Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 9
FÓLK - VIÐTAL 919. október 2018
dreginn verði lærdómur af sögu
hennar. Katrín vill réttlæti. Hún vill
einnig að stofnunin læri af mistök-
um sínum og lagfæri þau en líkt
og komið hefur fram frá Kjara- og
mannauðssýslu ríkisins eru ráð-
leggingar þeirra algjörlega hunds-
aðar af yfirmönnum Katrínar.
Happy-hour varð að martröð
Þann 24. mars 2017 ákvað hópur
starfsmanna Fjársýslunnar að
gera sér glaðan dag á happy-hour
á bar nærri vinnustaðnum. Katrín
fór sjálfviljug heim með samstarfs-
manni sínum.
„Við höfðum hist nokkrum
sinnum áður, fyrir þetta kvöld.
Á þeim tíma hafði ég ekki hug-
mynd um að hann væri að sofa
hjá annarri samstarfskonu minni
en frétti nokkru áður að hann ætti
kærustu úti á landi. Hann faldi
það fyrir öllum vinnufélögum og á
samfélagsmiðlum var ekki annað
að sjá en að hann væri einhleypur,“
segir Katrín.
Eitt leiddi af öðru þegar heim
var komið og Katrín og samstarfs-
maður hennar hófu að stunda
kynlíf með fullu samþykki Katrín-
ar. Skyndilega breyttist viðmót
mannsins, hann gerðist harð-
hentur og fór út fyrir þau mörk
sem Katrín gat hugsað sér. Hún
ber enn þá líkamlega merki eftir
eftir þessa nótt.
„Ég var gjörsamlega niðurbrot-
in. Það sem var verst var að ég
skammaðist mín svo hrikalega.
Að ég skyldi hafa hleypt þessum
manni nálægt mér og hunsað við-
vörunarbjöllurnar,“ segir Katrín.
Hún er því miður vön því að takast
á við stór áföll í lífi sínu. Hún missti
ung föður sinn og þegar hillti und-
ir lok grunnskólagöngunnar lenti
hún í alvarlegu umferðarslysi og
var vart hugað líf. Í 10. bekk var
henni ekið um í hjólastól og þurfti
síðan að læra að ganga upp á nýtt.
Fyrir nokkrum árum missti hún
síðan bróður sinn úr ofneyslu
fíkniefna. „Ég hef alltaf verið sterk
og sjálfstæð. Þegar ég hef lent í
áföllum þá hef ég í raun sett á mig
grímu, látið sem ekkert væri og
komist í gegnum hlutina á hnef-
anum. Í gegnum tíðina hef ég því
sett upp margar grímur og ég ætl-
aði að tækla þetta eins. Láta sem
ekkert væri, ekki sýna nein veik-
leikamerki og aldrei sýna ofbeldis-
manninum að hann hefði náð að
særa mig. Ég ætlaði að fara þetta á
reiðinni,“ segir Katrín.
Reyndi að koma henni
úr jafnvægi
Næsta mánudag mætti hún í
vinnuna eins og ekkert hefði í
skorist. Það kom henni í opna
skjöldu að meintur ofbeldismaður
nýtti hvert tækifæri til þess að tala
við hana þegar aðrir voru nærri en
leit ekki í áttina til hennar ef hún
var ein. Henni fannst eins og hann
væri að reyna að koma henni úr
jafnvægi. „Í kaffitímanum þennan
dag settist hann niður við hliðina
á mér og fór að spyrja út í kap-
alinn sem ég var að leggja. Ef það
var starfsmannafundur þá passaði
hann sig á að setjast við hliðina á
mér. Hann nýtti hvert tækifæri til
þess að ögra mér og reyna að stuða
mig,“ segir Katrín.
Hún tórði út vikuna en á föstu-
deginum brotnaði hún niður. Þá
sagði hún náinni samstarfskonu
frá því hvað hefði gerst. Daginn
eftir fór hún upp á Neyðarmót-
töku nauðgana í viðtal og skoðun.
Það hefur DV fengið staðfest frá
lögfræðingi Katrínar.
„Ég var enn með áverka. Ég var
í raun viss um að hann hefði eyði-
lagt eitthvað,“ segir Katrín. Tek-
in voru sýni og myndir. Að lokum
fékk Katrín áverkavottorð. Hún
hefur þó ekki enn treyst sér til að
kæra manninn.
Hittust í hljóðeinangruðu
herbergi
Í samráði við sálfræðing Neyðar-
móttökunnar ákvað hún að til-
kynna um málið til Péturs Ó.
Einarssonar, starfsmannastjóra
Fjársýslunnar.
„Við hittumst í hljóðeinangr-
uðu fundarherbergi og þar brotn-
aði ég niður tvisvar sinnum áður
en ég gat byrjað að lýsa atburða-
rásinni,“ segir Katrín. „Þegar ég
var búin að létta þessu af mér
spurði Pétur hvort ég vildi afsök-
unarbeiðni frá geranda. Ég hváði,
eðlilega, og sagði honum þá
skoðun mína að manninum væri
ekki stætt lengur á vinnustaðn-
um. Benti ég á hótanir hans í garð
samstarfskonu minnar sem og
kvartanir yfirmanna um að hann
væri ekki að sinna vinnunni sinni
sem skyldi. Það væri annaðhvort
hann eða ég,“ segir Katrín. Kvaðst
starfsmannastjórinn ætla að
skoða málið og láta hana vita ef
til aðgerða yrði gripið.
Tveir valkostir
Daginn eftir var meintur gerandi
kallaður inn á fund til starfs-
mannastjórans. Þar var hon-
um tjáð að nafnlaus kvörtun um
hátterni hans hefði borist. Fékk
hann tvo valkosti. Að sættast á
uppsögn eða að farið yrði í hart
við hann. Hann valdi þegar fyrri
kostinn og síðan gekk hann út
sigri hrósandi. Tilkynnti hann
samstarfsmönnum sínum að
hann hefði sagt upp sjálfviljugur
og að hann ætti einungis eftir að
vinna næstu þrjá daga.
„Ég fór að hágráta þegar sam-
starfskona mín tilkynnti mér
hvað hefði gengið á,“ segir Katrín.
„Þetta var léttir en að sama skapi
varð ég hrædd. Ég vildi ekki vera
á staðnum á meðan hann ynni
uppsagnarfrestinn og þar sem
páskarnir gengu í garð þá sneri ég
ekki til vinnu fyrr en um tveimur
vikum síðar,“ segir Katrín.
„No hard feelings hérna megin“
Þegar Katrín mætti til vinnu eftir
páskana beið eftir henni tölvu-
póstur frá meintum geranda.
Katrínu var brugðið þegar hún
opnaði hann og fannst óhugnan-
legt að lesa skilaboðin.
„Hann hafði sent póstinn bara
nokkrum mínútum eftir upp-
sögnina. Titillinn var „No hard
feelings hérna megin“ og í megin-
málinu skrifaði hann eingöngu:
„Með þökkum fyrir samstarfið og
vináttuna,“ segir Katrín og viður-
kennir að henni hafi verið brugð-
ið.
Á þessum tímapunkti var hún
þakklát yfirmönnum sínum fyrir
að taka fast á málunum. „Metoo-
byltingin var ekki hafin og mér
fannst ekki sjálfsagt að þetta yrði
niðurstaðan. Ég gerði jafnvel ráð
fyrir því að ég þyrfti sjálf að hætta,“
segir Katrín. Hún hafi farið nokkru
síðar inn á skrifstofu Ingþórs Karls
Eiríkssonar fjársýslustjóra til þess
að þakka honum fyrir úrvinnsl-
una en segist hafa fengið yfir sig
reiðilestur um að hún þyrfti að
gæta að hegðun sinni í vinnunni,
hvað hún segði og gerði. Í kjöl-
farið hafi þessi æðsti yfirmaður
hennar orðið kuldalegur og fjar-
rænn í samskiptum við hana og
gætt þess að þau yrðu eins tak-
mörkuð og hægt væri.
Í dagbók sinni um upplifun
sína segir Katrín:
„Ingþór horfði á mig og sagði
með vanþóknunarsvip „af hverju
ætti ég að vilja hafa mann í vinnu
sem gerir eitthvað sem að ég fyrir-
lít!“ Hann hélt svo ræðu yfir mér
um það að ég þyrfti að fara að
passa mína hegðun. Hvað ég segði
og gerði. Ég varð svo kjaftstopp að
ég sat bara þarna með tárin í aug-
un og gat ekkert sagt.
Sífellt á sýklalyfjakúrum
Um miðjan maí fór Katrín að
finna fyrir ýmsum líkamlegum
óþægindum. Þrýstingsverk í and-
liti og höfði auk langvarandi sýk-
inga í augum, nefi og kinnhol-
um. Í fyrstu var talið að hún væri
að glíma við einhvers konar of-
næmi. Nú eru læknar á annarri
skoðun. Talið er að um afleiðingar
áfallastreitu sé að ræða. Eins og
hefur komið fram hefur DV rætt
við fólk sem tengist Katrínu í
gegnum vinnuna. Þau efast ekki
um að hvert orð í frásögn henn-
ar sé rétt. Það fólk er slegið vegna
frásagnarinnar. Einn starfsmað-
ur kvaðst hafa áttað sig á, eftir að
maðurinn var farinn, að hann var
á eftir fleiri konum.
„Ég man ekki hversu marga
sýklalyfjakúra ég fór á,“ segir
Katrín. „Ég var á sterakúr í um sex
vikur og var á alls konar lyfjum. Ég
var með hitavellu í marga mánuði
og svaf nánast ekkert. Sumarfrí-
inu eyddi ég uppi í sófa sárkvalin.“
Þennan tíma var hún aðframkom-
in í vinnunni og upplifði mikla
vanlíðan. Varð það til þess að hún
endurupplifði það sem hafði átt
sér stað þegar hún sá nafn manns-
ins á hinum ýmsu skjölum og
tölvupósti sem hún neyddist til að
meðhöndla vinnu sinnar vegna.
Í dagbók sinni segir Katrín:
„Ég mætti í vinnuna veik.
Enginn af næstu þremur yfirmönn-
um mínum, Vilhjálmur, Pétur eða
Ingþór pældu í því þó að það sæist
langar leiðir að ég var fárveik.“
Upplifði ekki stuðning yfir-
manna
Í lok nóvember fór Katrín í leyfi
vegna langtímaveikinda eftir að
vinkona hennar hafði í raun sett
henni stólinn fyrir dyrnar.
„Þegar að
ég ætla
svo að fara inn í
FJS þá var búið
að aftengja að-
gangskortið mitt
Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu.
Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur.
Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt
úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig.
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR
Katrín Ingibjörg Sagt
upp í kjölfar nauðgunar.