Morgunblaðið - 14.08.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2018
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
ICQC 2018-20
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Íslenski raftónlistarmaðurinn
Muted, sem heitir réttu nafni
Bjarni Rafn Kjartansson, hefur
gefið út aðra breiðskífu sína og ber
hún heitið Empire. Platan er að-
gengileg á öllum helstu tónlistar-
veitum, t.d. Spotify, auk þess að
koma út í takmörkuðu upplagi á
vínyl, alls 150 eintök. Bjarni segir
að nafn plötunnar sé vísun í ís-
lenska náttúru.
Spurður um frekari útskýringar
á tilvísuninni segir Bjarni: „Þegar
maður hugsar um orðið „empire“
kemur konungur eða einhvers kon-
ar heimsveldi upp í hugann. Við Ís-
lendingar erum svo heppnir með
hvað við höfum fallega náttúru, ég
er alinn upp fyrir austan þar sem
er ekki langt að sækja í ósnortna
náttúru. Ég sé þetta þannig fyrir
mér að ég standi uppi á kletti og
horfi yfir alla náttúrudýrðina, sem
er okkar „empire“. Náttúran er því
helsti innblástur minn þegar ég er
að semja tónlist.“
Vill eiga áþreifanlegt eintak
Platan er kemur út í 150 vínyl-
plötueintökum og Bjarni segir,
spurður hvers vegna hann gefi út á
plötuformi í núverandi tónlistar-
umhverfi, að það sé einfaldlega
eitthvað við það að hafa eintak af
afrakstrinum í höndunum.
„Segjum t.d. að ég gefi plötuna
einungis út á Spotify, þá er ekkert
víst eftir nokkra áratugi, þegar ég
verð orðinn gamall maður, að plat-
an verði til á einhverjum netþjóni
hjá Spotify,“ segir hann. Heppi-
legra sé því að eiga áþreifanlegt
eintak sem sé hægt að taka fram
hvenær sem er þegar fram líði
stundir.
Þá tekur Bjarni jafnframt fram
að hann sé almennt mikill aðdáandi
vínylplatna. „Ég gaf út fyrstu plöt-
una á hvítan vínyl og núna er ég
að reyna að framkalla „glóandi
hraun“ svo að segja á nýju vín-
ylplötunni, þannig hún verði app-
elsínugul með svörtum slettum yf-
ir, en slík áferð er kennd við
marmara.“
Í fullri vinnu með tónlistinni
Bjarni hefur unnið að plötunni í
þrjú ár, en hann er búsettur í Tüb-
ingen í Þýskalandi, þar sem hann
starfar sem kerfisstjóri hjá Max
Planck Institute for Intelligent
Systems.
„Fyrsta lagið var gert sumarið
2015, rétt áður en ég flutti til
Þýskalands, og eftir það hef ég
unnið að því hægt og bítandi að
klára plötuna,“ segir Bjarni.
Spurður hvernig gangi að tvinna
fullt starf sem kerfisstjóri saman
við tónlistarferilinn segir hann það
oft vera mikið púsluspil.
Fyrsta breiðskífa Bjarna, Muted
World, kom út árið 2014 og segir
hann vera talsverðan mun á tón-
listinni á þeirri plötu og þeirri
nýju. „Nýja platan er meira upp-
lífgandi og bjartari en fyrsta plat-
an, sem var mjög þung. Það er
miklu meiri jákvæðni í Empire,“
segir Bjarni.
Fjórar íslenskar söngkonur ljá
rödd sína í lögum á plötunni. Það
eru þær Steinunn Harðardóttir,
einnig þekkt sem Dj. flugvél og
geimskip, sem samdi textann auk
þess að syngja lagið „Undraver-
öld“, Fanney Ósk Þórisdóttir syng-
ur í laginu „Núna“, Ásdís María
Viðarsdóttir syngur „Waiting for
You“ og Jófríður Ákadóttir fer
með lagið „Peaceful Sleep“. Þá
málaði Steinunn umslag plötunnar,
sem er einkar glæsilegt.
Jófríður tók þátt í einu lagi á
fyrstu plötu Bjarna, Muted World,
en hann segist aðspurður ekki hafa
unnið með hinum tónlistarkon-
unum áður. „Ég hef kynnst þeim í
gegnum tónlistina, t.a.m. endur-
hljóðblandaði ég fyrir Steinunni
fyrir nokkrum árum og ég þekkti
Fanneyju og Ásdísi lítillega fyrir
og vissi að þær gátu sungið en við
höfum ekki unnið saman áður,“
segir Bjarni enn fremur.
Tilraunakennd raftónlist
Bjarni lýsir tónlist sinni sem til-
raunakenndri raftónlist. „Ég dreg
innblástur úr mörgum stefnum
innan raftónlistar. Ég byrjaði tón-
listarferil minn árið 2009 í „drum
and bass“-tónlist en ég myndi ekki
segja að ég notaði slíka tónlist á
þessari plötu. Stundum þegar fólk
spyr mig nánar út í hvað til-
raunakennd raftónlist er segi ég að
hún sé „downtempo“,“ segir Bjarni
að auki, en það er tegund raf-
tónlistar sem svipar að nokkru
leyti til umhverfistónlistar (e.
ambient music).
„Ég fikta mikið með hljóðgervla
sem ég blanda saman við upptökur
ásamt öðrum hljóðbútum þangað
til ég er ánægður með útkomuna,“
segir Bjarni um tónlistina sem
skapar plötuna Empire. Platan
inniheldur 10 lög, sem mynda
skemmtilegt ferðalag inn í raf-
tónlistarhljóðheim Muted, segir
Bjarni, og einkennist sá hljóð-
heimur af náttúru, tækni og vís-
indum. Hljóðblöndum var í hönd-
um Muted og José Diogo Neves,
sem einnig masteraði plötuna.
Bjarni segir það hafa verið ómet-
anlegt að hafa Neves sér við hlið
við gerð plötunnar.
Heldur utan um eigin útgáfu
Nýja platan er gefin út á vegum
listamannsins, sem heldur utan um
eigið útgáfufyrirtæki. Spurður
hvernig það hafi komið til að sjá
sjálfur um útgáfu segir Bjarni að
vegna þess hve margir séu að búa
til raftónlist sé erfitt að komast að
hjá útgáfufyrirtækjum. „Stórt
útgáfufyrirtæki er kannski að fá
þúsund tölvupósta á dag frá ein-
hverjum gaurum eins og mér,“
segir Bjarni.
Hann gaf einnig út fyrstu plöt-
una sína sjálfur á vínyl og fékk þar
fyrstu reynsluna af því hvernig er
að eiga við plötupressu- og dreif-
ingarfyrirtæki. „Neyðin kennir
naktri konu að spinna, er það ekki
einhvern veginn þannig? Mig lang-
aði að gefa út plötu og það reynd-
ist erfitt að finna útgáfufyrirtæki
að ég ákvað að prófa að gefa út
plötuna sjálfur,“ segir Bjarni
ákveðinn.
Útgáfutónleikar
ekki á dagskrá
Spurður að lokum hvort hann
ætli að halda útgáfutónleika svarar
Bjarni að ekki standi til, eins og
er, að halda útgáfutónleika. „Þetta
er alltaf skrítið tímabil þegar mað-
ur lýkur við plötu, sérstaklega eftir
að hafa unnið lengi að henni. Mér
líður eins og ég sé í lausu lofti en
ég reikna með að byrja aftur fljót-
lega að setja saman tónlist fyrir
nýja plötu og ákveða í hvaða átt ég
vil fara með hana,“ segir Bjarni að
endingu um næstu skref í tónlist-
inni.
Raftónlist innblásin af íslenskri náttúru
Íslenski raftón-
listarmaðurinn
Muted gefur út aðra
breiðskífu sína
Ljósmynd/Aðsend
Að austan Bjarni segir að listamannsnafnið Muted tengist tíma sínum á Egilsstöðum þegar hann var að byrja í tón-
list. „Þar var enginn að spá í raftónlist og ég var því svolítið einn á báti. Það var hugsunin á bak við nafnið Muted,
þ.e. einfari einhvers staðar fyrir austan að búa til tónlist,“ segir Bjarni.
Náttúra Steinunn Harðardóttir, þekkt sem Dj. flugvél og geimskip, málaði
plötuumslag Empire. Umslagið sýnir helstu einkenni íslenskrar náttúru:
fossa, snarbrött og veðursorfin fjöll, og mikið eldgos prýðir bakhliðina.
Sænski rithöf-
undurinn Cam-
illa Grebe hlaut
Glerlykilinn í ár
fyrir bókina Hus-
djuret, en verð-
launin voru af-
hent í 27. sinn um
helgina. Grebe er
sjötta konan sem
vinnur Glerlykilinn. Verðlaunabók-
in fjallar „um lögreglukonuna Mal-
in Brundin sem kemur til heima-
bæjar síns til að leysa mál sem
snertir uppvaxtarár hennar sjálfr-
ar. Bókin er sjálfstætt framhald af
Älskaren från huvudkontoret“,
segir í tilkynningu frá Hinu ís-
lenska glæpafélagi.
Camilla Grebe fékk
Glerlykilinn í ár
Camilla Grebe
Einkasafnið
Fotografiska,
sem var opnað
við sjávarsíðuna í
Stokkhólmi árið
2010, hefur notið
mikilla vinsælda.
Safnið er helgað
ljósmyndalistinni
í sinni víðustu
mynd og hyggj-
ast eigendurnir nú færa út kvíarn-
ar. Síðar á árinu verður opnuð sýn-
ingarmiðstöðin Fotografiska
London með sjö sýningarsölum í
hinni nýju White Chapel-byggingu
og er ætlunin að setja þar upp allt
að 25 sýningar á ljósmyndaverkum
á ári hverju. Þá er ætlunin að opna
Fotografiska New York við Park
Avenue á næsta ári.
Húsnæði Fotograf-
iska í London.
Ljósmyndir í útrás