Morgunblaðið - 14.08.2018, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 226. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Flutt alblóðug á slysadeild
2. Faðir refsar dóttur með því að klippa …
3. Fjöldi tilkynninga um öskrandi …
4. Nálgast 200 ára aldur samanlagt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Secret Swing Society
heldur tónleika á Kex hosteli í kvöld
kl. 20.30. Sveitina skipa Andri Ólafs-
son á kontrabassa, Grímur Helgason
klarínettleikari, franski gítaristinn
Guillaume Heurtebize, litháíski
trompetleikarinn Dominykas Vysni-
auskas og píanistinn Kristján Tryggvi
Martinsson, en þeir syngja allir.
Hljómsveitin leikur og syngur gamal-
dags sveiflutónlist eftir höfunda á
borð við Duke Ellington, Louis Arm-
strong og Django Reinhardt. Sveitin
var stofnuð í Amsterdam, meðan
meðlimir hennar stunduðu þar tón-
listarnám, og hefur hún spilað mikið
úti á götum, mörkuðum og síkjum
borgarinnar. Einnig hefur hún ferðast
til fleiri landa og tvisvar komið fram á
Jazzhátíð Reykjavíkur. Aðgangur er
ókeypis.
Secret Swing Society
leikur á Kex hosteli
Snorri Hallgrímsson fagnar útgáfu
fyrstu plötu sinnar, sem nefnist
Orbit, með tónleikum á Húrra annað
kvöld kl. 20. Þar verður platan leikin
í heild sinni í nýrri útsetningu. Með
Snorra leika fiðluleikararnir Sigrún
Harðardóttir og Björk
Óskarsdóttir, Karl
James Pestka á
víólu, Þórdís Gerður
Jónsdóttir á selló og
Drew Redman á
hljóðgervil. Snorri
heldur tónleika-
ferðalag um Evrópu
í haust.
Orbit fagnað með
útgáfutónleikum
Á miðvikudag Norðlæg eða breytileg átt 5-13 m/s, hvassast norð-
vestantil, og víða dálítil rigning. Hiti 9-14 stig. Á fimmtudag Dálítil
rigning eða súld nyrðra, en bjart að mestu syðra. Hiti 8-16 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning um landið sunnanvert og þykknar
upp nyrðra. Austlæg átt 5-10 m/s í kvöld og rigning í flestum
landshlutum. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast norðanlands.
VEÐUR
Íslandsmeistarar kvenna í
knattspyrnu í Þór/KA frá
Akureyri tryggðu sér í gær
sæti í 32-liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu
þegar liðið gerði jafntefli
við hollenska stórliðið Ajax
frá Amsterdam í Belfast á
Norður-Írlandi. Þór/KA og
Ajax fengu bæði 7 stig í riðl-
inum og komust áfram.
Þegar að riðlakeppninni
kom hafði Þór/KA aldrei
unnið Evrópuleik. »2-3
Komust áfram í
Meistaradeildinni
Íslandsmeistarar karla í knattspyrnu
í Val unnu sannfærandi sigur á
Grindavík í Pepsí-deild karla í knatt-
spyrnu á Hlíðarenda í gær. Þá vann
Stjarnan lið Víkings í Fossvoginum.
Allt virðist nú stefna í baráttu á milli
Vals, Stjörnunnar og Breiðabliks um
sigurinn á Íslands-
mótinu en enn á
þó mikið vatn
eftir að renna til
sjávar. »2
Þrjú lið í hörkubaráttu á
toppi deildarinnar
„Ég er búin að vera meidd í öxlinni að
undanförnu og hef þess vegna ekki
lyft þungu upp á síðkastið. Fyrir mót-
ið var ég óviss um að ég myndi ná
upp 110 kílóum þannig að það var al-
gjör bónus að ná að lyfta 112,5 kíló-
um og ég trúi því varla sjálf að ég hafi
náð þeim upp á mótinu,“ segir kraft-
lyftingakonan Fanney Hauksdóttir
m.a. um frammistöðu sína á EM. »1
Væntingarnar voru
minni vegna meiðsla
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ólafur Jóhannsson er einn þessara
gleðigjafa sem sjá stöðugt ný og ný
tækifæri til að létta fólki lund. Nú er
hann ásamt öðrum að undirbúa
Hagaskólaball, sem verður í Súlna-
sal Hótels Sögu (Radisson Blu Saga
Hotel) 15. september nk., fyrir nem-
endur skólans frá upphafi. Hann
tekur fram að aðrir séu einnig vel-
komnir og að sjálfsögðu makar, þótt
þeir hafi ekki verið í skólanum.
Fyrsta Hagaskólaballið, sem Ólaf-
ur kom að í samvinnu við marga
aðra, var í félagsheimili Seltjarnar-
ness daginn fyrir uppstigningardag
2007. „Við skipulögðum það fyrir þá
sem voru í skólanum 1950-1965, en
fleiri komu,“ rifjar hann upp. Næstu
þrjú böll voru á Hótel Sögu í byrjun
febrúar 2010, 2011 og 2012. Böllin
féllu niður næstu tvö árin en síðan
var þráðurinn tekinn upp á ný með
sumarfagnaði í safnaðarsal Háteigs-
kirkju síðasta vetrardag 2015. Boðið
var upp á bítlaball á Borginni í apríl
2016 og nú er aftur komið að fögnuði
á Sögu. „Þetta er því í sjöunda sinn
sem við ýtum Hagaskólaballi úr vör
og þar sem mjög gaman hefur verið
á þeim til þessa er ég sannfærður
um að gleðin verður ekki síðri nú,“
segir Ólafur.
Hann áréttar að margir hafi lagt
hönd á plóg við undirbúning ball-
anna og nefnir sérstaklega Guðjón
B. Hilmarsson, Björn Björgvinsson,
eiginkonuna Helgu Sigurðardóttur,
allar hljómsveitirnar sem hafa komið
fram og ýmsa jafnaldra og skóla-
félaga úr Melaskóla og Hagaskóla,
en í undirbúningsnefndinni eru Ólaf-
ur, Hafdís Guðmundsdóttir, Mar-
grét Ásgeirsdóttir, Guðrún Þóra
Hjaltadóttir, Erna Valsdóttir og
Ingibjörg H. Halldórsdóttir. Forsala
aðgöngumiða er hafin hjá Ernu
Valsdóttur (erna@fasteignakaup.is).
Ball í stofunni heima
„Það er svo skemmtilegt að vera
með skemmtilegu fólki,“ segir Ólaf-
ur. „Ég hef alltaf haft gaman af því
að snudda í kringum vini mína í mús-
íkinni og því höfum við Helga haldið
upp á merkisafmælin okkar, brúð-
kaupsafmæli og fagnaði fyrir og með
börnunum okkar bæði heima og
heiman í nær tvo áratugi. Við höfum
alltaf verið með hljómsveitir í þess-
um partíum og stundum meira að
segja í stofunni heima.“
Nú koma fram þrjár hljómsveitir;
skólahljómsveitin Sweet Dreams,
nokkrir úr sveitinni Alto og loks Bít-
ilbræður. Hana skipa Finnbogi
Kjartansson, Guðjón B. Hilmarsson,
Ársæll Másson, Guðmundur Eiríks-
son og Ari E. Jónsson. „Ég hef stað-
ið í þessu vegna þess að mér finnst
það svo gaman,“ áréttar Ólafur.
Hann vísar sérstaklega til samveru-
stunda með bekkjarfélögum úr 12
ára bekk í Melaskóla. „Við höfum
hist nokkrum sinnum og í hvert sinn
hefur verið ákveðið að koma saman
aftur sem fyrst. Í fyrrahaust hittist
50 ára útskriftarárgangurinn úr
Melaskóla á veitingastaðnum
Bryggjunni og á annað hundrað
manns mættu. Þá kom upp að Haga-
skólinn á 60 ára afmæli í ár og við
ákváðum að slá tvær flugur í einu
höggi með þessum vinafagnaði.“
Tvær flugur í einu höggi
Hagaskólaball í tilefni af 60 ára afmæli skólans haldið í Súlnasal Hótels Sögu
Morgunblaðið/Valli
Stuð Ólafur með nokkrum úr skólahljómsveitinni Alto. Frá vinstri: Sveinn Guðjónsson, Atli V. Jónsson, Ari E. Jónsson, Ólafur Jóhannsson, Jakob Magn-
ússon og Gunnar Guðjónsson. Jón Pétur Jónsson bassaleikari og Pétur Hjaltested hljómborðsleikari spila með þessum köppum á Hagaskólaballinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sweet Dreams Albert Pálsson, Þóroddur Andrésson, Guðjón B. Hilmarsson,
Ásgrímur Guðjónsson, Kristinn I. Sigurjónsson og Árni J. Sigurðsson.