Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 29
19. október 2018 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is Lýstu upp myrkrið ZOLO & CO. : Vörur sem hreinsa loftið og fegra umhverfið Ilmolíulampar eru allt í senn rakatæki sem hreinsa loftið, ilmgjafar ef vill, einnig eru þeir jónatæki og senda frá sér svokallað- ar negatífar jónir sem hafa, þrátt fyrir nafnið, jákvæð áhrif á líðan fólks. Þetta er ekki ósvipuð upplifun og að standa nálægt fossi eða í flæðarmálinu niðri á strönd. Verslunin Zolo & Co. er með mikið úrval af ilmolíulömp- um með margbreytilegu útliti en sambærilega virkni. „Munurinn á lömpunum er útlitið og misstórir vatns- tankar, en stærð vatns- tanksins ræður því hvað lampinn gengur lengi í einu. Maður einfaldlega setur vatn í lampann og síðan er hægt að bæta við ef vill ilmolíu eða ilmkjarnaolíu að eigin vali, en við erum með gríðarlegt úrval af olíum,“ segir Sunna Dís Ólafsdóttir sem rekur Zolo & Co. ásamt móður sinni, Rúnu Kærne- sted Óladóttur, en þetta litla fjölskyldufyrirtæki er til húsa að Hafnargötu 23 í Keflavík. Einnig eru þær með vef- verslunina zolo.is Auk ilmolíulampa býð- ur Zolo & Co. upp á margs konar fallegar heimilisvörur og öðruvísi gjafavöru, til dæmis alls konar ilmkerti, ilmstangir, glervöru, stóla, borð, maska og fleiri muni. „Vinsælasta varan okkar um þessar mundir er Zolo-her- bergisúðinn sem býður upp á þrjár ótrúlega góðar ilm- tegundir,“ segir Sunna Dís og segir okkur frá nýrri og spennandi vöru sem versl- unin er að taka í sölu núna, en það er sambyggður hátalari, lampi og vínkælir. Þessi óvenjulega samsetn- ing er að virka vel því varan er mjög vinsæl um alla Evrópu að sögn Sunnu sem er spennt fyrir því að sjá hvaða viðtökur þessi nýjung fær meðal Íslendinga. Zolo er íslenskt merki en vörur undir Zolo-merk- inu eru hannaðar erlend- is í samráði við eigendur verslunarinnar. „Við fylgjum þessu vel eftir og ég er mjög stolt af þessari vörulínu,“ segir Sunna. „Svo er líka gaman að segja frá því að við erum að fara að taka upp æðislega spennandi jólavörur núna á næstunni sem þetta eru allt öðruvísi jólavörur en við höfum áður séð hérlendis. Svo verð ég líka að minnast á jólailmolíurnar okkar í lampana, en þær hafa svo sannarlega slegið í gegn síðustu árin.“ Verslunin er að Hafnar- götu 23 í Keflavík, hún er opin virka daga frá 11 til 18 og 11 til 16 á laugardög- um. Síminn er: 588-6777. Vefverslunin zolo.is er að sjálfsögðu opin allan sólar- hringinn og þar er gott að skoða allt úrvalið og gera góð kaup. Sjá einnig Face- book-síðuna Ilmolíulampar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.