Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 68

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 68
68 MENNING 19. október 2018 T ívolíið í Hveragerði var í fjöl- mörg sumur vinsæll áfanga- staður barnafjölskyldna sem skemmtu sér þar í hinum ýmsu tækjum. Það hóf göngu sína árið 1986 og var þá undir stjórn Sigurðar Kárasonar. Ári síðar tók hæstaréttarlögmaðurinn Ólafur H. Ragnarson við og sá um reksturinn næstu sjö árin. Tívolíinu var síðan lokað vorið 1994 en víst er að ófáir Íslendingar eiga góðar minningar tengdar skemmtigarðinum. „Okkur langaði að útbúa skemmtilegan stað þar sem fjöl- skyldur gætu komið og átt ánægju- legar stundir saman,“ sagði Ólafur í samtali við Pressuna á sínum tíma og tók fram að Kolkrabbinn hafi verið vinsælasta tækið af þeim mörgu sem þar var að finna. Ásamt fleiri tækjum var boðið upp á klessubíla, drauga- hús, bátatjörn og skotbakka þar sem gestir gátu freistast til þess að keppa um ýmiss konar vinninga. Að sögn Ólafs ráku margir upp stór augu þegar heyrðist af áætlun- um hans um að koma á rekstri tívolís á þessum tíma en hann bætti við að ævintýraþrá og löngun í að prófa nýja hluti hafi leitt hann á þá braut. Tívolíið var samanlagt um 6.000 fer- metrar að flatarmáli, með yfir 20 metra lofthæð og rúmaði hátt í þrjú þúsund manns. Barnafjölskyldur af höfuðborgarsvæðinu og Suður- landsundirlendinu voru helstu við- skiptavinirnir. Tívolíið naut gríðarlegra vinsælda á fyrstu árunum en með tímanum varð ævintýri Ólafs og starfsfólksins þyrnum stráð. Skemmtigarðurinn átti við rekstrarörðugleika að stríða á tíunda áratugnum og koma bresks farandtívolís til landsins bætti ekki úr skák og hafði slæm áhrif á aðsókn. Ólafur hugsar þó til þessa tíma með mikilli hlýju og þá sé sérstak- lega ánægjulegt þegar fólk gefi sig á tal við hann á förnum vegi og segi frá ánægjulegum minningum úr Tívolí- inu. Þá minnist hann einnig hinna ýmsu skemmtikrafta sem létu ljós sitt skína á uppákomum í Tívolí- inu, svo sem kínverskra akróbata sem léku loftfimleika fyrir gesti og gangandi og Látúnsbarkann sem vakti mikla lukku. Hinum megin við götuna var svo Eden þar sem hægt var að heilsa upp á apan Bóbó og fá sér ís. GRÆNA TUNNAN AUÐVELDAR FLOKKUNINA Pappír, pappa, plast og minni málmhluti má setja beint í tunnuna - Muna að skola Pantaðu grænu tunnuna í síma 577-5757 eða www.igf.is/panta Hugsum áður en við hendum! Manst þú eftir Tívolíinu í Hveragerði? Tómas Valgeirsson tomas@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.