Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 14
14 19. október 2018
E
ftir margra ára njósnir og
eftirlit hófst sex og hálfrar
klukkustundar löng leyni
leg aðgerð ísraelsku leyni
þjónustunnar í yfirgefinni lager
byggingu í Teheran í Íran. Þar
fundu útsendarar leyniþjón
ustunnar háleynileg skjöl, teikn
ingar af kjarnorkuvopnum og yfir
lit um smyglleiðir frá Íran. Þetta
hljómar eiginlega eins og sögu
þráður í James Bondmynd en
þetta er blákaldur raunveruleiki að
sögn ísraelsku leyniþjónustunnar
sem skýrði frá aðgerðinni.
Hún fór fram í janúar og skilaði
ísraelskum stjórnvöldum miklu
magni af skjölum sem sanna að
Íranir hafi árum saman logið að
umheiminum um kjarnorkumál
sín og að þarlend stjórnvöld vinni
enn að þróun kjarnorkuvopna.
Þetta er að minnsta kosti skoðun
og túlkun ísraelskra stjórnvalda á
þessum skjölum.
Á fréttamannafundi í apríl
lagði Benjamin Netanyahu, for
sætisráðherra Ísraels, þessi gögn
fram og sagði að hér væri komið
hálft tonn af sönnunum fyrir lyg
um Írana. Fréttamannafundur
inn var í dramatískara lagi og það
minnti helst á afhjúpun listaverks
þegar Netanyahu svipti svörtu
teppi af hillu þar sem margar
möppur stóðu í röðum. Þær voru
fullar af þessum skjölum að hans
sögn en þau höfðu útsendarar
leyniþjónustunnar fundið í lager
byggingunni í Teheran. Nýlega
skýrðu nokkrir þeirra sem tóku
beinan þátt í aðgerðinni í Teheran
síðan frá hvernig þetta fór allt fram
og hvað var í lagerbyggingunni.
Minnti á bandaríska
spennumynd
Einn leyniþjónustumannanna líkti
aðgerðinni við söguþráð í banda
rísku hasarmyndinni Ocean’s
Eleven. Aðgerðin hófst 2016 en
þá fengu Ísraelsmenn veður af að
Íran, í kjölfarið á nýjum kjarnorku
samningi við Evrópusambandið
og Bandaríkin, ætlaði að safna öll
um skjölum sínum um kjarnorku
áætlun sína saman og geyma þær
á einum stað. Ísraelska leyniþjón
ustan fór því að fylgjast með Íran
til að reyna að hafa uppi á þessum
skjölum.
Í janúar 2017 var skjölunum
komið fyrir í yfirgefinni lager
byggingu í útjaðri Teheran. Þá
hófst undirbúningur að þjófnaði
á skjölunum og ekki síður hvern
ig ætti að koma þeim úr landi.
Áætlanagerðin og undirbúning
ur stóð yfir næsta árið. Það var
síðan í janúar á þessu ári sem út
sendarar Ísraela brutust inn í
lager bygginguna þegar þeir vissu
að engin gæsla var þar. Til að
vekja ekki athygli höfðu Íranir ekki
sólar hringsvakt í byggingunni en
treystu þess í stað á stórt og öflugt
öryggiskerfi. Þessu komust út
sendarar Ísraels fram hjá og gátu
athafnað sig inni í byggingunni.
Þar fundu þeir tvo stóra gáma sem
innihéldu 32 peningaskápa. Þeim
tókst að opna skápana og síðan
smygla skjölunum frá Íran eftir
leynilegri leið. Af öryggisástæðum
vilja ísraelsk stjórnvöld ekki upp
lýsa hver sú leið er. Skjölin voru
mörg eða um 50.000 síður auk 183
harðra diska.
Sprengjur og tilraunastöðvar
Stór hluti af skjölunum staðfestir
það sem Alþjóðakjarnorkumála
stofnunin (IAEA) hefur sýnt fram
á og haldið fram í gegnum árin
um kjarnorkumál Írana. En sum
skjölin afhjúpa ýmislegt sem IAEA
hafði ekki upplýsingar eða vit
neskju um að sögn Ísraelsmanna.
Þar má nefna staðsetningu neðan
jarðartilraunastöðvar sem sér
fræðingar IAEA höfðu lengi leitað
að án árangurs.
Auk þess fundu leyniþjónustu
mennirnir teikningar af sprengju
oddi en Ísraelsmenn telja að
Íranir hafi fengið aðstoð erlend
is frá við að þróa hann. En það
sem Ísraelsmönnum þykir mestur
fengur í eru skjöl sem sýna, að
þeirra sögn, að klerkastjórnin
hefur reynt að halda kjarnorku
áætluninni gangandi eftir að hafa
heitið því að láta af henni í kjölfar
fyrrgreinds samnings við önnur
ríki.
En það er ekki hlaupið að því
að staðfesta staðhæfingar Ísraels
manna. Margir hafa bent á að
engar sannanir séu í skjölun
um um að Íranir hafi brotið gegn
samningum um kjarnorkumál.
Írönsk stjórnvöld staðhæfa einnig
að það sem Ísraelsmenn segja sé
ekki rétt og að allt hafi þetta ver
ið sett á svið til að sannfæra Dona
ld Trump um að snúast gegn Íran
áður en hann tók ákvörðun um
hvort Bandaríkin myndu draga sig
út úr kjarnorkusamningnum við
Íran.
Alireza Miryousefi, fjölmiðla
fulltrúi sendinefndar Írans hjá
Sameinuðu þjóðunum, sagði
í tengslum við þessa afhjúpun
Ísraelsmanna á gögnunum úr
lager geymslunni að Íranir hafi
alltaf sagt skýrt og skorinort að
smíði gjöreyðingarvopna gangi
gegn öllu því sem landið standi
fyrir. Hugmyndin um að Íran
myndi geyma viðkvæmar upplýs
ingar í yfirgefinni lagerbyggingu í
Teheran væri auk þess svo fárán
leg að það væri ekki hægt annað
en að hlæja. Þetta væri nánast eins
og Ísraelsmenn væru að reyna að
komast að því hversu klikkaðar
staðhæfingar þeir gætu sett fram
og fengið Vesturlandabúa til að
trúa.
Ísraelsmenn létu Trump vita
af aðgerðinni og þeim gögnum
sem þeir komust yfir snemma á
árinu en eins og kunnugt er ákvað
Trump að draga Bandaríkin út úr
samningnum við Írani í maí en
forveri hans á forsetastól, Barack
Obama, hafði samið við Írani. n
FRÉTTIR - ERLENT
Kaldunnin þorsklifrarolía
Íslensk framleiðsla
120/180
60
220 ml
Dropi af
náttúrunni
„Fyrir mér er
Dropi heilindi og
lífsorka”
Lygileg aðgerð
ísraelsku leyni-
þjónustunnar
Stálu leynilegum skjölum um kjarnorkuáætlun Írana„Einn leyniþjónustu-
mannanna líkti aðgerðinni
við söguþráð í bandarísku hasar-
myndinni Ocean’s Eleven
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is