Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 36
Lýstu upp myrkrið 19. október 2018KYNNINGARBLAÐ
I Heildverslun flutti þann 2. maí 2018 að Hvaleyrarbraut 35 í Hafnarfirði, en verslunin hefur
verið rekin sem fjölskyldufyrirtæki.
Markmið verslunarinnar er að ein-
falda heimilisstörfin með skemmti-
legum vörum.
„Við erum búin að flytja inn
ilmkerti í 15 ár,“ segir Björg Skúla-
dóttir eigandi, en kerti frá þeim
fást í verslunum Bónus um land
allt. Í versluninni að Hvaleyrarbraut
og í vefversluninni ihverslun.is fást
einnig Bath- and Body Works-kerti,
ásamt fleiri vörum.
Kertin eru amerísk og auk hefð-
bundins ilms, sem er í sölu allt árið,
þá kemur inn árstíðabundinn ilmur,
„eins og fyrir jólin núna þá koma
fimm nýjar ilmtegundir sem hafa
ekki verið áður til hjá okkur,“ segir
Björg.
Hleðsluljós eru mjög sniðug og
hentug, bæði fyrir budduna og
umhverfið. „Þau má hlaða og hver
hleðsla endist í allt að 14 tíma.
Einnig má skipta um lit á þeim, eins
og núna þá eru þau bleik í glugg-
anum hjá okkur í tilefni af bleikum
október.“
Það nýjasta eru sniðugar ilm-
kúlur á hagstæðu verði, sem fást
bæði hjá I Heildverslun og í Bónus.
„Þær má setja inn á bað, í rusla-
skápinn eða á náttborðið. Dósin er
opnuð og þá eru göt á henni eins
og á púðurdós og þá kemur ilmur-
inn upp. Síðan eyðast kúlurnar upp
á mánuði.“
Í versluninni fæst einnig mikið
úrval heimilis- og gjafavöru, sem
ekki fæst annars staðar og því
tilvalið að gera sér ferð í verslunina
eða skoða úrvalið á heimasíðunni.
I Heildverslun ehf. er að Hval-
eyrarbraut 35, Hafnarfirði. Síminn
er 555-2585 og heimasíðan er
ihverslun.is. Opnunartími er mánu-
daga–föstudaga frá kl. 10–17 og
laugardaga frá kl. 11–14.
I HEILDVERSLUN:
Kerti fyrir öll tækifæri allan
ársins hring