Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Page 30
Vélar, verkstæði og verktakar 9. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ MD Vélar var stofnað í byrjun árs 1990 til að annast sölu, ráðgjöf og þjónustu fyrir Mitsubishi diesel vélar á Íslandi og öðrum búnaði sem tengist þeim. Starfsemin hefur aðallega snúist í kringum sjávarútveg- inn og veitir fyrirtækið vélaþjónustu, sölu varahluta og viðgerðarþjónustu. „Við erum með umboð fyrir Mitsubishi og SOLE Diesel vélar frá Spáni. Við erum með stóran varahlutalager en getum einnig útvegað varahluti með stuttum fyrirvara ef þeir eru á lager hjá birgja, þetta þýðir það að ef þú kemur til okkar að morgni og pantar varahlut geta varahlutirnir verið komnir í okkar hendur um hádegi næsta virka dag. Við leggjum metnað í að veita okkar viðskiptavinum bestu þjónustu og ráðgjöf,“ segir Laila Björk Hjalta- dóttir, fjármála- og viðskiptastjóri MD Véla. Alhliða þjónusta VW Compensators Í fyrra fékk MD Vélar nýtt umboð á þenslutengjum frá VM Kompensator í Danmörku sem býður upp á fyrsta flokks þenslutengi. „Sérstaða VM Kompensator er að þeir bjóða upp á alhliðaþjónusta frá A-Ö. Þá fara þeir út í fyrirtækin og mæla, ráðleggja og sérhanna eftir þörfum. Þá bjóða þeir einnig upp á uppsetningu fyrir kúnnann,“ segir Laila. VM Kompensator framleiða vef- og stáltengi eftir óskum og þörfum viðskipavinarins og eru einnig með umboð fyrir gúmmítengi frá Trelleborg. Stáltengin fást frá DN25-DN5000 en veftengin eru sérhönnuð eftir þörfum, náið samstarf við viðskiptavininn er lykilatriði til að tryggja að tengin standist þær kröfur og aðstæður sem eru fyrir hendi. VM Kompensator hefur það fram yfir marga aðra aðila að veita alhliða þjónustu og margra ára sérþekkingu starfsmanna. Einnig bjóða þeir upp á þá aukaþjónustu fyrir stærri fyrirtæki að mæla ástandið á þenslutengjum til að koma í veg fyrir tjón og að tryggja rekstraröryggi. „Ef svona tengi fara þá getur það valdið gríðarlegu tjóni og þess vegna er mikilvægt að vera með réttu tengin og skipta þeim út áður en skaðinn skeður,“ segir Laila. Nánari upplýsingar má nálgast á www.mdvelar.is Vagnhöfða 12, 110 Reykjavík Opnunartími Skrifstofu: Mán–Fös 8.00–16.00 Sími: 567-2800 Netfang: mdvelar@mdvelar.is n MD VÉLAR: Nýtt umboð um alhliða þjónustu - Þenslutengi í öllum stærðum og gerðum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.