Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 38
Lýstu upp myrkrið 19. október 2018KYNNINGARBLAÐ
Danski vinnuljósaframleið-andinn Scangrip segist vaxa á ljóshraða en sú hnyttni felur í
sér töluverðan sannleika: Fyrirtæk-
ið byrjaði að sérhæfa sig í hönnun
harðgerðra vinnuljósa fyrir iðnaðar-
menn fyrir um tíu árum og salan hef-
ur aukist gífurlega á síðustu árum. Er
Scangrip nú einn stærsti framleið-
andi vinnuljósa í Evrópu.
Fossberg er söluaðili Scangrip-
-ljósa á Íslandi en Gunnar Örn
Benediktsson, sölu- og markaðsstjóri
Fossberg, segir ljósin vera afar sterk-
byggð:
„Þetta eru vinnuljós með LED-ljós-
gjafa: kastarar, handluktir, ennis-
ljós. Flest eru þau að einhverju leyti
hönnuð með vinnu iðnaðarmanna í
huga og eru gjarnan vatnsheld og
höggþétt, þola vel alls konar veður
og svo framvegis. Ljósin eru sterk-
byggð eða það sem kallað er á ensku
„robust“,“ segir Gunnar en Fossberg
selur meðal annars ljóskastara sem
mikið eru notaðir við byggingarvinnu:
„Ljóskastararnir sem við höfum
mest verið að kynna, NOVA 3K, 5K
og 10K, eru vinnuljós sem notuð eru í
byggingum og flestir sem hafa geng-
ið framhjá stillönsum eða húsum í
byggingu hafa séð eldri gerðir af
skyldum kösturum. NOVA-línan frá
Scangrip er 21. öldin í svona ljósum.
Einn viðskiptavinur á Íslandi missti
NOVA 5K-hleðsluljós úr 5 metra
hæð niður á malbik en gat bara sótt
það og haldið verkinu áfram. Það sá
varla á ljósinu.“
NOVA 10K er 10.000 lumen sem
samsvarar birtustiginu á gömlu
1000W kösturunum sem flestir ættu
að kannast við. NOVA 5K C+R-
-hleðsluljósið hefur allt að 12 klukku-
stunda rafhlöðuendingu.
Scangrip kynnir nýjungar í ljós-
um á hverju ári og hefur ár eftir ár
sannað að það er fremst í þróun á
LED-vinnuljósum:
„Þeir eru nú með nokkrar línur af
ljósum, vinnuljós, LITE, sem er léttari
lína hugsuð fyrir DIY-markaðinn,
COLOUR MATCH fyrir litasannreyn-
ingu og svo EX-PROOF sem er sér-
staklega ætlað á sprenginæm svæði
(olíuvinnslu, gasvinnslu og annars
staðar þar sem ekki má koma neinn
neisti frá ljósinu). Á nýafstaðinni sýn-
ingu AUTOMECHANIKA í Þýskalandi
kynntu þeir enn einn flokk ljósa,
UV-CURING, sérstaklega
ætluð til að flýta fyrir
þornun á epoxy-
-efnum (lakki og
lími). Nýjasta
tækið frá þeim
er NIGHT
VIEW-ennis-
ljós sem auk
þess að vera
með venjulegu
ljósi er líka
með rautt ljós
sem spillir ekki
nætursjón.“
Fossberg byrj-
aði að selja Scan-
grip-ljós árið 2014. Að
sögn Gunnars var fyrirtækið
hikandi í fyrstu við að taka stóra
sendingu af nýrri vöru á markaðinn
en viðtökurnar hafa verið geysilega
góðar. „Það er sama hvað við tökum
inn af þessum ljósum, það selst allt.
Jafnvel týpur sem við héldum að
myndu ekki seljast af því að þær
eru svo keimlíkar einhverju öðru í
línunni. En það er alltaf einhver sem
vill aðeins stærra eða aðeins minna,
þannig að við erum með alla línuna
af vinnuljósum á lager,“ segir Gunnar.
Geysileg fjölbreytni er í LED-ljós-
um hjá Fossberg en í boði er allt frá
ljósum með rafhlöðum sem kosta
995 kr. upp í 10.000 lumena ljós-
kastara. Fossberg býður upp á ljós
sem henta jafnt bifvélavirkjum sem
húsasmiðum, rafvirkjum og venjuleg-
um borgurum til heimilisnota.
Nánari upplýsingar um Scangrip-
-ljósin má fá á heimasíðu Fossberg,
fossberg.is. Fossberg er til húsa að
Dugguvogi 6, Reykjavík, og síminn er
575-7600. Einnig má senda fyrir-
spurn á netfangið fossberg@foss-
berg.is.
SCANGRIP:
Hágæða LED-vinnuljós við
allra hæfi