Skírnir - 01.04.2010, Blaðsíða 135
135leifar nýlendutímans …skírnir
isma í landinu, eins og alls staðar annars staðar. Sérstaklega hvað varðar eldra
fólk. En hinn venjulegi Íslendingur er ekki rasisti (Unnur 2008). 5
Annar bloggari sem ber íslenskt nafn segir:
Hver sá sem sér ekki að þessi skopmynd er rasismi er annaðhvort illa
upplýstur eða einfaldlega heimskur […]. Því miður eru of margir Íslend -
ingar illa upplýstir rasistahálfvitar, sérstaklega meirihluti þeirra Íslendinga
sem blogga (Bárður 2008).6
Í einni athugasemd er afsökunum þó svarað á eftirfarandi hátt:
Fyrir alla muni, gott fólk, ég er Íslendingur og mér persónulega finnst sam-
landar mínir sem eru með afsakanir á borð við þær að Ísland sé ekki svo
slæmt og svo framvegis […], vera sorglegir í besta falli, hættið þessu voli
[…] þetta er skopmynd! (Edvard 2008).7
Í nokkrum athugasemdum er því haldið fram að skrýtlan hafi ekkert
með kynþáttafordóma að gera, heldur sé hér um að ræða sérstaka
fyndni Íslendinga, eins og sjá má í fyrri tilvísuninni hér að ofan. Í
annarri færslu segir: „Grín okkar er bara dálítið kaldara“ (Arni
2008).8
Á mörgum stöðum, bæði á bloggsíðum og í athugasemdum við
félagsfræðivefinn, endurspeglast það sjónarmið að það sem skipti
máli sé í raun hvað liggi að baki brandaranum hjá þeim sem segir
hann: „Ég segi stundum negrabrandara og enginn tekur þá alvarlega
vegna þess að þeir vita að ég meina þá ekki“ (Hinrik 2008).9 Í
5 „Don’t worry, this does not reflect Iceland in any way, except that our humor is
a little bit dysfunctional. We have some racism in our country, just like
everywhere else. Especially with older people. But the normal Icelandic person
is not racist.“
6 „Anyone who fails to see the cartoon in question as racist is either ignorant or
just plain stupid […]. Unfortunately too many Icelanders are ignorant, racist mo-
rons, especially most of the Icelandic bloggers.“
7 „Please people, I am Icelandic and personally I find all my countryman in here
[svo] making excuses like, Iceland is not so bad and so on[,] to be said [svo] at
best, stop crying[,] it is a cartoon.“
8 „[Our] humor is just a little bit colder.“
9 „I sometimes say nigger jokes and no one takes them seriously, because they
know that I don’t mean them.“
Skírnir vor 2010 með Guðna-NOTA_Layout 1 19.4.2010 15:24 Page 135