Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 2
2 19. október 2018FRÉTTIR stjórnmálamenn sem gætu leikið betur en Dóra Í vikunni fór Dóra Björt Guðjóns- dóttir, borgarfulltrúi Pírata, með stuttan leikþátt í ræðustól og túlkaði hún þar persónuna Carol úr bresku gamanþáttaröðinni Little Britain. Atriðið vakti athygli en voru flestir á því að hæfileikar hennar lægju ekki á þessu sviði. DV tók saman fimm stjórnmálamenn sem gætu túlkað persónur úr sjónvarpsþáttum og kvikmyndum betur en Dóra. Lilja Dögg Alfreðs- dóttir – Daenerys Targaryen Ljós og fríð ásýndum en kaldrifjuð og lævís þegar á þarf að halda. Lilja spratt upp úr deilum milli tveggja smákónga en hún mun taka yfir landið á endanum með hjálp bókaskatts … og dreka. Guðmundur Ingi Kristinsson – David úr Lost Boys Það eru engin sérstök persónueinkenni sem tengja hinn skelegga þingmann Flokks fólksins við David úr Lost Boys. Ólíkt Guðmundi þá er David siðblind og sturluð vampíra. En þeir eiga það báðir sameiginlegt að skarta óborganleg- um ljósum „möllett.“ Smári McCarthy – John Rambo Smári fékk skotvopna- þjálfun í Afganistan árið 2009 og hefur sagt að hann hafi lent í ýmsum uppákomum í tengslum við skot- vopn. Hann er ekki sá eini. John Rambo ferð- aðist til Afganistan í Rambo III og dvaldi þar með skæruliðum. Þar lenti hann líka í alls konar uppákomum. Guðni Th. Jóhann- esson – Forrest Gump Guðni á það sameigin- legt með Forrest Gump að allir elska hann. Það þykir krúttlegt og heimilislegt að sjá hann með buff eða í doppóttum sokkum. Líkt og Forrest þá dúkkar Guðni upp alls staðar og tekur í spaðann á heimsfrægu fólki. Bjarni Benedikts- son – Walter White Bjarni Ben og Walter White úr þáttunum Breaking Bad eru báðir bakarar. Annar bakar kökur en hinn kristallað amfetamín. Þeir eiga það einnig sameiginlegt að geta talað sig út úr ótrúleg- ustu aðstæðum. Á þessum degi, 19. október 1216 – John Englandskonungur fellur frá í Newark-on-Trent. Níu ára sonur hans, Henry, fyllir hans skarð. 1812 – Napóleón Bónaparte hörfar frá Moskvu. 1933 – Þýskaland segir sig úr Þjóða- bandalaginu. 1989 – Áfrýjunardómstóll Englands og Wales ógildir dóma yfir Guildford-fjór- menningunum sem þá höfðu setið 15 ár í fangelsi. 2003 – Móðir Teresa kemst í samfélag hinna blessuðu með úrskurði Jóhannes- ar Páls páfa II. Síðustu orðin „Gat nú verið. Gat nú verið. Fæddist á hótelherbergi – og fjandinn hafi það – dó á hótelherbergi.“ – Bandaríski rithöfundurinn Eugene O’Neill (1888–1953) Kristinn Haukur ráð- inn fréttastjóri hjá DV K ristinn Haukur Guðnason hefur verið ráðinn fréttastjóri hjá DV. Mun hann hafa umsjón með helgarblaðinu ásamt Birni Þor- finnssyni. „Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt. Hér er samrýmd- ur, hugmyndaríkur og öflugur hópur starfsfólks sem hefur gert það að verkum að miðillinn er á mikilli uppleið. Það er spennandi að fá að taka þátt í að móta DV á komandi misserum enda erum við sífellt að auka fjölbreytni efn- isins fyrir lesendur,“ segir Kristinn. „Það er ákaflega gefandi að finna fyrir þessum mikla meðbyr og við ætlum að halda sókninni áfram.“ Kristinn hóf störf sem blaða- maður hjá DV í júní árið 2017. Áður hafði hann meðal annars starfað fyrir Kjarnann frá árinu 2013. Kristinn er fæddur í Uppsölum í Svíþjóð árið 1980. Hann er með MA-gráðu í sagn- fræði og hefur numið við Háskóla Íslands og Edinborgarháskóla. eftir blaðamanni DV auglýsir eftir blaðamanni í fullt starf. Miðlar Frjálsrar fjölmiðlunar hafa verið á mikilli siglingu undanfarið, lesturinn aukist og tekið eftir því starfi sem unnið er. Undir hatti Frjálsrar fjölmiðlunar eru meðal annars DV, DV.is, Pressan, Eyjan, Bleikt og 433. Ef þú hefur það sem til þarf, hugmyndaauðgi, gott vald á tungu- málinu, innsýn inn í þjóðfélagsmál og dugnað skalt þú endilega sækja um. Umsóknir berist á netfangið kristjon@dv.is. Umsóknarfrestur er til og með 26. október. auglýsir 2007 2012 hækkun í % 2018 breyting frá 2012 Pilsner 49 81 65% 95 17% Stella rúgbrauð 78 159 104% 279 75% Appelsín dós 49 95 94% 83 -13% Heinz bakaðar baunir 4 dósir 196 479 144% 356 -26% Homeblest kex 138 239 73% 149 -38% Agúrka íslensk 57 134 135% 167 25% Siríus Konsum 300 g 256 398 55% 515 29% Tómatar íslenskir 367 575 57% 498 -13% Stjörnuegg 296 545 84% 559 3% MS skyr 500 g 99 197 99% 240 22% Epli rauð 98 379 287% 395 4% ES steiktur laukur 69 95 38% 98 3% Libby’s tómatsósa 102 168 298 77% 372 25% MS Léttmjólk 1 l 72 115 60% 152 32% Ritz kex 200 g 49 158 222% 167 6% OS Smjörvi 147 282 92% 539 91% Vínber rauð 269 895 233% 798 -11% Pepsi Max 2 l 97 212 119% 215 1% Bananar Chiquita 129 239 85% 215 -10% MS Matreiðslurjómi 155 267 72% 339 27% OS Smurostur beikon 241 363 51% 549 51% Mjúkís Pekanhnetur 2 l 405 795 96% 827 4% OS Mozzarella 160 g 138 252 83% 412 63% Myllu Heimilisbrauð 770 g 165 322 95% 387 20% MS Pylsubrauð 69 147 113% 179 22% Rófur íslenskar 129 229 78% 298 30% Kötlu vanilludropar 59 159 169% 169 6% Bónus rúsínur 500 g 119 339 185% 295 13% Kornax hveiti 2 kg 98 298 204% 229 -23% MH Smjörlíki 500 g 89 189 112% 295 56% ES Sykur 1 kg 89 205 130% 98 -52% Gunnars Majónes 250 g 71 195 175% 235 21% Nóa rúsínur 259 427 65% 529 24% Ömmu flatkökur 59 129 119% 139 8% ORA gulrætur og grænar 56 162 189% 205 27% Perur 134 295 120% 259 -12% OS Feti í kryddi 275 429 56% 545 27% MS Súrmjólk 111 179 61% 256 43% Paprika rauð 232 375 62% 459 22% Iceberg 174 579 233% 395 -32% Samtals 7817 13922 15009 Bensín jún 2007/ des 2012/ okt 2018 124 248,9 101% 223,6 -10% Launavísitala jún 2007/ nóv 2012/ ágúst 2018 319 437,7 37% 662,8 51% Evra sept 2007/ des 2012/ okt 2018 87,8 165,46 88% 139,54 -16% Dollari sept 2007/des 2012/ okt 2018 61,88 127,05 105% 121,01 -5% Þ ann 19. janúar 2013 fór mynd á fleygiferð um sam- félagsmiðla, en hún sýndi verðmismun á matarkörf- unni hjá Bónus árin 2007 og 2012. Samkvæmt textanum sem fylgdi myndinni fann kona fimm ára gamla nótu frá Bónus og fór og keypti sömu vörur og bar saman verðið. „Mismunurinn er sláandi. Svo sláandi að réttast er að boða til allsherjar verkfalls þangað til að laun í landinu verða leiðrétt sam- kvæmt svakalegri hækkun á mat- vörum. Augljóst að ríkisstjórn lýg- ur þegar hún segir að verðlag sé að lagast. Verðmismuninn má sjá í viðhenginu,“ sagði í textanum sem fylgdi myndinni. Það var því kjörið að fara í Bón- us og kaupa sömu vörur og keypt- ar voru árin 2007 og 2012. Inn- kaupaferðin var farin föstudaginn 12. október milli kl.ukkan 18 og 19 í Bónus Kringlunni. Kílóverð var tekið niður á grænmetinu. Líkt og sjá má á myndinni var verðmunurinn gríðarlegur á milli áranna 2007 og 2012, þannig að karfan hækkar í verði um 6.105 krónur eða 78,1% á fimm árum. Verðmunur er hins vegar ekki mik- ill á milli áranna 2012 og 2018, þannig að karfan hefur hækkað í verði um 820 krónur eða 5,89 % á sex árum. Um er að ræða 40 vörutegundir og hafa 10 þeirra lækkað frá 2012, sú sem mest lækkar, lækkar um 38% Mesta hækkunin er á mjólkur- vörum, Smjörva sem hefur hækk- að um 91% og léttmjólk um 32%, vörur sem eru nauðsyn á flestum heimilum. Til samanburðar hef- ur hins vegar til dæmis Pepsi Max hækkað í verði um 1%. Brauð hækkar um 20–75%, í grænmetisdeildinni er bæði um að ræða hækkun, allt að 30%, og lækk- un, allt að 32%. n SJÁÐU VERÐ 2007, 2012 OG Í DAG Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.