Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 8
8 9. nóvember 2018FRÉTTIR E inn umræddasti maður landsins þessa dagana er Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands. Eft- ir að Heiðveig María Einarsdótt- ir bauð sig fram til formanns fé- lagsins hófst skrautleg atburðarás og deilur milli hennar og núver- andi stjórnarmanna. Jónas hefur farið mikinn í umræðunni og sak- að Heiðveigu um að spilla samein- ingu sjómannafélaga. Var Heið- veigu vikið úr félaginu og verður málið tekið fyrir hjá félagsdómi á næstunni. Jónas hefur starfað fyrir Sjómannafélagið í næstum fjöru- tíu ár og á sér merkilega en jafn- framt sorglega sögu. Hann hefur staðið fyrir hörðum mótmælaað- gerðum og komist í kast við lög- in fyrir smygl. Haustið 2005 létu- st tvær manneskjur í skemmtiferð um Sundin og var Jónas dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir mann- dráp af gáleysi. Jónas Garðarsson er fæddur í Reykjavík þann 8. október árið 1955 og ólst upp á höfuðborgar- svæðinu. Eftir gagnfræðapróf fór hann á sjóinn og var í siglingum á skipum Eimskipafélagsins í tíu ár. Um tíma var hann einnig á ís- lenskum varðskipum. Árið 1982 hóf Jónas störf hjá Sjómannafélagi Reykjavíkur, sem síðar varð að Sjómannafélagi Ís- lands. Árið 1991 var Jónas orðinn framkvæmdastjóri Sjómanna- félagsins og árið 1994 formaður. Einnig hefur hann setið í stjórnum Sjómannasambands Íslands, Líf- eyrissjóðs sjómanna, sambands- stjórnar Alþýðusambands Íslands og í sjómannadagsráði. Rimman við Eimskip Haustið 1998 vakti Jónas nokkra athygli fyrir beinar aðgerðir varð- andi hentifánaskipið Hanseduo, eitt af níu skipum sem Eimskip höfðu á leigu. Var Hanseduo að flytja aðföng fyrir álverið í Straumsvík og lesta ál til útflutn- ings. Jónas hafði áður lýst því yfir í viðtali á Bylgjunni að ef hugmynd- ir um skráningu hentifánaskipa hér á landi yrðu að veruleika yrði það dauðadómur yfir íslenskri far- mannastétt. Jónas og þrjátíu félagar hans í Sjómannafélaginu sáust á lóð ál- versins með lambhúshettur og kunni Rannveig Rist forstjóri því illa. Klæðnaðurinn var þó ekki til að vekja skelfingu heldur til að verjast kuldanum. Stóðu þeir alla nóttina og kröfðust þess að fulltrú- ar Eimskipa settust við samninga- borð til að ræða kjör áhafnarinnar sem var að mestu leyti frá Filipps- eyjum. Sögðu félagsmenn þessa sjómenn aðeins fá um 30 þúsund krónur í mánaðarlaun. Forsvars- menn Eimskipa töldu aðgerðir fé- lagsmanna hins vegar algjörlega ólöglegar og að kjarasamningar áhafnarinnar uppfylltu öll alþjóð- leg ákvæði. Nokkrum dögum seinna fóru Jónas og félagar hans um borð í hentifánaskip að nafni Hansewall. Lá það við bryggju í Sundahöfn og var einnig á leigu hjá Eimskipum. Var Jónasi og félögum meinaður aðgangur að svæði Eimskipa þegar þeir vildu kanna pappíra áhafnarinnar. Fóru þeir þá yfir hliðið og komust um borð. Slíkar aðgerðir héldu áfram, til dæmis þegar skipið Nordheim var stöðv- að við affermingu árið 1999. Setti sýslumaðurinn í Reykjavík að lok- um lögbann á aðgerðirnar en Sjó- mannafélagið var sýknað í héraðs- dómi. Ákærður fyrir smygl Í maí mánuði árið 2000 var greint frá því að lögreglan í Reykjavík hefði til meðferðar mál sem tengd- ist ólöglegri meðferð á áfengi, sem talin var tengjast smygli. Alls var lagt hald á um 200 lítra af áfengi. Voru tveir menn teknir til yfir- heyrslu vegna málsins og annar af þeim var Jónas Garðarsson. Í viðtali við Vísi sagðist hann ekki hafa verið uppvís að smygli. Þegar fréttamaður RÚV spurði Jónas hvort stjórn Sjómannafélagsins hefði skoðun á áfengissmygli „hló hann við spurningunni og sagði félagið ekki hafa neina skoðun á þess háttar smygli sem viðgengist hefði frá örófi alda“ eins og stóð í DV 24. október þetta ár. Jónas var ákærður fyrir smygl en sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur haustið 2002. Handteknir á bryggjunni Mikill æsingur varð í kringum komu skemmtiferðaskipsins Clipper Adventurer frá Panama í ágúst árið 2001. Benti Sjómanna- félagið á að áhöfn skipsins væri ekki með kjarasamninga sem uppfylltu skilyrði Alþjóða flutn- ingaverkamannasambandsins og vildu Jónas og félagar hans mót- mæla við skipshlið. Lögbann var sett á aðgerðirnar en engu að síður mættu þeir ásamt fólki úr öðrum verkalýðsfélögum. Ferðaskrifstofan Samvinnu- ferðir Landsýn sá hins vegar við mótmælendum og var skip- inu ekki lagt að bryggju. Þess í stað voru ferðamennirnir ferjað- ir með gúmmíbát í land. Lög- reglan var á svæðinu til að sjá til þess að allt gengi friðsamlega fyr- ir sig en þegar pústrar komu upp voru Jónas og tveir aðrir mótmæl- endur handteknir. Eftir þetta sagð- ist Jónas íhuga að kæra lögregluna fyrir ofbeldi. Einn þeirra sem handteknir voru, Árni Konráðs- son, var tæplega áttræður og þurfti að leita á slysadeild eftir fangbrögð lögreglunnar. Örlagarík bátsferð Jónas Garðarsson festi kaup á skemmtibát í Englandi og sigldi honum til landsins þann 20. ágúst árið 2005. Fékk báturinn heitið Harpa eftir eiginkonu hans, Guð- jónu Hörpu Helgadóttur. Föstudagskvöldið 9. september þetta sama ár sigldi Jónas ásamt, eiginkonu sinni, ellefu ára syni 3 SKREF BÓKHALDSÞJÓNUSTA LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR • Skráningartöflur • Eignaskiptayfirlýsingar • Eftirfylgni EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR ÞARABAKKA 3 S. 578 6800 JÓNAS GARÐARSSON – UMTALAÐASTI MAÐUR ÍSLANDS n Skrautlegar mótmælaaðgerðir n Í fangelsi fyrir manndráp n Bátnum komið úr landi Átök á bryggjunni Jónas og tveir félagar hans handteknir í ágúst 2001. Jónas Garðarsson Formaður Sjómannafélagsins síðan 1994. Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.