Morgunblaðið - 14.08.2018, Page 31
Menning
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Bræðurnir Örnólfur Thorsson for-
setaritari og Guðmundur Andri
Thorsson, rithöfundur og þingmað-
ur, hafa gefið Safnasafninu á Sval-
barðsströnd safn myndlistarverka
eftir föður sinn, Thor Vilhjálmsson
rithöfund. „Við gáfum listaverkin
til Safnasafnsins vegna þess að
pabbi hafði tengsl við safnið og
þekkti þau Magnhildi [Sigurðar-
dóttur] og Níels [Hafstein]. For-
eldrar mínir höfðu búið hjá þeim
og með þeim var góð vinátta,“ seg-
ir Guðmundur Andri Thorsson í
samtali við Morgunblaðið, að-
spurður af hverju þeir bræður
völdu að færa Safnasafninu mynd-
listarsafn Thors.
Ekki til betri staður fyrir safnið
„Harpa Björnsdóttir myndlistar-
maður sett upp mjög fallega og
skemmtilega sýningu á verkum
Thors í Safnasafninu fyrir þremur
árum. Okkur fannst svo vel að því
staðið að við sáum að þetta væri
rétti staðurinn fyrir málverkin
hans. Aðalatriðið er auðvitað að
safnið sjálft er einstakt og að mínu
mati það flottasta á landinu. Ég get
því ekki hugsað mér betri stað og
ég veit að þau Níels og Magnhildur
munu finna leið til að sýna verk-
unum sóma,“ segir Guðmundur
Andri að auki um hvers vegna
Safnasafnið varð fyrir valinu.
Aðspurður hversu mörg verkin
séu í safni Thors segir Guðmundur
Andri að þau séu nokkur hundruð
talsins. „Bæði stærri málverk og
minni, unnin með ýmsum litum og
aðferðum,“ segir Guðmundur. „Við
pökkuðum þeim vel og vandlega
inn með hjálp frá Hörpu Björns-
dóttur og afhentum verkin nánast
eins og þau lögðu sig. Náttúrlega
héldum við einhverjum verkum eft-
ir fyrir okkur og okkar fjöl-
skyldur,“ segir Guðmundur að-
spurður hvort öll málverkin hafi
verið afhent eða hvort það verði
gert í nokkrum hlutum.
Hann segir föður sinn hafa notað
myndlistina til að hvíla sig á rit-
störfum. „Hann hafði mikla ánægju
af myndlistinni og var afkastamikill
en hann leit ekki beinlínis á sig
sem myndlistarmann. Fyrst og
fremst var myndlistin honum til
ánægju og það er einnig í þeim
anda sem við færum Níels og
Magnhildi á Safnasafninu mál-
verkasafnið,“ segir Guðmundur
Andri um föður sinn.
Byrjaði ungur í myndlist
Myndlistarferill Thors hófst þeg-
ar hann var ungur maður í París
kringum 1950. „Þar er hann að
stunda myndlist og gerir grafík-
verk. Hann var með grafíkmyndir í
sínum fyrstu bókum en auk þess
gerði hann bókarkápurnar sjálfur.
Safnið inniheldur myndir frá þeim
tíma og alveg til hans hinsta dags.
Það er því hægt að sjá hvernig
hann þróast og breytist sem mynd-
listarmaður,“ segir Guðmundur
Andri.
Þá bendir hann einnig á að Thor
umgekkst marga myndlistarmenn
síns tíma og skrifaði m.a. um Kjar-
val, Svavar Guðnason og Tryggva
Ólafsson. „Hann var því ávallt í
nánu sambandi við myndlistarmenn
og myndlist. Þetta var hans stóra
ást fyrir utan skriftirnar,“ segir
Guðmundur Andri.
Aðspurður hvort eitthvað liggi
fyrir um sýningar á verkum Thors
í Safnasafninu segir Guðmundur
Andri að slíkar sýningar verði ef-
laust á dagskrá í framtíðinni en
enginn ákveðinn tími hafi verið
sleginn niður eins og er. „Þau Níels
og Magnhildur eiga eftir að fara í
gegnum verkin og eftir það geta
þau gert sér betri grein fyrir því
hvernig þau ætla að standa að því
að sýna verk úr safninu,“ segir
Guðmundur.
Færðu Safnasafninu
myndverk Thors
Myndlistarverk
Thors Vilhjálms-
sonar eru mörg
hundruð talsins
Sterk tengsl við
Safnasafnið
Mynd eftir Thor Guðmundur Andri og Örnólfur Thorssynir sýna hér eitt
verka föður síns, Thors Vilhjálmssonar. Myndin er nafnlaus. Bræðurnir
gáfu Safnasafninu hundruð verka Thors, sem vann myndir milli skrifta.
Sumarið er tími allrahanda tón-
listarhátíða út um löndin og í þorp-
inu Guca í Serbíu er árlega haldin
hátíð helguð trompetleik og lúðra-
sveitum þar sem trompetinn er í fyr-
irrúmi. Nokkur þúsund manns sóttu
þessa frægu blásturshátíð um liðna
helgi. Þar ríkti glaumur og gleði frá
morgni og fram á nótt, með skrúð-
göngum og fjörmiklum leik í hinum
ýmsu sölum og á torgum, og dunaði
dansinn víða undir blæstrinum.
AFP
Hornaþytur Gestir á hátíðinni í Guca njóta þess að leika á hljóðfærin og hlusta á tilþrif annarra gesta við blásturinn.
Stund milli stríða Nokkrir hljóðfæraleikaranna standa hjá hljóðfærum sín-
um á götu í Guca, hlýða á aðra og bíða eftir að fá að leika meira.
Lúðrablást-
ur heila helgi
Legsteinn var afhjúpaður á gröf
enska skáldsins og myndlistar-
mannsins Williams Blake (1757-1827)
í London á laugardaginn var, 191 ári
eftir að hann lést. Þar með lauk fjór-
tán ára leit tveggja aðdáenda lista-
mannsins að gröfinni og baráttu
þeirra fyrir því að fá hana merkta
með sómasamlegum hætti.
Þegar þau Carol og Luis Garrido
fóru að heimsækja gröf Blake í Bun-
hill Fields árið 2004 kom þeim, sam-
kvæmt The Guardian, á óvart að
finna einungis minningarmark sem
sagði að líkamsleifar þeirra eiginkonu
hans lægju „þar nærri“. Þau lögðust
yfir skjöl og heimildir, til að finna ná-
kvæma staðsetningu grafarinnar.
Þegar Blake lést var kista hans sú
fimmta af átta sem grafnar voru í
grafreitnum og voru minningarmörk
á leiðunum. En eftir að þau gengu úr
lagi í sprengjuárás á London í seinni
heimsstyrjöldinni var svæðinu breytt
í almenningsgarð og legsteinarnir
fjarlægðir. Þá hvarf vitneskjan um
það hvar kista listamannsins hefði
verið grafin. En skjölin fundust, með
nokkuð ítarlegri lýsingu á því hvar
leiðið væri, og með stuðningi áhrifa-
fólks tókst að lokum að fá leyfi til að
setja nýjan stein á það. Við afhjúp-
unina talaði rithöfundurinn Philip
Pullman, forseti Blake Society, og
tónlistarmaðurinn Jah Wobble lék.
AFP
Legsteinninn Nýr steinn var af-
hjúpaður á gröf Williams Blake. Á
honum eru línur úr kvæði skáldsins
Jerusalem: The Emanation of the
Giant Albion.
Legsteinn settur á
gröf Williams Blake