Morgunblaðið - 14.08.2018, Síða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Möguleikar til tekjuöflunar eru góðir
í dag og aðstæður fyrir verslun og viðskipti
hagstæðar. Hertu upp hugann og drífðu
hlutina af.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú átt gott með að koma fyrir þig orði
og skalt nú viðra gamlar hugmyndir við fé-
laga þinn. Notaðu daginn til þess að gera
góðverk, það er svo gott fyrir sálina.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér finnst þú loksins reiðubúin/n
til að tjá þarfir þínar og pælingar. Vertu
öðruvísi, það fer þér best.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér verður að öllum líkindum falin
aukin ábyrgð sem verður til þess að þú
verður í sviðsljósinu næstu vikur. Ekki liggja
á liði þínu, heldur kastaðu þínum málum
fram til umræðu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Allt sem þú hefur lagt á þig að undan-
förnu er að byrja að skila árangri. Þér finnst
þú utanveltu í vinnunni. Það á þó eftir að
lagast.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ef þú tekur tíma í að fara yfir trygg-
ingamál, reikninga og sameiginlegar eignir
mun þér miða áfram. Farðu aðra leið heim
úr vinnunni eða kíktu í bókabúð eða á bóka-
safn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér gefast mörg tilefni til upplyftingar
en vertu vandlát/ur og veldu þér skemmtun
við hæfi. Sem betur fer áttu þér mun fleiri
jábræður en andstæðinga.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Lífið þitt er líkast ævintýri
þessa dagana. Brjóttu þér nýjar leiðir og
bættu við menntun þína til að mæta nýjum
áskorunum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Skyndilegar breytingar heima
fyrir gætu átt sér stað. Sestu nú niður og
farðu vandlega í gegnum fjármálin. Ræddu
framtíðardrauma þína við aðra og vittu hvað
þeir segja.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er mikið að gera í dag og þér
finnst eins og allir þurfi á þér að halda.
Mundu að ekki er allt gull sem glóir og
dreifðu áhættunni sem mest.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sinntu aðeins þeim málum sem
eru efst á baugi og láttu allt annað bíða á
meðan. Reyndu samt að draga réttar álykt-
anir og þá ertu á grænni grein.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Allt sem er tengt fjármálum og við-
skiptum lítur vel út í dag. Prófaðu að gera
eitthvað nýtt á hverjum degi í eina viku.
Þýðingar Ólafs Stefánssonar áljóðum Heinz Erhardt eru
skemmtilegar og gef ég honum
orðið: „Fræg er ballaða Schillers,
Kafarinn, sem er harmrænt sögu-
ljóð og segir frá því er smákóngur,
á yfirsnúningi, manar riddara sína,
hver þori að kasta sér af kletti í
ólgandi brimröst og kafa eftir gull-
bikar, sem kóngi þóknast að henda
í djúpið sér til skemmtunar. Einn
lætur tilleiðast og nær bikarnum úr
hafinu með guðs náð og heppni.
Þetta er kóngi ekki nóg og hann
heimtar töku tvö. Og nú lofar hann
dóttur sinni í verðlaun. Yngis-
sveinninn þolir ekki frýjunina og
steypir sér í aftur í röstina. En eins
og mælt er það á ekki að freista
guðanna, og pilturinn hefur ekki
sést síðan. Mikill harmur var kveð-
inn að dóttur kóngs og öll sagan
kostaði 27 erindi, 6 línur hvert, hjá
Schiller. Samtals 162 braglínur!
Heinz Erhardt gat auðvitað ekki
látið svona fallega rómantík í friði
og sneri út úr öllu saman í miklu
styttra máli og komst að allt ann-
arri niðurstöðu:
„Hver hefur þor til að þreyta hér raun,
við þrúgandi hafsins dyn,
að sækja bikar sem hef ég í hönd,
en nú hendi í sjávarins gin.
Sá kappi’ er mér fyrstur hann færir til
baka,
skal fá mína dóttur og eiga sem
maka.“
Hann bikarnum fleygði.
Í röstinni eygði
riddaraskari, að sökk hann sem blý.
Þeir litu þá undan
með allri skundan,
en Hilmir rödd sína hóf upp á ný:
„Hver hefur þor og þrek og afl,
að þreyta við hafið endatafl?
Sá er til hættir, ég sver þess eiða,
hans sælan bíður með leiðina greiða.
Þau giftast og erfa mig – engin svik.
Að eiga svo bikarinn, hægt er um vik.“
Þeir létu sig hverfa og læddust brott.
Um löngun að kafa sá engan vott.
Því dóttirin afspyrnu ófríð var.
Og enn liggur bikarinn týndur þar.
Helgi R. Einarsson orti „Rugl“:
Þegar að Þórarinn drekkur
í þvermóðskugírinn oft hrekkur.
Það athygli vekur
er aðhlaup hann tekur
og upp á nef sér svo stekkur.
Og hér gerir Helgi „Dánar-
orsök“ að yrkisefni:
Vesalings Haraldur Hró
hætti að anda og dó.
Ástæðan var
að Ólafur Mar
hausinn af ’onum hjó.
Halldór Blöndal
halldorblondal@mbl. is
Vísnahorn
Kafarinn, rugl og dánarorsök
Nánast allir sem Víkverji þekkirhyggja á að taka á sprett í
Reykjavíkurmaraþoninu um næstu
helgi. Hvar sem komið er reyna
væntanlegir þátttakendur að fá Vík-
verja til að heita á sig til styrktar ein-
hverju af þeim fjölmörgu góðu mál-
efnum sem þeir ætla að hlaupa fyrir.
x x x
Þeir einu sem Víkverji man eftir ífljótu bragði, sem ekki ætla að
hlaupa, eru nokkur örvasa gamal-
menni sem ekki eru til stórræðanna
þegar kemur að líkamlegum afrekum,
húðlatir unglingar sem virðast hafa
það að markmiði sínu í lífinu að hreyfa
sig eins lítið og þeir komast mögulega
upp með og svo er það Víkverji sjálf-
ur.
Víkverji reimar reyndar af og til á
sig hlaupaskóna þótt það skuli játað
hér og nú að ekki sé það jafn oft og
honum væri hollt. En einhverra hluta
vegna hafa almenningshlaup aldrei
höfðað sterkt til Víkverja og hann kýs
að stunda þessa iðju sína einn síns liðs.
x x x
Kannski væri ráð að gera gangskörað því að breyta því viðhorfi.
Hugsanlega myndi Víkverji fara oftar
út að hlaupa ef hann hefði að ein-
hverju á borð við almenningshlaup að
stefna. Hvað þá ef hægt væri að slá
tvær flugur í einu höggi og safna fé
fyrir góðu málefni í leiðinni.
Sérfræðingar segja að flest það
sem við gerum, hugsum eða finnum sé
vegna þess sem við höfum vanið okkur
á. Víkverji hefur lesið sér til um venj-
ur og hvernig breyta megi þeim. Sam-
kvæmt því tekur um þrjár vikur að til-
einka sér nýjar venjur, svo
framarlega sem sama athöfnin er
framkvæmd alla dagana. Þrjár vikur
eru ekkert sérlega langur tími sé tekið
mið af því að á þeim tíma geti fólk
bætt líf sitt umtalsvert með því að
bæta venjur sínar.
Þar sem fjórir dagar eru nú í
Reykjavíkurmaraþonið hefur Víkverji
ekki nægan tíma til umráða til að
bæta venjur sínar að ráði fyrir þann
tíma. En hlaupið verður væntanlega
haldið aftur að ári og á einu ári eru
sautján sinnum þrjár vikur. Það býður
upp á ýmsa möguleika til að bæta lífs-
hætti sína.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég veit að lausnari minn lifir og
hann mun síðastur ganga fram á
foldu.
(Jobsbók 19.25)