Ný Dögun - 01.11.1992, Qupperneq 37

Ný Dögun - 01.11.1992, Qupperneq 37
/V)ý Dögurv lamaða alveg eða að hluta. Staðsetning áverkans er þá á Thoraco-lumbar svæðinu. Þegar hluti mænu er í lagi er erfitt að spá fyrir um afleiðingarnar, því að oft koma ákveðnar „funktionir" aftur til baka að nokkrum tíma liðnum. Aftur á móti er hægara að spá fyrir um þær breytingar sem verða þegar mæna er alveg í sundur: Tetraplekískir 1) Lömun efri útlima, bols og neðri útlima 2) Missir þvag- og hægðastjórnunar 3) Engin sensorísk skynjun á lömuðum svæðum Paraplekískir 1) Lömun á bol frá þeim stað þar sem mænan fór í sundur og niður úr 2) Lömun þvag- og hægðastjórnunar (ekki alltaf varanlegt) 3) Engin skynjun á lömuðum svæðum Hvernig sem á málið er litið er þetta verulega alvarlegt ástand þar sem oftast er þetta varanlegt og engin bein skurðaðgerð eða lyfjagjöf, sem getur komið til hjálpar. því eykst mikilvægi hins sálfræðilega þáttar og endurhæfingarinnar að sama skapi. Báðir þessir þættir geta síðan verkað saman með það að markmiði að fá viðkomandi til að sætta sig við hlutskipti sitt og verða eins sjálfbjarga og mögulegt er. Til að árangur náist er algert grundvallaratriði að milli sjúklings og fjölskyldu hans annars vegar og hjúkrunarfólks hins vegar skapist samband, sem býður upp á umræður og nægilegt upplýsingastreymi milli þessara aðila. Sjúklingur þarf í fyrstu að liggja í margar vikur í algerri hvíld, sérstaklega við brot á hryggjarliðum. Á þessu stigi er sjúklingur mjög vandmeðfarinn, jafnt líkamlega sem andlega. Til að átta okkur betur á ástandi hans er rétt að benda á nokkur vandamál, sem upp koma hjá sjúklingum af þessu tagi sem draga enn frekar úr andlegu þreki þeirra og skerða líkamsímynd. 1) Öndunarerfiðleikar: Áalltafvið tetraplekíska og suma paraplekíska vegna lömunar intercostalvöðvanna (stundum er nauðsynlegt að hjálpa til með súrefniskút). Einnig verður af sömu ástæðu erfitt að hósta og því mikilvægt að gefa því gaum, annars gæti illa farið. 2) Meltingartruflanir: Fyrstu dagana er þarmalömun alger, svo að nauðsyn- legt er að gefa alla næringu í æð. Það lagast síðan smám saman. Tæming þvagblöðru er ekki til staðar, en kemur smátt og smátt aftur. En viljastýrð þvaglosun kemur aldrei aftur í flestum tilfellum. Hægðalosun er einnig úr lagi og verður að losa um það með aðstoð stíla og handafls til að koma í veg fyrir króníska hægðastíflu. Stundum verður að hafa þennan háttinn á til frambúðar. 3) Litlir hreyfimöguleikar valda hættu á legusárum. Því verður að gæta þess að sjúklingur sé ekki alltaf í sömu stöðu. Sem fyrirbyggjandi aðgerð má nota sérstakar sanddýnur. Við endurhæfingu sjúklings er mikilvægt að semstærstur hluti hjúkrunarfólksins taki þátt í henni og gefi ættingjum jafnt og honum sjálfum nauðsynlegar upplýsingar um horfur og þær væntingar, sem raunhæfar teljast. Reynslan hefur sýnt að ættingjar, sem ekki vilja meðtaka og taka mark á því sem sagt er, geta hindrað eðlilega framgöngu með- ferðarinnar. Mikilvægt er að fylgst sé með næringar- ástandi sjúklingsins, því offita gerir sjúkling ómeðfærilegan. Of grönnum sjúklingi er hins vegar mun hættara við legusárum. Því er í mörg horn að líta. Breyting líkamsímyndarinnar er gríðarlega mikil fyrir þessa einstaklinga. Hætt er við að þeir missi allt sjálfsálit og sjálfsvirðingu við þessa nýtilkomnu fötlun sína og allar þær óþægilegu afleiðingar sem hún hefur í för með sér. Þessi breytta líkamsímynd leiðir hjá sumum einstaklingum til alvarlegs þung- lyndis. Þegar svona er ástatt er fátt mikil- vægara en að fá viðkomandi til að opna sig og ræða um það sem honum liggur mest á hjarta. Þetta eru í rauninni mjög skiljanleg 37

x

Ný Dögun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.