Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 56
56 19. október 2018 Tímavélin Gamla auglýsinginNjörður 5. maí 1916 Einstaklega góðar og ljúffengar pönnukökur Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is ÚTBURÐI ELÍNÁR JÓNSDÓTTUR BJARGAÐ ÚR SKAFLI nDæmd til dauða en náðuð Á rið 1846 var tvítug stúlka, Elíná Jónsdóttir, dæmd til dauða fyrir útburð. Barnið lifði hins vegar af og var því bjargað úr snjóskafli í hríðarbyl. Barnsfaðirinn, sem var bóndinn sem hún var í vist hjá, var ekki dreginn til ábyrgðar og Elíná síð- ar náðuð. Streittist við skoðun Elíná Jónsdóttir fæddist árið 1826 og ólst upp á Hánefsstöð- um í Svarfaðardal. Hún var talin fjörug, hagvirk, djörf, fríð og „voru það augu hennar sem sérstaklega vöktu eftirtekt manna.“ Var hún ákaflega blíð við þá sem minna máttu sín, munaðarlaus börn og ekkjur. Sem unglingur vistaðist hún hjá Vigfúsi Jónssyni, bónda á Sveins- stöðum, sem var giftur maður en átti launbörn víða. Ekki leið á löngu þar til hann fór að venja komur sínar í herbergi Elínár. Nágrannakona Vigfúsar, Anna í Gljúfurártungu, tók eftir því að El- íná var með barni haustið 1845 og lét hún Árna Pálsson hreppstjóra vita af því. Sagði hún að Vigfús væri faðirinn og að Elíná hlyti að reyna að fyrirfara barninu þegar það kæmi í heiminn. Árni reið að Sveinsstöðum með Ingibjörgu Jónsdóttur ljóðmóður með í för og vildu þau skoða Elíná. Hún streittist á móti en var skoðuð og þungun hennar staðfest. Setti hann Elíná í vist til Ingibjargar í kjölfarið. Fæddi dreng við útihús Hríðarbylur var þann 19. nóvem- ber þegar Elíná tók léttasóttina. Lét hún hins vegar ekki á neinu bera og laumaðist út í storminn. Standandi fæddi hún dreng fyrir utan bæinn og féll hann í snjóinn þegar naflastrengurinn slitnaði. Bar hún drenginn að ysta útihús- inu, lagði hann nakinn í skafl og mokaði snjó yfir hann. Þegar hún kom inn mætti hún Ingibjörgu og manni hennar, Jóni Þórðarsyni, sem grunaði hvað hefði skeð. Elíná játaði og Jón snar- aðist út að skaflinum til að bjarga drengnum. Var hann ómeiddur og fékk nafnið Salómon. Í febrúar árið 1989 lét lögreglan í Reykjavík til skarar skríða gegn manni sem grunaður var um að skipuleggja umfangsmikla vændisstarfsemi í höfuðborginni. Hafði hann fimm stúlkur á sínum snærum, sumar andlega vanheil- ar, sumar í klóm fíknar en aðrar venjulegar húsmæður í gróðavon. Maðurinn neitaði sakargiftum og sagðist einungis hafa stundað hjú- skaparmiðlun. Tvö rúm og smokkapakki Þann 4. febrúar sló Tíminn upp krassandi fyrirsögn á forsíðu; „Mangari vændishrings í gæslu“, og skyggða mynd af hinum grunaða með. Jón H. Snorrason, deildar- stjóri hjá Rannsóknarlögreglunni, vildi ekki tjá sig efnislega um málið en staðfesti við blaðamann að rúm- lega fimmtugur maður væri í haldi og grunaður um að hafa gerst brot- legur um skipulagningu vændis í Reykjavík. Lá við því refsing allt að fjórum árum í fangelsi. Blaðamenn Tímans höfðu vit- að af málinu lengi og meðal annars lagt gildru fyrir manninn en án ár- angurs. Í samtölum við heimildar- menn fengust þær upplýsingar að maðurinn hefði þónokkrar konur á sínum snærum, flestar á þrítugs- aldri en einhverjar yngri þó. Lögreglan hafði einnig vitað af starfsemi mannsins um nokkurt skeið. Var hann loks handtekinn að kvöldi 2. febrúar á heimili sínu við Laugaveg en þá voru tvær vænd- iskonur og viðskiptavinur á staðn- um. Í íbúðinni var „fundarher- bergi“ þar sem voru tvö rúm, smokkapakki í glugganum, á veggj- unum héngu myndir af fáklædd- um stúlkum. Skömmu eftir hand- tökuna var maðurinn úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald og yfir- heyrslur hófust. Sjortari á 5.000 krónur Meðal sönnunargagna í málinu var dreifibréf þar sem þjónustan var auglýst, en þó undir rós. „Góð- ir dagar og hamingja“ var yfirskrift- in og í texta bréfsins kom fram að hann tæki að sér að útvega kvenfólk og karla á aldrinum 16 til 70 ára. Þá hefði hann herbergi til leigu og gæti séð um að aka kvenfólki allt að eitt hundrað kílómetra leið. „Ég heiti algjörum trúnaði,“ stóð í bréfinu. Þá auglýsti hann einnig í einkamála- dálkum DV. Dreifibréfið og smáauglýs- ingarnar voru ekki hans eina aug- lýsingaleið. Oft beið hann fyrir utan skemmtistaði og sigtaði út líklega viðskiptavini. Hann gaf sig á tal við þá og benti þeim á að hann gæti út- vegað bæði kvenfólk og áfengi gegn gjaldi. Auk þess gæti hann keyrt þá á staðinn. Var hann á samningi við ljósmyndastofu sem útvegaði hon- um myndabækling með myndum af þeim stúlkum sem í boði voru. Starfsemin var orðin svo þróuð að þegar mangarinn var handtekinn hafði hann falast eftir samningi við VISA Ísland um greiðslukortaþjón- ustu. Samkvæmt heimildum Tím- ans var þrennt á boðstólum hjá mangaranum. Fyrir fimm þúsund krónur var hægt að kaupa snögga afgreiðslu eða „shortara.“ Í öðru lagi var hægt að gera tilboð til að fá að hafa stúlku hjá sér alla nóttina. Í þriðja lagi gátu menn komið með áfengi með sér og fengið afnot af stúlku gegn „áfengisleka.“ Verjur voru ekki skilyrði sem kann að koma á óvart. Árið 1989 var eyðnifaraldurinn í hámæli og mikill áróður fyrir notkun smokka, sérstaklega í tengslum við kynlífs- þjónustu. Sumar stúlkurnar sem störfuðu fyrir manninn spurðu ekk- ert endilega um verjur og sögðu að þær væru ekki skilyrði. Fíklar, öryrkjar og húsmæður Samkvæmt heimildum Tímans áttu flestar stúlkurnar við áfengis- eða fíkniefnavanda að stríða. Auk þess komu þær úr félagslega erfiðum að- stæðum og fátækt. Stunduðu þær vændi til að fjármagna neysluna. Einnig störfuðu hjá honum konur sem voru taldar andlega vanheilar. Við yfirheyrslur sagðist ein stúlk- an, 19 ára, hafa kynnst manninum tveimur árum áður. Þá hefði hún haft mök við hann í skiptum fyr- ir áfengi. Eftir það hefði hún haft framfæri sitt á samförum við karl- menn fyrir milligöngu hans og ávallt verið drukkin við þá iðju. Önnur kona, 29 ára, andlega vanheill öryrki, kynntist manninum þegar hann keypti af henni vændi. Í kjölfarið sagðist hún hafa beðið hann um að finna handa sér eigin- mann en hann þá selt hana í vændi. Ekki voru þó allar í þessari að- stöðu og dæmi um að giftar kon- ur sem ekki áttu við áfengis- eða fíknivanda að stríða störfuðu fyrir manninn. Einn heimildarmaður- inn sagði: „Hjá þeim er þetta bara „bis- ness.“ Þær stökkva jafnvel frá pott- unum þegar melludólgurinn hr- ingir og getur komið á stefnumóti. Yfirleitt er um að ræða „shortara“ og þær taka 5.000 krónur fyrir.“ Sagðist stunda hjúskaparmiðlun Lögregla gat sýnt fram á brot mangarans með því að tengja fær- slur á tékkareikningi hans við starf- semina. Í nóvember árið 1988 fékkst dómsúrskurður fyrir því að bankaráð Landsbankans veitti að- gang að reikningi hans og á sama tíma fékkst einnig húsleitarheimild. Þegar stúlkurnar tóku við greiðslu var hægt að sjá hvernig færslur voru lagðar inn á hans reikning. Eitt af helstu sönnunargögnun- um í málinu var gíróseðill, stílaður á mangarann, sem kúnni fór með í bankann til þess að greiða fyrir þá þjónustu sem hann hafði keypt. Í reitnum þar sem átti að rita tegund greiðslu var þakkað fyrir „erótískar HÓRMANGARI GRIPINN GLÓÐVOLGUR Á LAUGAVEGI nGerði út fimm vændiskonur n Sagðist stunda hjúskaparmiðlun„Þær stökkva jafnvel frá pott- unum þegar melludólgur- inn hringir og getur komið á stefnumóti.“ Neitaði sök Tíminn 4. febrúar 1989. Dreifibréf Eitt af sönnunargögnunum í málinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.