Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 22
22 FÓLK - VIÐTAL 19. október 2018
Sundaborg 3 - 104 Reykjavík - 777 2700 - xprent@xprent.is
SKILTAGERÐ
BÍLAMERKINGAR
BANNER-UP
SÓLARFILMUR
Ráðgjöf
Hönnun
Framleiðsla
Uppsetning
fannst það meira að segja örlítið
óþægilegt. En þessi plata er svo-
lítið merki um það. Hún er rólegri
og fylgir annarri stefnu en því sem
ég hef verið að sinna, en það er
líka vegna þess að ástandið á mér
hefur verið öðruvísi en áður.
Ég vil líka hvetja fólk til þess að
vera ekki feimið við að gagnrýna
plötuna mína. Mér finnst alltaf
gaman að fá uppbyggilega gagn-
rýni og mér finnst eiga að vera
meira af henni í samfélaginu. Ég
á mér nokkra beinskeytta vini
sem ég leita alltaf til þegar ég gef
út efni. Mér finnst auðvitað gam-
an að fá hrósið en ég vil endilega
vita hvað þeim fannst mega fara
betur. Þetta snýst ekki um að vera
dónalegur og ég er mögulega að
kasta steinum úr glerhúsi, því ég
hef sjálfur tekið fólk fyrir í fjöl-
miðlum og drullað yfir það.“
Er eitthvað sem fólk veit ekki
um þig?
„Það er eitt sem mér finnst
frekar nett. Þegar ég var í skát-
unum á unga aldri var ég í frí-
merkjaklúbb, að æfa skák og var
í fimleikum. Allt þetta á svipuð-
um tíma, en það skemmtilega var
að ég kynntist fyrst íslensku rappi í
gegnum skátana. Ég var í skátaúti-
legu og þá voru spilaðar Skytturn-
ar, það var gott móment.“
Færðu einhvern tímann á til
finninguna að hipphoppsenan sé
búin að ná hámarki?
„Ég hélt að hún hefði náð há-
marki fyrir fjórum árum, en hvað
var rokk og ról lengi á toppnum?
Þetta er náttúrlega sena sem tal-
ar til ungs fólks og út frá því smit-
ar það yfir í aðra aldurshópa líka.
Það er ekki hægt að skilgreina rapp
sem bara rapp, því þetta er svo fá-
ránlega vítt hugtak. Mér finnst vera
jákvæð þróun varðandi að það er
auðveldara fyrir ungt fólk að koma
sér á framfæri í dag en það var
þegar ég byrjaði. Samfélagsmiðlar
eru eflaust stærsti þátturinn í því.
Tónlist hljómar líka almennt bet-
ur í dag en áður. Það má segja að
versta tónlistin í dag hljómi eins
og besta tónlistin sem við vorum
að gera, því við vorum ekki með
upptökugræjur.“
Drakk fullmikið af jólaglögginu
Trúir þú á Guð?
„Nei, ég get ekki sagt það. Ég
get heldur ekki sagt að það sé
ekki neitt til. Það er jafnvitlaust að
segja að það sé ekki til neinn Guð.
Við höfum ekki hugmynd, en ég er
ekki trúaður.“
Í fyrra seldist upp á sjö sýn
ingar á Julevenner, en þeir tónleik
ar hófust sem brandari. Hvernig
verður nálgunin í ár?
„Við tókum fljótt þá ákvörðun
um að festa okkur ekki í sömu
hjólför og síðast. Þú ferð ekki og
segir sama brandarann aftur,
sama hversu ógeðslega fyndinn
hann er. Það er í eðli sínu fárán-
legt að ég skuli halda jólatónleika
og þetta var ógeðslega fyndið í
fyrra. En allir listamennirnir sem
koma fram eru fólk sem ég virði
rosalega, en þetta er ótrúlega sér-
stök blanda. Emmsjé Gauti og
Sigga Beinteins hljómar ekki alveg
eins og dót sem þú myndir flokka
saman í samstæðuspili og það eru
allir meðvitaðir um það. Þetta er
ákveðin jólakómík og meiri sýn-
ing en hefðbundnir jólatónleikar.
Þetta eru í raun meira venjulegir
tónleikar heldur en jólatónleikar.
Þú getur gert allt jólalegt bara með
því að setja skraut á sviðið.“
Og það er jólaglögg í boði og
svona?
„Já, að sjálfsögðu. Það er allur
pakkinn þarna. Í fyrra vorum við
með lúðrasveit sem tók á móti
gestum, og mandarínur, konfekt
og fullan jólasvein. Strákurinn
sem lék jólasveininn í fyrra drakk
aðeins of mikið af jólaglögginu.
Rauði þráðurinn í gegnum þetta
var að gera eitthvað sem okkur
fannst fyndið. Þetta má samt ekki
heldur vera of mikið glens, en
aldrei of alvarlegt. Glætan að ég
nenni að sitja sjálfur á jólatónleik-
um þar sem eru eingöngu spiluð
jólalög.“ n
„Föðurhlut-
verkið hvet-
ur mig meira til
þess að horfa inn
á við
Rapparinn kann betur við að halda
tónleika en að spila á djammi.