Saga - 2008, Blaðsíða 255
verk gengur vel enda hefur forsætisnefnd Alþingis tvívegis styrkt það.
Ekkert fé fékkst til verkefnisins í ár, en Björk hefur þó haldið ótrauð áfram
og má nánast fullyrða að verkið komi út á næsta ári ef Alþingi kostar útgáf-
una. Nefnd hefur verið skipuð á vegum Þjóðskjalasafns Íslands til að halda
utan um verkið. Nefndarmenn hittast reglulega til að ræða ýmis fræðileg
vandamál í tengslum við útgáfuna. Már Jónsson og forseti félagsins hafa
setið þessa fundi fyrir hönd Sögufélags en af hálfu Þjóðskjalasafns þau Björk
Ingimundardóttir, Eiríkur Guðmundsson, Gísli Baldur Róbertsson og
Hrefna Róbertsdóttir. Á næsta ári kemur út ritið Galdradómar, heildarsafn
dóma og bréfa um galdramál 17. aldar. Már Jónsson sér um útgáfuna og er
hér ekki um neitt smárit að ræða. Áætlað er að það gæti orðið um 600 blað -
síður í alþingisbókarbroti.
Jón Viðar Sigurðsson bauð félaginu að gefa út rit sitt Det norrøne sam-
funnet: vikingen, kongen, erkebiskopen og bonden. Það fjallar um Grænland, Ís -
land, Færeyjar, Hjaltland, Orkneyjar og Noreg á tímabilinu u.þ.b. 880–1300
og verður um 350 síður, með myndum og kortum. Böðvar Guðmundsson er
að þýða ritið á íslensku, en útgáfan er háð styrkveitingum eins og reyndar
öll útgáfa Sögufélags.
Að lokum má geta þess að verkið Konungar Íslands 1264–1944 er í
vinnslu. Hugmyndin er að gefa út ríkulega myndskreytta bók um alla þá
sem báru konungsnafn á Íslandi meðan Íslendingar höfðu konung. MA-
nemendur í sagnfræði við Háskóla Íslands hafa skrifað um ýmsa kónga í
sérstöku námskeiði og verður það aftur í boði næsta haust og þá reynt að
ljúka verkinu. Tvö rit hafa verið lögð í salt vegna anna ritstjóra og ritnefnda:
Æviskrár íslenskra kvenna og Innreið nútímans.
Góð samvinna er milli Sögufélags og Þjóðvinafélagsins. Almanak Hins
íslenska þjóðvinafélags fyrir árið 2009 er þegar komið út og hefur Heimir Þor -
leifsson að vanda tekið saman árbókina, nú fyrir árið 2007. Andvari er einnig
kominn út en Sögufélag sér um dreifingu þessara rita fyrir Þjóðvina félagið.
Eins og menn muna ákvað Sögufélag að frá og með árinu 2005 verði sá
nemandi heiðraður sem sýnir framúrskarandi árangur í sagnfræðinámi á
BA-stigi við Háskóla Íslands. Á árinu 2007 var dúxinn Helgi Sigurðsson,
sem auk þess að vera sagnfræðingur er einnig dýralæknir. Teiti var haldið
fyrir nýnema í sagnfræði og voru þeir leystir út með bókagjöf; sjö mættu og
fimm gengu í félagið. Þar sem fleiri en 90 nemendur hófu nám í sagnfræði
síðastliðið haust er ljóst að það er lítill áhugi hjá nýnemum í sagnfræði á að
heimsækja Sögufélag. Stjórnin verður því að finna aðrar leiðir til að kynna
félagið fyrir sagnfræðinemum.
Fjármál Sögufélags: Vegna kreppunnar í landinu er óvíst um fjárhags-
grundvöll Sögufélags. Þann 13. mars 2008 var eftirfarandi bókað á stjórnar-
fundi: „Fjármál standa vel vegna framlaga á fjárlögum. Þegar Brevis kemur
út verður hægt að sækja um hjá Baugi aftur í Safn Sögufélags og tala við
Landsbankann um aðkomu að Sögu.“ En nú er óvíst að styrktarsjóðir banka
af aðalfundi sögufélags 2008 255
Saga haust 2008 nota:Saga haust 2004 - NOTA 25.11.2008 15:38 Page 255