Ný Dögun - 01.11.1992, Side 22
/s)ý Dögim
Vi+nisburður C\cxm\cx
+es+amen+isins
Hér má finna nokkrar frásagnir af sjálfs-
vígum. í 9. kafla Dómarabókarinnar er sagt
frá Abímelek, sem framdi valdarán og drap
70 bræður sína. Hann ríkti síðan yfir ísrael
sem konungur í 3 ár, en þá var gerð uppreisn
gegn honum. Abímelek gerði umsátur um
turn, þar sem óvinir hans voru, en hætti sér
of nærri og kona í turninum kastaði k varnar-
steini, sem lenti á höfði Abímeleks og
mölvaði höfuðkúpu hans. Hann bað þá
skjaldsvein sinn um að drepa sig, því hann
vildi ekki falla fyrir hendi konu. Skjald-
sveinninn varð við bón hans.
Segja má, að þetta sé ekki sjálfsvíg í þrengstu
merkingu orðsins, en sá, sem dó, gaf skip-
unina og ef skjaldsveinninn hefði ekki hlýtt,
þá mætti ætla að Abímelek hefði fundið
önnur ráð til að mæta dauða sínum.
í 16. kafla Dómarabókarinnar er greint frá
dauða Samsonar. Samson varð ástfanginn
af Dalílu, sem sveik hann í hendur Filista.
Hár hans var skorið, augun stungin úr hon-
um og hann gerður að þræl. En honum gafst
eitt tækifæri til hefnda, er hann náði að
brjóta miðsúlur húss, þar sem fjöldi Filista
var saman kominn. Dó Samson þar með
þeim. Þarna tengist saman hefnd og sjálfsvíg.
Akítófel var ráðgjafi Davíðs konungs, en
þegar sonur Davíðs, Absalon, gerði upp-
reisn, þá fylgdi Akítófel honum. Frá þessu
er sagt í Síðari Samúelsbók 16. og 17. kafla.
Akítófel kunni ráð, sem hefði dugað Absalon
til að ráða niðurlögum Davíðs, en Absalon
tók ráð annars ráðgjafa fram yfir ráð
Akítófels. Sú ákvörðun leiddi til falls
Absalons. Þegar Akítófel sá, að ekki var
farið að ráðum hans, þá ráðstafaði hann
eigum sínum og svipti sig lífi. Hann vissi, að
annars yrði hann tekinn af lífi sem land-
ráðamaður og smán mundi koma yfir
fjölskyldu hans. Sjálfsvígið er þarna leið til
að forða verri atburðum.
í 15. og 16. kafla Fyrri Konungabókar er sagt
frá Basa, konungi í ísrael. Hann gerði það,
sem illt var í augum Drottins og spámaður
boðaði refsingu Drottins yfir fjölskyldu hans.
Eftir daga Basa varð Ela, sonur hans, kon-
ungur. En Simrí gerði uppreisn, sem flaut í
blóði. Hann ríkti í 7 daga, en var þá um-
kringdur. Þá lagði hann eld að konungs-
höllinni og lét þar lífið.
Þekktasta frásögnin af sjálfsvígi í Gamla
testamentinu er frásögnin af dauða Sál
konungs. í Fyrri Samúelsbók er sagt frá því,
hvernig Sál varð konungur, frá baráttu hans
við Filista, uppgangi, hnignun, sinnisveiki
Sáls, öfund út í Davíð, sem varð konungur
eftir hann, og loks dauða Sál í 31. kaflanum.
Sál var orðinn aðþrengdur í orustu við Filista
og vildi ekki láta fara háðuglega með sig.
Bað hann skjaldsvein sinn um að reka sig í
gegn. Skjaldsveinninn vildi það ekki og tók
Sál þá sverðið og lét fallast á það. Skjald-
sveinninn gerði slíkt hið sama. Létu þeir þar
báðir líf sitt. Þarna var sjálfsvígið leið til að
halda sæmd sinni.
Vifrusbu^ðui'1 /Oýja
+estamen+isius
í Nýja testamentinu er sagt frá einu sjálfsvígi:
Sjálfsvígi Júdasar, eftir að hann hafði svikið
Jesúm. í 27. kafla Matteusarguðspjalls er
sagt frá því að Júdas hafi iðrast svika sinna
og svipt sig lífi. Ekkert er sagt um örvænt-
ingu, eða að hann hafi upplifað sig yfirgefinn
af Guði, en slík túlkun kemur fram í seinni
tíma skrifum.
En þótt þetta sé eina sjálfsvígið, sem greint
er frá, þá er víðar talað um sjálfsvíg: 18. kafla
Jóhannesarguðspjalls segir Jesús:„Ég fer
burt....þangað sem ég fer, getið þér ekki
komist'7. Viðbrögð Gyðinganna eru undrun:
„Mun hann ætla að fyrirfara sér...?"
í 16. kafla Postulasögunnar segir frá þeim
Páli postula og Sílasi, sem voru í fangelsi og
eftir bænagjörð og sálmasöng varð jarð-
skjálfti, allar dyr opnuðust og fjötrar féllu af
öllum föngum. Fangavörðurinn vaknaði og
taldi alla fangana flúna. Dró hann þá sverð
22