Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Síða 8
8 9. nóvember 2018FRÉTTIR
E
inn umræddasti maður
landsins þessa dagana er
Jónas Garðarsson, formaður
Sjómannafélags Íslands. Eft-
ir að Heiðveig María Einarsdótt-
ir bauð sig fram til formanns fé-
lagsins hófst skrautleg atburðarás
og deilur milli hennar og núver-
andi stjórnarmanna. Jónas hefur
farið mikinn í umræðunni og sak-
að Heiðveigu um að spilla samein-
ingu sjómannafélaga. Var Heið-
veigu vikið úr félaginu og verður
málið tekið fyrir hjá félagsdómi á
næstunni. Jónas hefur starfað fyrir
Sjómannafélagið í næstum fjöru-
tíu ár og á sér merkilega en jafn-
framt sorglega sögu. Hann hefur
staðið fyrir hörðum mótmælaað-
gerðum og komist í kast við lög-
in fyrir smygl. Haustið 2005 létu-
st tvær manneskjur í skemmtiferð
um Sundin og var Jónas dæmdur
í þriggja ára fangelsi fyrir mann-
dráp af gáleysi.
Jónas Garðarsson er fæddur
í Reykjavík þann 8. október árið
1955 og ólst upp á höfuðborgar-
svæðinu. Eftir gagnfræðapróf fór
hann á sjóinn og var í siglingum
á skipum Eimskipafélagsins í tíu
ár. Um tíma var hann einnig á ís-
lenskum varðskipum.
Árið 1982 hóf Jónas störf hjá
Sjómannafélagi Reykjavíkur, sem
síðar varð að Sjómannafélagi Ís-
lands. Árið 1991 var Jónas orðinn
framkvæmdastjóri Sjómanna-
félagsins og árið 1994 formaður.
Einnig hefur hann setið í stjórnum
Sjómannasambands Íslands, Líf-
eyrissjóðs sjómanna, sambands-
stjórnar Alþýðusambands Íslands
og í sjómannadagsráði.
Rimman við Eimskip
Haustið 1998 vakti Jónas nokkra
athygli fyrir beinar aðgerðir varð-
andi hentifánaskipið Hanseduo,
eitt af níu skipum sem Eimskip
höfðu á leigu. Var Hanseduo
að flytja aðföng fyrir álverið í
Straumsvík og lesta ál til útflutn-
ings. Jónas hafði áður lýst því yfir í
viðtali á Bylgjunni að ef hugmynd-
ir um skráningu hentifánaskipa
hér á landi yrðu að veruleika yrði
það dauðadómur yfir íslenskri far-
mannastétt.
Jónas og þrjátíu félagar hans í
Sjómannafélaginu sáust á lóð ál-
versins með lambhúshettur og
kunni Rannveig Rist forstjóri því
illa. Klæðnaðurinn var þó ekki til
að vekja skelfingu heldur til að
verjast kuldanum. Stóðu þeir alla
nóttina og kröfðust þess að fulltrú-
ar Eimskipa settust við samninga-
borð til að ræða kjör áhafnarinnar
sem var að mestu leyti frá Filipps-
eyjum. Sögðu félagsmenn þessa
sjómenn aðeins fá um 30 þúsund
krónur í mánaðarlaun. Forsvars-
menn Eimskipa töldu aðgerðir fé-
lagsmanna hins vegar algjörlega
ólöglegar og að kjarasamningar
áhafnarinnar uppfylltu öll alþjóð-
leg ákvæði.
Nokkrum dögum seinna fóru
Jónas og félagar hans um borð í
hentifánaskip að nafni Hansewall.
Lá það við bryggju í Sundahöfn og
var einnig á leigu hjá Eimskipum.
Var Jónasi og félögum meinaður
aðgangur að svæði Eimskipa
þegar þeir vildu kanna pappíra
áhafnarinnar. Fóru þeir þá yfir
hliðið og komust um borð. Slíkar
aðgerðir héldu áfram, til dæmis
þegar skipið Nordheim var stöðv-
að við affermingu árið 1999. Setti
sýslumaðurinn í Reykjavík að lok-
um lögbann á aðgerðirnar en Sjó-
mannafélagið var sýknað í héraðs-
dómi.
Ákærður fyrir smygl
Í maí mánuði árið 2000 var greint
frá því að lögreglan í Reykjavík
hefði til meðferðar mál sem tengd-
ist ólöglegri meðferð á áfengi, sem
talin var tengjast smygli. Alls var
lagt hald á um 200 lítra af áfengi.
Voru tveir menn teknir til yfir-
heyrslu vegna málsins og annar
af þeim var Jónas Garðarsson. Í
viðtali við Vísi sagðist hann ekki
hafa verið uppvís að smygli. Þegar
fréttamaður RÚV spurði Jónas
hvort stjórn Sjómannafélagsins
hefði skoðun á áfengissmygli „hló
hann við spurningunni og sagði
félagið ekki hafa neina skoðun á
þess háttar smygli sem viðgengist
hefði frá örófi alda“ eins og stóð í
DV 24. október þetta ár. Jónas var
ákærður fyrir smygl en sýknaður í
Héraðsdómi Reykjavíkur haustið
2002.
Handteknir á bryggjunni
Mikill æsingur varð í kringum
komu skemmtiferðaskipsins
Clipper Adventurer frá Panama í
ágúst árið 2001. Benti Sjómanna-
félagið á að áhöfn skipsins væri
ekki með kjarasamninga sem
uppfylltu skilyrði Alþjóða flutn-
ingaverkamannasambandsins og
vildu Jónas og félagar hans mót-
mæla við skipshlið. Lögbann var
sett á aðgerðirnar en engu að síður
mættu þeir ásamt fólki úr öðrum
verkalýðsfélögum.
Ferðaskrifstofan Samvinnu-
ferðir Landsýn sá hins vegar
við mótmælendum og var skip-
inu ekki lagt að bryggju. Þess í
stað voru ferðamennirnir ferjað-
ir með gúmmíbát í land. Lög-
reglan var á svæðinu til að sjá til
þess að allt gengi friðsamlega fyr-
ir sig en þegar pústrar komu upp
voru Jónas og tveir aðrir mótmæl-
endur handteknir. Eftir þetta sagð-
ist Jónas íhuga að kæra lögregluna
fyrir ofbeldi. Einn þeirra sem
handteknir voru, Árni Konráðs-
son, var tæplega áttræður og þurfti
að leita á slysadeild eftir fangbrögð
lögreglunnar.
Örlagarík bátsferð
Jónas Garðarsson festi kaup á
skemmtibát í Englandi og sigldi
honum til landsins þann 20. ágúst
árið 2005. Fékk báturinn heitið
Harpa eftir eiginkonu hans, Guð-
jónu Hörpu Helgadóttur.
Föstudagskvöldið 9. september
þetta sama ár sigldi Jónas ásamt,
eiginkonu sinni, ellefu ára syni
3 SKREF
BÓKHALDSÞJÓNUSTA
LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
• Skráningartöflur
• Eignaskiptayfirlýsingar
• Eftirfylgni
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
ÞARABAKKA 3
S. 578 6800
JÓNAS GARÐARSSON –
UMTALAÐASTI MAÐUR ÍSLANDS
n Skrautlegar mótmælaaðgerðir n Í fangelsi fyrir manndráp n Bátnum komið úr landi
Átök á bryggjunni Jónas og tveir
félagar hans handteknir í ágúst 2001.
Jónas Garðarsson Formaður
Sjómannafélagsins síðan 1994.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is