Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 57
TÍMAVÉLIN 579. nóvember 2018 messur í útvarpi. Bestu þakkir og „keep up the good work.“ Fyrir hönd Vantrúar, Eddi. Ps. Mig langar svo að þakka þér persónulega. Yngri bróðir minn sem því miður trúir á Guð og allt þetta dót býr í hverfinu hjá þér. Hann er hættur að fara í messu, þökk sér þér. Kallar þig æðsta prest haturs og hefndar og vill ekki taka við sakramenti úr slíkri hendi.“ Ljóst var að bréfið kom ekki frá Vantrú heldur einhverjum sem þekkti vel til innviða Þjóðkirkjunnar. Þann 21. júní sóru Vantrúarmenn sig af því að eiga hlut að máli. Tengir við biskupsmálið Ekki er vitað um meiri tölvupóst til presta frá Eðvaldi Eðvaldssyni og af þessum var pósturinn til séra Krist- ínar alvarlegastur og rætnastur. Hún brást einnig við honum. Í samtali við DV segir Kristín: „Strax og ég fékk bréfið sendi ég það á póstlistann til að aðrir prestar sæju það. Ég vildi hafa allt opið í sambandi við þetta. Þá fékk ég sterk viðbrögð frá mínum kollegum og mörgum var misboðið við að lesa bréfið.“ Hvernig fékk þetta á þig? „Þetta var svolítið áfall. Ég dró þá ályktun að þetta væri einhver sem hefði aðgang að lokuðum póstlista sem starfandi prestar í Þjóðkirkjunni á þeim tíma hefðu sín á milli. Bréfið var sent mjög stuttu eftir að ég hafði sett efni inn á þann póstlista og það var greinilegt að þessi aðili var inni í þeim málum sem var verið að ræða þar. Það fékk á mig að vita að þetta væri kollegi eða einhver sem tengd- ist kollega. Þetta var mjög rætið bréf og virtist skrifað af einhverjum sem þekkti til mín og samstarfsfólks míns.“ Hvaða tilgangi heldur þú að þetta hafi þjónað? „Kannski að slá á einhverja putta í tengslum við biskupsmálið. Ég hafði tekið afstöðu og staðið með þeim konum sem sögðu frá áreiti af hálfu Ólafs Skúlasonar.“ Kristín, líkt og Sigríður og Örn Bárður, tilheyrði á þessum tíma „órólegu deildinni“ innan presta- stéttarinnar og hafði gagnrýnt Karl Sigurbjörnsson fyrir viðbrögð hans. „Ég tengdi við þetta mál og velti því fyrir mér hvort sendandinn væri einhver sem taldi að sér vegið. Mögulega einhver tengdur fyrrver- andi biskupi.“ Á sínum tíma greindi DV frá því að Kristín hefði leitað til lögreglunn- ar vegna póstsins, sem hún hafði upplifað sem mikið ofbeldi. Kristín segir nú að ekkert hafi hins vegar komið út úr því. „Ég hafði samband við lög- regluna en eftir nokkur samtöl var mér sagt að bréfið væri ekki nógu alvarlegt til að þeir gætu krafist upp- lýsinga frá Google, að hótanirnar gengju ekki nógu langt. Þetta fannst mér súrt af því að mér fannst langt gengið.“ Örn og Magnús hittast „Eðvaldsmálið“ var mikið rætt á meðal presta og var það tekið fyrir hjá prófasti og vinnuhópi. Örn Bárð- ur skrifaði bréf þar sem honum hafði brugðið við að sjá nafn Magnús- ar Eðvalds Kristjánssonar á lista yfir kirkjuþingsmenn. Magnús er nú- verandi forseti kirkjuþings og þáver- andi varaforseti. Faðir hans er Krist- ján Eðvald Halldórsson. „Þarna var þá kominn Eðvald Eðvaldsson sjálf- ur að því er ætla mætti,“ skrifaði Örn Bárður. Magnús hafði samband við Örn Bárð og sagðist þurfa að tala við hann „og horfa í augu“ hans. Hitt- ust þeir fyrir utan Suðurlandsbraut 20 og ræddu málin á fundi, og sam- kvæmt heimildum DV var mönnum heitt í hamsi. Hafnaði Magnús þá al- farið að hafa skrifað tölvupóstinn og sagðist Örn Bárður verða að trúa því. Það segir einnig ónefndur pró- fastur sem var einn af þeim sem rannsökuðu málið í samtali við DV og spurði Magnús út í tölvupóstinn: „Við héldum fund með þeim sem okkur þótti líklegir. Við feng- um engan til að játa það að hafa sent þessi bréf. Niðurstaðan var einfald- lega sú að einhver hefði notað þetta netfang án þess að eigandi þess hefði verið á nokkurn hátt viðriðinn þetta mál. Það var í sjálfu sér ekk- ert leyndarmál að Magnús ætti net- fangið, það benti allt til þess. En okk- ur fannst það ólíklegt að hann hefði komið nálægt þessu sjálfur. Maður veit ekki hvað gerist og hvernig vin- skapur er á milli manna. Það kom aldrei nein niðurstaða í þetta mál.“ Í samtali við DV segist Magnús kannast við málið af því að það hafi hlotið umræðu á sínum tíma. Kannast þú við fund sem var haldinn út af þessu máli, þar sem þú varst spurður út í það mál? „Nei, ég man ekki eftir því. Ég var spurður um þetta vegna þess að ég er Eðvaldsson, en ég man ekki eftir neinum fundi.“ Magnús viðurkennir að prestur hefði borið þetta upp á hann. „Hann var eini maðurinn sem hafði raunverulega, sem ég vissi, ætlað mér að standa í bréfaskrift- um.“ Átt þú þetta netfang? „Nei, ég hef aldrei viðurkennt það því að ég hef aldrei átt þetta netfang. Það var aldrei gengið frá því, ég hefði aldrei verið kosinn forseti kirkju- þings árið 2012 ef að ég hefði verið í þeirri stöðu.“ Biskup skipar fólki að hætta sakbendingum Öðru nafni sem velt var upp var nafn séra Skúla S. Ólafssonar í Keflavíkur- kirkju, sonar Ólafs Skúlasonar, fyrr- verandi biskups, og eiginmanns Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur lög- reglustjóra. Hafði hann haldið uppi vörnum opinberlega fyrir föður sinn og meðal annars komið fram í kast- ljósi og sagt minningar systur sinn- ar um kynferðisofbeldi vera falskar. Var hann beðinn að taka ekki sæti á kirkjuþingi fyrir Kjalarnesprófasts- dæmi þar sem mál Ólafs var rætt. Kristín tók sæti hans á þinginu í staðinn. Svaraði hann sendingu Kristínar á prestalistanum með þeim orðum að sendingin frá Eðvaldi væri döpur en nafnleysið í samskiptunum væri „blessunarlega alger undantekning.“ Væri þetta því einstakt tilvik og frekar ætti að einbeita sér að einhverju sem efldi kirkjuna. Netfangið edvaldedvaldsson@ gmail.com fannst á Facebook-aug- lýsingu hjá samtökum sem kallast Virkjun mannauðs á Reykjanesi, sem Skúli hefur starfað með og haldið fyrirlestur fyrir. Skúli staðfestir í samtali við DV að hann hafi verið spurður hvort hann hefði haft aðkomu að tölvuskeytun- um undir nafni Eðvalds Eðvaldsson- ar en hafnar því alveg. „Þetta var mjög óhuggulegt því að í einhverjum bréfunum voru hót- anir,“ segir Skúli. „Ég sór af mér alla sök í þessu máli enda kom ég ekkert nálægt þessu.“ Þann 21. júní sendi svo Karl Sig- urbjörnsson skilaboð til presta í gegnum prestalistann þar sem hann bað um að sakbendingum yrði hætt. Þar segir: „Í Guðs bænum hættið þess- um sakbendingum hér á listanum. Gætið þess að það er verið að bendla fólk, sem ekki getur svarað fyrir sig, við þetta sorglega mál. Þetta er kom- ið út yfir öll velsæmismörk.“ Var Örn Bárður mjög ósáttur við að málið yrði þaggað niður og sagði: „Nú biður biskup okkur um að hætta þessum leik. Slíkt er varla hægt. Við verðum að svæla út þá refi tvo sem hér eru sekir.“ Taldi Örn Bárður að gerendurnir væru tveir, annar sem skrifaði og hinn sem læki upplýsing- um af prestalistanum. „Og það er skýlaus skylda biskups embættisins að upplýsa málið eða gangast fyrir því að það verði upplýst. Á meðan það ger- ist ekki liggur öll prestastéttin und- ir grun.“ Málið var einnig tekið fyrir á fundi Prestafélagsins sem haldinn var á Akureyri en samkvæmt heim- ildum DV komu skipanir þar um að málið yrði ekki rætt frekar. Biskup kjörinn Eðvaldsmálið hefur verið sett í sam- hengi við biskupskjör enda eru bisk- upsskipti beinlínis rædd í tölvupóst- inum frá hinum nafnlausa aðila. Tveir af þeim þremur prestum sem fengu sendingarnar, voru orðaðir við biskupsembættið þegar ljóst var að Karl væri að láta af störfum. Um veturinn var boðað til bisk- upskjörs og fór það fram vorið 2012. Sigríður og Örn Bárður buðu sig fram ásamt sex öðrum. Hvor- ugt þeirra komst í aðra umferð en þar sigraði séra Agnes Sigurðardótt- ir séra Sigurð Árna Þórðarson þann 25. apríl. Enginn af prestunum þremur er búsettur á Íslandi í dag. Sigríð- ur og Örn Bárður fluttust til Noregs og Skúli tók við brauðinu í Neskirkju af honum. Kristín er búsett í Genf í Sviss. n Við gömlu höfnina EILÍF HAMINGJA GRILLAÐ ÞORSKSPJÓT, HUMARSÚPA & BRAUÐ HÁDEGIS TILBOÐ VIRKA DAGA 2.850 „Mun tjá mig síðar beint við þig. Sennilega þegar uppgjör hentar þér ekki og ég finn hjá mér þörf til að viðra mig Skúli S. Ólafsson Neitaði einnig að hafa skrifað bréfin. Magnús E. Kristjánsson Mætti Erni Bárði á Suðurlandsbraut. Kristín Þórunn Fékk svæsinn tölvupóst og kærði til lögreglu. Örn Bárður Jónsson Skrifaði pistil í Fréttablaðið sem vakti reiði „Eðvalds“. Agnes M. Sigurðardóttir Var kjörin biskup vorið 2012.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.