Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Page 22
22 9. nóvember 2018FRÉTTIR
Í
vikunni gerði stjórn Strætó bs.
samkomulag við fyrirtækið Far-
-vel ehf. varðandi akstursþjón-
ustu fatlaðra. Var það framsal
á samningi sem Prime Tours átti
en það félag var nýlega tekið til
gjaldþrotaskipta. Stjórnarformað-
ur Far-vel er Hjörleifur Harðar-
son sem var forráðamaður Prime
Tours fyrir gjaldþrotaskiptin.
Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi
og stjórnarmaður í Strætó, fullyrti
fyrir samkomulagið að kennitölu-
flakk mætti ekki eiga sér stað.
Sagði ákvæði um keðjuábyrgð
mikilvæg
DV hefur áður fjallað um samning
Strætó við Prime Tours. Félagið
fékk samning framseldan eftir út-
boð árið 2014 en hét þá Ný tækni
og var ekki með leyfi til hópflutn-
inga. Aðrir verktakar vísuðu mál-
inu til kærunefndar útboðsmála
og var tvívegis úrskurðað að Strætó
hefði skapað sér skaðabótaskyldu
og var gert að greiða samtals
1,6 milljónir króna í málskostn-
að. Hitt málið var vegna þess að
Strætó hafði úthlutað Prime Tours
of miklum verkefnum miðað við
rammasamning.
Erfið fjárhagsstaða Prime
Tours var vel þekkt í langan tíma
og eftir árangurslaust fjárnám og
nauðasamninga var félagið tek-
ið til gjaldþrotaskipta í október.
Engu að síður hélt Strætó áfram
að starfa með þeim. Jafnvel eftir að
upp komst að fötluðum var ekið á
ótryggðum bílum.
Hjálmar Sveinsson er nýlega
kominn inn í stjórn Strætó. Eftir
að verktakar sendu honum fyrir-
spurnir um stöðuna skrifaði hann
bréf þar sem stóð að hann teldi
ekki koma til greina að fyrirtæki
í þessari þjónustu gæti skipt um
kennitölu og haldið áfram eins og
ekkert væri. Hann þekkti þó ekki
lögfræðina í slíkum málum. Jafn-
framt fullyrti hann að ákvæði um
keðjuábyrgð væru mikilvæg og
þeim yrði fylgt eftir.
Treystir
framkvæmdastjóranum
Í samtali við DV segir Hjálmar að
eftir að hafa fengið álit frá lög-
fræðingum hafi framsal samn-
ingsins verið samþykkt.
„Samkvæmt þessu áliti var
ekki hægt að hafna framsalinu á
forsendum viðskiptasögu.“
Þú sagðir áður að kennitölu-
flakk kæmi ekki til greina. Hvað
var það sem sannfærði þig um að
þetta væri rétt ákvörðun?
„Ég tók það fram að ég þekkti
ekki allar lögfræðilegar hliðar. Eftir
að hafa farið yfir þetta álit þá stóð
ég með þessari ákvörðun.“
Er þessum aðilum treystandi til
þess að sjá um þjónustuna, í ljósi
þess að þeir hafa til dæmis keyrt
fatlaða á ótryggðum bílum?
„Skiptastjóri kom með þessa til-
lögu. Ef við tölum um Prime Tours
þá skilst mér að þeir hafi fengið
mjög góða einkunn hjá tveimur
einstaklingum sem ég þekki sem
eru að nota þjónustuna. Það er
það eina sem ég hef heyrt.“
Nú var slæm staða Prime Tours
þekkt í langan tíma og Strætó
tvisvar úrskurðað skaðabóta-
skylt vegna þess. Hefði ekki átt að
bregðast strax við?
„Ég er nýkominn þarna inn
og þekki ekki forsöguna nema að
mjög litlu leyti.“
Verður allt þetta mál kannað í
stjórninni?
„Alveg örugglega, en ég held að
sagan liggi nokkuð ljós fyrir.“
Nýtur Jóhannes Svavar Rúnars-
son framkvæmdastjóri enn þá
trausts?
„Hann nýtur alla vega míns
trausts. Ég get ekki talað fyrir hönd
annarra.“ n
Varahlutaverslun
og þjónusta
TANGARHÖFÐA 4
110 REYKJAVÍK
SÍMI 515 7200
www.osal.is
osal@osal.is
FAX 515 720
ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
KOMIN ÚT!
Metsölulisti
Eymundsson
Allar bækur - 31.okt.-6.nóv.
1.
Hjálmar sagði að kennitölu-
flakk kæmi ekki til greina í
akstursþjónustu fatlaðra
n Eigendur Prime Tours halda áfram rekstri í nýju fyrirtæki n Framkvæmdastjóri Strætó nýtur trausts„Ef við tölum
um Prime Tours
þá skilst mér að þeir
hafi fengið mjög góða
einkunn hjá tveimur
einstaklingum sem ég
þekki sem eru að nota
þjónustuna.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Hjálmar Sveinsson Heyrði
góð meðmæli með aksturs-
þjónustu Prime Tours.