Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Page 14
14 19. október 2018 E ftir margra ára njósnir og eftirlit hófst sex og hálfrar klukkustundar löng leyni­ leg aðgerð ísraelsku leyni­ þjónustunnar í yfirgefinni lager­ byggingu í Teheran í Íran. Þar fundu útsendarar leyniþjón­ ustunnar háleynileg skjöl, teikn­ ingar af kjarnorkuvopnum og yfir­ lit um smyglleiðir frá Íran. Þetta hljómar eiginlega eins og sögu­ þráður í James Bond­mynd en þetta er blákaldur raunveruleiki að sögn ísraelsku leyniþjónustunnar sem skýrði frá aðgerðinni. Hún fór fram í janúar og skilaði ísraelskum stjórnvöldum miklu magni af skjölum sem sanna að Íranir hafi árum saman logið að umheiminum um kjarnorkumál sín og að þarlend stjórnvöld vinni enn að þróun kjarnorkuvopna. Þetta er að minnsta kosti skoðun og túlkun ísraelskra stjórnvalda á þessum skjölum. Á fréttamannafundi í apríl lagði Benjamin Netanyahu, for­ sætisráðherra Ísraels, þessi gögn fram og sagði að hér væri komið hálft tonn af sönnunum fyrir lyg­ um Írana. Fréttamannafundur­ inn var í dramatískara lagi og það minnti helst á afhjúpun listaverks þegar Netanyahu svipti svörtu teppi af hillu þar sem margar möppur stóðu í röðum. Þær voru fullar af þessum skjölum að hans sögn en þau höfðu útsendarar leyniþjónustunnar fundið í lager­ byggingunni í Teheran. Nýlega skýrðu nokkrir þeirra sem tóku beinan þátt í aðgerðinni í Teheran síðan frá hvernig þetta fór allt fram og hvað var í lagerbyggingunni. Minnti á bandaríska spennumynd Einn leyniþjónustumannanna líkti aðgerðinni við söguþráð í banda­ rísku hasarmyndinni Ocean’s Eleven. Aðgerðin hófst 2016 en þá fengu Ísraelsmenn veður af að Íran, í kjölfarið á nýjum kjarnorku­ samningi við Evrópusambandið og Bandaríkin, ætlaði að safna öll­ um skjölum sínum um kjarnorku­ áætlun sína saman og geyma þær á einum stað. Ísraelska leyniþjón­ ustan fór því að fylgjast með Íran til að reyna að hafa uppi á þessum skjölum. Í janúar 2017 var skjölunum komið fyrir í yfirgefinni lager­ byggingu í útjaðri Teheran. Þá hófst undirbúningur að þjófnaði á skjölunum og ekki síður hvern­ ig ætti að koma þeim úr landi. Áætlanagerðin og undirbúning­ ur stóð yfir næsta árið. Það var síðan í janúar á þessu ári sem út­ sendarar Ísraela brutust inn í lager bygginguna þegar þeir vissu að engin gæsla var þar. Til að vekja ekki athygli höfðu Íranir ekki sólar hringsvakt í byggingunni en treystu þess í stað á stórt og öflugt öryggiskerfi. Þessu komust út­ sendarar Ísraels fram hjá og gátu athafnað sig inni í byggingunni. Þar fundu þeir tvo stóra gáma sem innihéldu 32 peningaskápa. Þeim tókst að opna skápana og síðan smygla skjölunum frá Íran eftir leynilegri leið. Af öryggisástæðum vilja ísraelsk stjórnvöld ekki upp­ lýsa hver sú leið er. Skjölin voru mörg eða um 50.000 síður auk 183 harðra diska. Sprengjur og tilraunastöðvar Stór hluti af skjölunum staðfestir það sem Alþjóðakjarnorkumála­ stofnunin (IAEA) hefur sýnt fram á og haldið fram í gegnum árin um kjarnorkumál Írana. En sum skjölin afhjúpa ýmislegt sem IAEA hafði ekki upplýsingar eða vit­ neskju um að sögn Ísraelsmanna. Þar má nefna staðsetningu neðan­ jarðartilraunastöðvar sem sér­ fræðingar IAEA höfðu lengi leitað að án árangurs. Auk þess fundu leyniþjónustu­ mennirnir teikningar af sprengju­ oddi en Ísraelsmenn telja að Íranir hafi fengið aðstoð erlend­ is frá við að þróa hann. En það sem Ísraelsmönnum þykir mestur fengur í eru skjöl sem sýna, að þeirra sögn, að klerkastjórnin hefur reynt að halda kjarnorku­ áætluninni gangandi eftir að hafa heitið því að láta af henni í kjölfar fyrrgreinds samnings við önnur ríki. En það er ekki hlaupið að því að staðfesta staðhæfingar Ísraels­ manna. Margir hafa bent á að engar sannanir séu í skjölun­ um um að Íranir hafi brotið gegn samningum um kjarnorkumál. Írönsk stjórnvöld staðhæfa einnig að það sem Ísraelsmenn segja sé ekki rétt og að allt hafi þetta ver­ ið sett á svið til að sannfæra Dona­ ld Trump um að snúast gegn Íran áður en hann tók ákvörðun um hvort Bandaríkin myndu draga sig út úr kjarnorkusamningnum við Íran. Alireza Miryousefi, fjölmiðla­ fulltrúi sendinefndar Írans hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði í tengslum við þessa afhjúpun Ísraelsmanna á gögnunum úr lager geymslunni að Íranir hafi alltaf sagt skýrt og skorinort að smíði gjöreyðingarvopna gangi gegn öllu því sem landið standi fyrir. Hugmyndin um að Íran myndi geyma viðkvæmar upplýs­ ingar í yfirgefinni lagerbyggingu í Teheran væri auk þess svo fárán­ leg að það væri ekki hægt annað en að hlæja. Þetta væri nánast eins og Ísraelsmenn væru að reyna að komast að því hversu klikkaðar staðhæfingar þeir gætu sett fram og fengið Vesturlandabúa til að trúa. Ísraelsmenn létu Trump vita af aðgerðinni og þeim gögnum sem þeir komust yfir snemma á árinu en eins og kunnugt er ákvað Trump að draga Bandaríkin út úr samningnum við Írani í maí en forveri hans á forsetastól, Barack Obama, hafði samið við Írani. n FRÉTTIR - ERLENT Kaldunnin þorsklifrarolía Íslensk framleiðsla 120/180 60 220 ml Dropi af náttúrunni „Fyrir mér er Dropi heilindi og lífsorka” Lygileg aðgerð ísraelsku leyni- þjónustunnar Stálu leynilegum skjölum um kjarnorkuáætlun Írana„Einn leyniþjónustu- mannanna líkti aðgerðinni við söguþráð í bandarísku hasar- myndinni Ocean’s Eleven Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.