Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Síða 30
Vélar, verkstæði og verktakar 9. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
MD Vélar var stofnað í byrjun árs 1990 til að annast sölu, ráðgjöf og þjónustu fyrir Mitsubishi
diesel vélar á Íslandi og öðrum búnaði
sem tengist þeim. Starfsemin hefur
aðallega snúist í kringum sjávarútveg-
inn og veitir fyrirtækið vélaþjónustu,
sölu varahluta og viðgerðarþjónustu.
„Við erum með umboð fyrir Mitsubishi
og SOLE Diesel vélar frá Spáni. Við
erum með stóran varahlutalager en
getum einnig útvegað varahluti með
stuttum fyrirvara ef þeir eru á lager
hjá birgja, þetta þýðir það að ef þú
kemur til okkar að morgni og pantar
varahlut geta varahlutirnir verið komnir
í okkar hendur um hádegi næsta virka
dag. Við leggjum metnað í að veita
okkar viðskiptavinum bestu þjónustu
og ráðgjöf,“ segir Laila Björk Hjalta-
dóttir, fjármála- og viðskiptastjóri MD
Véla.
Alhliða þjónusta VW Compensators
Í fyrra fékk MD Vélar nýtt umboð á
þenslutengjum frá VM Kompensator
í Danmörku sem býður upp á fyrsta
flokks þenslutengi. „Sérstaða VM
Kompensator er að þeir bjóða upp á
alhliðaþjónusta frá A-Ö. Þá fara þeir
út í fyrirtækin og mæla, ráðleggja
og sérhanna eftir þörfum. Þá bjóða
þeir einnig upp á uppsetningu fyrir
kúnnann,“ segir Laila. VM Kompensator
framleiða vef- og stáltengi eftir óskum
og þörfum viðskipavinarins og eru
einnig með umboð fyrir gúmmítengi
frá Trelleborg. Stáltengin fást frá
DN25-DN5000 en veftengin eru
sérhönnuð eftir þörfum, náið samstarf
við viðskiptavininn er lykilatriði til að
tryggja að tengin standist þær kröfur
og aðstæður sem eru fyrir hendi.
VM Kompensator hefur það fram
yfir marga aðra aðila að veita alhliða
þjónustu og margra ára sérþekkingu
starfsmanna. Einnig bjóða þeir upp á
þá aukaþjónustu fyrir stærri fyrirtæki
að mæla ástandið á þenslutengjum til
að koma í veg fyrir tjón og að tryggja
rekstraröryggi. „Ef svona tengi fara þá
getur það valdið gríðarlegu tjóni og
þess vegna er mikilvægt að vera með
réttu tengin og skipta þeim út áður en
skaðinn skeður,“ segir Laila.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.mdvelar.is
Vagnhöfða 12, 110 Reykjavík
Opnunartími Skrifstofu: Mán–Fös
8.00–16.00
Sími: 567-2800
Netfang: mdvelar@mdvelar.is n
MD VÉLAR:
Nýtt umboð um alhliða
þjónustu - Þenslutengi í
öllum stærðum og gerðum