Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Page 41

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Page 41
Góð kaup 9. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ Kári Már Óskarsson er lærður einkaþjálfari og byrjaði árið 2016 að hanna íþróttaföt á hagstæðu verði undir merkinu Kyon Apparel. „Í dag hefur línan færst meira yfir í götufatnað, en það var alltaf ætlunin að byrja í íþróttafatnaði og færa sig svo yfir í götutískuna. Íþróttafötin verða áfram til staðar enda seljast þau grimmt vegna gæðanna og núna erum við með flott úrval af glæsi- legum götufatnaði,“ segir Kári. Kyon alls staðar Kári hefur hannað fatnað frá því árið 2016. „Ég hef alltaf haft áhuga á fötum og er mjög smámuna- samur þegar kemur að fatnaði. Þess vegna finnst mér gott að hanna mín eigin föt,“ segir Kári. Einnig hefur Kári verið að vinna með þekktum tónlistarmönnum á Íslandi við að hanna fatnað fyrir þá. „Við erum að vinna sérstaka línu fyrir þessa einstaklinga og kallast hún KYON X,“ segir Kári leyndar- dómsfullur. Vel tekið á Íslandi og erlendis Fatnaðurinn frá Kyon Apparel fæst hér heima í hönnunarversluninni Jöklu á Laugavegi 90. Verslun- in sérhæfir sig í sölu á íslenskri hönnun og er fatnaðurinn frá Kyon Apparel sérlega vinsæll. Einnig er hægt að fá vörurnar keyptar á vefverslun Kyon Apparel, kyonapp- arel.is. Vörunum hefur svo verið vel tekið erlendis og fást meðal annars í Bandaríkjunum, Bretlandi og Rússlandi. Með því að nota afsláttarkóðann DV25 inn á heimasíðu Kyon App- arel fá lesendur DV 25% afslátt af vörum út nóvember. Nánari upplýsingar má nálgast á kyonapparel.is, Kyonapp- arel á Instagram, Facebook-síðunni Kyon Apparel og Facebook-síðunni jokla.iceland. Jökla, Laugavegi 90, 101 Reykjavíkn KYON APPAREL: Glæsilegur götufatnaður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.