varði
Helena doktorsritgerð sína
„Upphaf íslenskra nútímabók-
mennta“.
Nú fór í hönd vonglaður um-
brotatími, Vorið í Prag. „Það er
leitt að þú skulir ekki vera hérna
nú og upplifa þetta með okkur“
skrifaði Helena á póstkorti ís-
lenskum kunningja.
Síðar sama ár kæfðu skrið-
drekar þessa vorþíðu („Rússnesk
ungmenni, gangið í herinn og
kynnist nýjum löndum“, sögðu
meinháðskir landar góða dátans).
Myrk ár fóru í hönd og nú voru
athöfnum Helenu settar þröngar
skorður, en þýðingar gat hún
stundað.
Í grein í Ritmennt sem ber
heitið „Játning þýðanda til Hall-
dórs Laxness“ segir Helena um
þýðingu sína á Brekkukotsannál:
„Meðan ég var að þýða bókina
lifði ég í eins konar Íslandsvímu
og gleymdi alveg hinum tékk-
neska veruleika. Getur nokkurt
listaverk gefið lesanda sínum
meira? Getur fundur höfundar og
þýðanda orðið innilegri?
Síðan þýddi ég tvær skáldsög-
ur Halldórs til viðbótar, en
Brekkukotsannáll var dýrsta gjöf
hans til mín. Ég gleymdi að
þakka honum fyrir það meðan
hann var enn á lífi.“
Árni Björnsson, Baldur
Sigurðsson, Dina Haralds-
son, Haukur Jóhannsson,
Helgi Haraldsson, Lenka
Zimmermannová, María
Hauksdóttir, Olga María
Franzdóttir, Vilborg
Dagbjartsdóttir.
Helena Kadeèková
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,
Minningargreinar