Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 6
6 19. október 2018FRÉTTIR
B
resk hjón, sem komu til
Akur eyrar vorið 2017 til að
vinna hjá ferðaþjónustu
fyrirtæki segja farir sínar
ekki sléttar. Hafi þau unnið myrkr
anna á milli, þurft að sofa á dýnu
á gólfi á nuddstofu fyrirtækisins og
ekki fengið rétt greitt fyrr en verka
lýðsfélagið var komið í málið. Eft
ir að þau kvörtuðu til eigandans
var þeim sagt upp og urðu þá hús
næðislaus. Um sumarið voru þeim
settir afarkostir á skrifstofu verka
lýðsfélags, fá greitt og þegja yfir
málinu.
84 stunda vinnuvika
Sienna Gray og eiginmaður henn
ar, Maxim Koba, komu hingað til
lands frá Bretlandi í marsmánuði
árið 2017. Þau eru á fertugs
aldri, hún skosk og hann enskur.
Þau höfðu hlakkað til að setj
ast að á landinu og voru ráðin til
vinnu hjá ferðaþjónustufyrirtæk
inu Inspiration Iceland á Akur
eyri sem hinn svissneski Andreas
Baumgartner rekur. Fyrirækið
býður meðal annars upp á hunda
sleðaferðir, nudd, jóga og útleigu
íbúða.
Sienna segir að þeim hafi verið
lofaður fimm ára samningur með
aðstöðu til að búa og hjálp við að
setjast að. Fyrst um sinn hafi þau
verið á reynslu og þurft að greiða
allan mat og uppihald sjálf. Störf
uðu þau við bókanir og leiðsögn
ferðamanna.
Vinnan var mun meiri en þau
höfðu gert sér grein fyrir og vel út
fyrir venjulegan dagvinnutíma.
Störf hófust klukkan sjö á morgn
ana og stóðu oft fram til tíu á
kvöldin, sjö daga vikunnar. Stund
um unnu þau til miðnættis. Um
helgar unnu þau aðeins hluta dags
en þurftu að vera viðbúin. Sienna
segir að þau hafi unnið að meðal
tali 84 klukkutíma á viku og hélt
hún dagbók um vinnutímana.
Sienna segir að þeim hafi verið
gert að keyra sextán sæta hóp
ferðabíl en þau hafi aðeins haft
venjulegt bílpróf. Auk þess þurftu
þau að sofa á dýnu á gólfinu í
einu nuddherberginu og borga fé
laginu fyrir það 50 þúsund krónur
á mánuði.
Sienna og Maxim kröfðust þess
á fundi með Andreas í maí 2017
að fá alla vinnuna greidda og var
þeim þá sagt upp. Í samtali við DV
segir Sienna:
„Við báðum um að fá það greitt
sem við áttum inni. Andreas þótt
ist ætla að hugsa um þetta þegar
við töluðum við hann eitt kvöldið.
Þegar við snerum aftur til vinnu
morguninn eftir var búið að fela
lyklana og loka okkur úti. Svo
sagði hann okkur að þetta gengi
ekki upp.“
Múlbinding
Allt í einu voru Sienna og Maxim
orðin heimilislaus og höfðu ekki
fengið greitt. Þau leituðu að hús
næði og annarri vinnu en fundu
ekkert. Þau voru með köttinn
sinn með sér og það gerði húsleit
mjög erfiða. Á meðan þurftu þau
að leigja tímabundið á Airbnb á
sama verði og ferðamenn, um 20
þúsund krónur á dag. Þau eyddu
hundruðum þúsunda af sparifé
sínu til að búa og halda sér uppi.
„Við leituðum að húsnæði
og atvinnu um allt Norður og
Austur land. En peningurinn okkar
kláraðist áður en við feng
um nokkur svör.“
Verkalýðsfélagið Ein
ingIðja vann í þeirra máli
fyrir þau og þann 2. júní
voru þau kölluð til að undir
rita samkomulag um launa
greiðslur og endalok málsins.
„Verkalýðsfélagið neyddi okkur
til að skrifa undir samkomulagið.
Okkur var sagt við fengjum engar
greiðslur ef við myndum ekki
skrifa undir þetta og að verkalýðs
félagið myndi ekki fara með málið
fyrir dómstóla. Við höfðum enga
aðra möguleika og fengum engar
þagnargreiðslur,“ segir Sienna.
Í samkomulaginu kom fram
að uppgjöri væri að fullu lokið og
hvorugur aðilinn gæti gert frek
ari kröfur á hendur hinum. Yrði
því ekki beint til stéttarfélaga, fjöl
miðla, annarra. Ekki einu sinni
lögreglu.
Björn Snæbjörnsson, formaður
EiningarIðju, neitaði að tala um
einstök mál en sagði að starfs
fólk reyndi alltaf að aðstoða fólk,
hvort sem það væri félagsmenn
eða ekki. Hafnaði hann því að
þetta væru óeðlileg vinnubrögð
og sagði það oft geta verið erfitt að
sanna yfirvinnu til dæmis.
Hundabú undir eftirliti
Eftir þetta yfirgáfu Sienna og
Maxim
landið,
reið og
leið yfir því
hvernig far
ið var með
þau. Sienna
segir að þeirra mál
sé ekki einsdæmi.
„Við urðum að fara. Við vorum
heimilislaus og höfðum eytt þús
undum punda. Við erum enn þá
að greiða skuldir út af þessu og
þetta er búið að eyðileggja líf mitt.
Ég var búin að vinna að því í mörg
ár að flytja til Íslands og klára
doktorsritgerð. Ég vildi setjast að
og vinna á Íslandi.“
Þá hafi sleðahundarnir hjá
Inspiration Iceland ekki fengið
viðunandi meðferð.
„Þrír hundarnir voru sjaldan
notaðir í ferðir og voru þeir
geymdir í búri vikum saman án
hreyfingar. Einn átti við hegð
unarvandamál að stríða og var
bundinn fyrir utan þvottahúsið
dag og nótt.“
Hjalti Andrason, fræðslustjóri
hjá Matvælastofnun, staðfestir að
Inspiration Iceland hafi verið til
skoðunar hjá stofnuninni. Tvær
ábendingar hafi borist og sú nýrri
síðastliðið vor. Hann segir:
„Þetta hundabú er undir eftirliti
Matvælastofnunar. Við gerðum
kröfur um úrbætur og brugðist var
við þeim.“
Segir hjónin hafa skaðað fyrir-
tækið á samfélagsmiðlum
Í samtali við DV segir Andreas
Baumgartner að málið sé að fullu
lokið frá báðum hliðum.
„Þetta var unnið með stéttarfé
laginu og við komum til móts við
þeirra kröfur. Það var gengið frá
þessu. Formaður stéttarfélagsins
lagði þetta fram og það var sam
þykkt.“
Var öll yfirvinna og allt greitt?
„Já.“
Var það ykkar krafa að þau
mættu ekki tala við fjölmiðla, lög-
reglu og fleiri?
„Nei, en þau voru að nota sam
félagsmiðla til að sverta okkur sem
er brot á réttindum okkar. Það var
þess vegna. Þau voru að nota sam
félagsmiðla og slíkt. Þess vegna
kom þetta fram.“
Af hverju var þeim bannað að
fara til lögreglu, er það ekki réttur
allra að leita til lögreglu ef á þeim
er brotið?
„Þau voru að skaða okkur á
öðruvísi hátt.“
Andreas vildi ekki svara því af
hverju Tiddy og Maxim var sagt
upp, af hverju þau þurftu að sofa á
dýnu á gólfi og svo framvegis. Sleit
hann þá samtalinu. n
MARTRÖÐ BRESKRA
HJÓNA Á AKUREYRI
n Störfuðu hjá Inspiration Iceland á Akureyri n Þurftu að sofa á gólfi nuddstofu„Við höfð-
um enga
aðra möguleika
og fengum engar
þagnargreiðslur“
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Hlekkjaður sleðahundur
Félagið er undir eftirliti MAST.
Nuddherbergi Dýnurnar
fylltu næstum upp í rýmið.
Sienna
Gray